19.11.1981
Sameinað þing: 23. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (738)
95. mál, öryggisbúnaður fiski- og farskipahafna
Flm. (Jón Sveinsson):
Herra forseti. Á þskj. 98 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um skipun nefndar til að kanna öryggisbúnað fiski- og farskipahafna, sem orðist þannig, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. skipun þriggja manna nefndar til að gera heildarathugun á fiski- og farskipahöfnum landsins með tilliti til slysahættu sjómanna og annarra sem um hafnir fara.
Í nefndinni sitji einn fulltrúi tilnefndur af Slysavarnafélagi Íslands og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar, annar tilnefndur af Siglingamálastofnun ríkisins og sá þriðji tilnefndur af Hafnamálastofnun ríkisins.
Skal starf nefndarinnar miða að því:
a) að benda á kunnar eða hugsanlegar slysagildrur við hafnarmannvirki og landgang skipa og báta,
b) að benda á við hvaða hafnir landsins og á hvaða sviði sé helst og brýnust þörf úrbóta,
c) að kanna aðbúnað til björgunar og slysavarna við hafnir landsins,
d) að gera tillögur um leiðir til úrbóta í ofangreindu efni, sjómönnum og öðrum, sem um hafnir fara, til aukins öryggis. Ofangreind athugun og tillögugerð skal liggja fyrir eigi síðar en í árslok 1982“.
Svo sem fram kemur í grg. með till. er kunnara en frá þurfi að segja sú mikla slysatíðni sem ár hvert á sér stað við hafnir landsins. Eru hafnarmannvirki, bryggjur og landgangar skipa og báta í mörgum tilvikum illa útbúin og bjóða í sumum tilvikum beinlínis hættunni heim. Stigar á bryggjum eru og oft illa merktir, þeim illa fyrir komið og stundum jafnvel huldir dekkjum, sem gera notkun þeirra illmögulega, og einnig útbúnir handföngum, sem oft eru það fjarri að erfitt er að ná til þeirra víð slæm skilyrði, svo sem í vondum veðrum og í hálku. Þá eru lausabryggjur, flotbryggjur, borðstokkströppur, landgangar og annar algengur öryggis- og tækjabúnaður sums staðar alls ekki til eða þá svo óhönduglega fyrir komið, að ekki kemur að gagni. Sjást alls þessa glögg merki er farið er um hafnir landsins, þó að vissulega sé þar misjafnlega búið að eftir stöðum.
Loks eru þekkt þau umferðarslys sem orðið hafa við hafnir landsins og stundum má rekja beint og óbeint til vanbúinna bryggjukanta sem vafalaust hefði mátt koma í veg fyrir við frumhönnun og byggingu hafnarmannvirkja.
Þannig mætti halda áfram að telja upp einstök dæmi um orsakavald slysa eða meðvald.
Staðfestingu hinnar miklu slysatíðni má m. a. einnig finna í töflu þeirri sem ég hef tekið saman um fjölda slysa við hafnir landsins og landgang skipa frá árinu 1975 til miðs árs 1981 og fram kemur'í grg. með till. Eru þessar tölulegu staðreyndir, sem segja meira en mörg orð, byggðar á upplýsingum frá Slysavarnafélagi Íslands, þ. á m. Árbókum félagsins 1976–1981. Einnig hefur verið stuðst við skýrslur Rannsókarnefndar sjóslysa árin 1975–1980.
Samkv. þessum upplýsingum voru sjóslys og drukknanir, þ. e. dauðaslys í höfnum hér við land árið 1975 fimm talsins, 1976 tólf, 1977 sjö, 1978 átta, 1979 fjögur, 1980 átta og fram til miðs árs 1981 tvö, eða samtals 46, og í höfnum erlendis 1976 eitt, 1979 tvö, 1980 eitt og til miðs árs 1981 eitt, eða alls fimm. Umferðarslys, þar sem ekið eða hjólað hefur verið út af bryggju, voru tvö árið 1975, eitt árið 1976, eitt 1977, fjögur 1979, þrjú 1980 og eitt til miðs árs 1981, eða alls 12 á þessu tímabili. Á sama tímabili voru drukknanir alls með skipum. í ám, vötnum, við fall útbyrðis, við útafakstur og fleira alls 179, þar af 21 1975, 38 1976, 18 1977, 21 1978, 33 1979, 35 1980 og 13 til miðs árs 1981.
