19.11.1981
Sameinað þing: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

321. mál, húsnæðismál

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Það er auðvitað ofureðlilegt að fram komi spurningar hér á hv. Alþingi um þetta efni og þessa þróun sem hefur verið mjög viðamikil og áberandi í samfélaginn síðustu misseri. Í annan stað vil ég vekja athygli á þáltill. sem flutt hefur verið á þskj. 106, þar sem lagt er til að Alþingi álykti að skipa nefnd fulltrúa þingflokkanna um sjónvarp á vegum einkaaðila — eða það sem kallað er myndband hér í fsp. eða vídeó — sem hafi að markmiði að breyta útvarpslögum þannig að í fyrsta lagi sé ótvírætt heimilt að senda sjónvarpsefni eftir lokuðum rásum gegn greiðslu og í öðru lagi að tryggt sé að sanngjarnar greiðslur komi til eigenda höfundaréttar, en það er einmitt eitt veigamikið atriði í spurningum hv. fyrirspyrjanda.

Hins vegar eru svör hæstv. ráðh. alveg með ólíkindum við þessum fsp. og sá hroki sem fram gengur. Hvaðan kemur honum réttur eða leyfi til að tala um „vídeóæði“, eins og hann gerir, eða tala um „barbarisma“ sem af þessu hefur leitt? Það, sem hefur gerst í þessum efnum, er einfaldlega að tiltekin leið fjölmiðlunar hefur af tæknilegum ástæðum reynst verða ódýr með þeim hætti. Það, sem hér hefur gerst, er að fólk í samfélaginu hefur verið að setja upp þessi kerfi sem eru á lokuðum rásum og eru fullkomlega sambærileg við t. d. áskriftir að tímaritum. Það er enginn skyldaður til að vera kaupandi að þessu. Mér þykja svör hæstv. ráðh. vera svo ósvífinn og hrokafull, þær nafngiftir sem hann velur þessari þróun. að mér sýnist fyllsta ástæða vera til að hafa þetta ekkí í einhverjum lokuðum nefndum á vegum rn., sem enginn veit í raun og veru hvenær koma til með að skila álitum eða hvað í þeim verður, heldur taki Alþingi sjálft að sér á eigin vegum að skipa þessum málum með breytingum á útvarpslögum og það sé ótvírætt hver niðurstaða þess eigi að vera, þ. e. að þessi þróun sé lögmæt í alla staði og fólk lifi ekki í óvissu þar um og að tryggð séu full réttindi höfunda þessa myndefnis.