19.11.1981
Sameinað þing: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

49. mál, útgáfa nýs lagasafns

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því, að hægt verði að hraða útgáfunni svo sem frekast er kostur, eins og hv. fyrirspyrjandi drap á.

Út af fsp. hv. 9. þm. Reykv., hvað miði hugmyndum um lagasafn á lausum blöðum, skal tekið fram að þessi hugmynd er í athugun sem og fleiri hugmyndir sem varða útgáfu lagasafns í framtíðinni. Sannleikurinn er sá, að öllum er ljóst að það er of lítið að gefa lagasafn aðeins út á 10 ára fresti. En þarna vorum við komnir í algjöra tímaþröng svo að við sáum þess ekki nokkurn kost að breyta um útgáfuform.

Það hafa komið fram ýmsar hugmyndir um að breyta þessari útgáfu og bæta hana. Á Norðurlöndum mun besta lagasafnið og það safn, sem mest er til vandað, vera „Karnov-safnið“ danska, en það er dýr útgáfa og þarf að hyggja vel að því.

Ég sá ekki annan kost en láta gefa lagasafnið út nú sem næst í þeirri mynd sem verið hefur. En það eru ýmsar hugmyndir á lofti um það, hvernig eigi að haga þessari útgáfu til frambúðar, svo sem hvort eigi að flokka lögin eftir efni, eins og nú er gert, eða hvort þeim skuli skipa í tímaröð, hvort þau eigi að vera á lausum blöðum eða með öðrum hætti. Allt þetta er til athugunar. En eins og nú horfir verðum við fyrst og fremst að einbeita okkur að því að lagasafnið geti komið út sem allra fyrst og þá í svipuðu formi og verið hefur.