Vekur athygli við þessa upptalningu hversu hátt hlutfall dauðaslysa við hafnir landsins er af heildarfjölda drukknana nefnt tímabil, eða 58 af 179. Er hér um að ræða um það bil þriðjung allra slíkra slysa, en eins og kunnugt er eru það sjóslys skipa og báta sem til þessa hafa verið talin mannfrekustu slysin hvað drukknanir snertir hérlendis.
Slysfarir einstaklinga í höfnum og við land hérlendis eru þó miklum mun tíðari en þessar tölur gefa til kynna, svo sem allar þær giftusamlegu bjarganir, sem tekist hafa, bera vott um. Tókust 9 bjarganir árið 1975, 24 1976, 22 1977, 11 1978, 14 1979, 23 1980 og 7 til miðs árs 1981, eða alls þetta tímabil 110. Einnig vekur sérstaka athygli fjöldi drukknana í höfnum erlendis eða alls fimm nefnt tímabil. Fullyrða sjómenn að öryggisbúnaði sé víðast hvar erlendis mun betur fyrir komið en hér tíðkast, a. m. k. í Evrópu og Bandaríkjunum. enda mjög strangar reglur víða um aðbúnað og landgang skipa. Er máske í því að finna skýringu á því, að slysin eru ekki fleiri en hér kemur fram, þó að talan sé vissulega nægilega há.
Þá er einnig umhugsunarverður hinn mikli fjöldi slysa á sjómönnum við ferðir að og frá skipi. Á tímabilinu 1975–1980 voru þau sem hér segir og eru þá dauðaslys ekki meðtalin:
Árið 1975 32, 1976 26, 1977 l7, 1978 29, 1979 6 og árið 1980 18, eða alls 128. Ekki hefur tekist að afla upplýsinga um hversu mörg þess konar slys hafa átt sér stað til miðs árs 1981, en munu þó vera nokkur, og ætti því tala þessi vafalaust að vera nokkru hærri. Er hér aðallega um að ræða slys vegna falls úr eða í landgangi, á bryggju, við að klöngrast á milli skipa og báta eða við að komast á eða af bryggju úr stiga, svo nokkuð sé nefnt. Hvað þennan flokk slysa snertir er þó rétt að taka fram að talan um fjölda slysa er byggð á skýrslum Tryggingastofnunar ríkisins varðandi bótaskyld tjón sjómanna, en til að slys sé bótaskylt þarf viðkomandi að hafa verið frá vinnu í 10 daga eða lengur, svo sem kunnugt er. Er í mörgum tilvikum um smávægileg meiðsl að ræða sem eigi að síður verða þó talin til slysa. Annarra slysa, sem ekki ná þessu, er hér ekki getið, enda erfitt að fá um þau upplýsingar, þó að vitað sé að nokkuð sé um meiðsl sem ótvírætt mundu falla undir það sem almennt er kallað slys.
Ef tekinn er saman sá fjöldi einstaklinga, sem orðið hefur fyrir slysum við hafnir eða við land hérlendis það tímabil sem hér hefur verið gert að umtalsefni, og bjarganir eru þar taldar með, kemur í ljós að alls hafa 296 einstaklingar orðið fyrir slysum. Er slík tala allt of há og gefur því að mínu mati fulla ástæðu til athafna og aðgerða. Gefa öll þessi tilvik jafnframt ástæðu til að ætla að öryggisbúnaði við hafnir landsins sé víða mjög ábótavant. Virðist það eiga við um hvers konar öryggisútbúnað. Þó er í hafnarreglugerðum og öðrum sambærilegum reglum um búnað skipa kveðið á um ótvíræða skyldu til að gæta aukins öryggis og sjá um betri búnað en nú tíðkast. Eru t. d. kunn ákvæði hafnarreglugerða þar sem segir m. a. að fyllsta öryggis skuli gætt. Einnig er að finna í reglum um vinnuöryggi á fiskiskipum frá 1980 og reglum um vinnuöryggi á flutningaskipum og farþegaskipum, einnig frá 1980, sem settar hafa verið samkv. lögum um eftirlit með skipum, ýmis ákvæði um búnað skipa, svo sem landgang og fleira. Eru allar þessar reglur góðar og gildar svo langt sem þær ná. Ég vil þó leyfa mér að efast um að eftirlit sé hér nægilegt og reglum fylgt til hlítar. Kemur þar ýmislegt til, svo sem peningaleysi hafnarsjóða, útgerðarfélaga og einstaklinga, að ógleymdu athugunarleysinu, sem oft vegur kannske hvað þyngst.
Ástandið í þessum efnum er þó vafalaust nokkuð misjafnt eftir því hvar á landinu er. Segja mér t. d. sjómenn á Akranesi að ástandið sé víða á Austfjarðahöfnum mjög bágborið og langt frá því að vera fullnægjandi. Þá þurfum við ekki að ganga lengi um Reykjavíkurhöfn til þess að merkja augljósar slysahættur, t. d. hvað bryggjukanta snertir og aðbúnað smábátaeigenda á Grandagarði.
Tilefnið er því nægilegt til sérstakrar heildarathugunar á þessum málum. Miðar till. að slíkri úttekt og tillögugerð til fyrirbyggjandi aðgerða og úrbóta. Lagt er til að nefnd sú, sem till. gerir ráð fyrir, hljóti hún samþykki hv. Alþingis, verði skipuð þremur fulltrúum stofnana: Slysavarnafélags Íslands, Siglingamálastofnunar ríkisins og Hafnarmálastofnunar ríkisins, en þær tengjast allar máli þessu, hver um sig þó á sína vísu. Þekkja allir hlutverk og starf Slysavarnafélags Íslands. Hlutverk Siglingamálastofnunar ríkisins er samkv. 2. gr. laga um stofnunina frá 1970 m. a. að annast eftirlit með nýsmíði skipa, búnaði, breytingum og innflutningi og annað almennt eftirlit skipa samkv. lögum um eftirlit með skipum og reglugerðum settum samkv. þeim. Loks er hlutverk Hafnamálastofnunar ríkisins samkv. lögum frá 1973 m. a. yfirumsjón með hafnaframkvæmdum og hafnamálum, svo sem gerð hafnargarða, bryggja, viðlegukanta o. fl. Þykir því óhjákvæmilegt að fulltrúar þessara stofnana sitji í nefndinni.
Vissulega hefði jafnframt verið æskilegt að í nefndinni hefði átt sæti fulltrúi frá sjómannasamtökum landsins og jafnvel Rannsóknarnefnd sjóslysa. Þá hefði ekki verið unnt að komast af með fámennari nefnd en fimm manna, sem að minni hyggju er of stór og of þung í vöfum sem vinnunefnd af því tagi sem hér er gert ráð fyrir.
Þá má einnig fullyrða að innan Slysavarnafélags Íslands er mikil þekking til á högum og öryggisbúnaði sjómanna, enda eru þar starfandi fyrrverandi sjómenn með mikla reynslu á því sviði sem hér um getur. Er því engin ástæða til að óttast að hagsmuna sjómanna og annarra, sem um hafnir eiga leið, verði ekki gætt í hvívetna. Er reyndar viðbúið að Slysavarnafélagið muni hafa samráð við sjómannasamtök landsins, ef félaginu þykir þess þörf, eins og þess er háttur í öllum viðameiri málum sjómanna.
Verður að ætla nefndinni nokkurn tíma til athugana sinna og tillögugerðar, þar sem ljóst er að verkið er tímafrekt ef að gagni á að koma, erfitt og illframkvæmanlegt við vetrarskilyrði, einkum á landsbyggðinni. Því er nefndinni gefinn nokkuð rúmur tími til starfa, en þó ætlast til að störfum hennar verði lokið í síðasta lagi í árslok 1982.
Sú tillaga, sem hér liggur frammi, snertir ekki aðeins líf og limi þeirra einstaklinga sem erindi eiga um hafnir landsins, heldur snertir hún einnig almennt vinnuöryggi í undirstöðuatvinnugrein okkar, sjávarútvegi og fiskvinnslu. Er því sannarlega ástæða til þess að taka á máli þessu af festu ef verða má til þess að auka öryggi og fækka slysförum. Heyrir maður stundum meðal sjómanna að þeim finnst stór hluti Alþingis og ríkisstofnana þeirra, sem með málefni þeirra fara, sinni öryggismálum sínum af litlum áhuga. Enginn dómur skal á það lagður. En ef svo er, þá er sannarlega kominn tími til að þar verði breyting á. Það er því von mín að till. fá atfylgi hv. alþm.
Að endingu, herra forseti, vil ég leyfa mér að ós:ca þess, að till. verði vísað til hv. allshn. að lokinni þessari umr.