23.11.1981
Efri deild: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (762)

102. mál, mannanöfn

Flm. (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Þetta er að sjálfsögðu eitt af þeim atriðum í frv. sem full ástæða er til að hyggja að og velta nokkuð vöngum yfir. Það varð mín niðurstaða, þegar ég var að vinna að þessu frv., að það væri heppilegast að miða við einhvern aldur er skorður væru settar við þessu aukna frelsi til nafnbreytinga sem frv. gerir ráð fyrir. Það er að sjálfsögðu álitamál hvar á að setja þau aldursmörk. Ég tók þann kostinn að velja lögráðaaldur. Ein ástæðan til þess er sú, að það er almennt heppilegt að vera ekki með mjög mörg ólík aldursskilyrði í lögum, heldur freista þess að hafa þar nokkurt samræmi í og tengja hin ýmsu aldursbundnu réttindi laga sama aldri. Það er hin almenna ástæða.

Í öðru lagi kemur það líka til, að þegar fólk er á þessum aldri, þ. e. undir tvítugu, eru farin að hafa gildi gagnvart því fólki þau almennu þjóðfélagslegu sjónarmið sem tengjast m. a. hættu á fjármálamisferli, nafnabreytingum í fjárplógsskyni. Ég held að sú hætta sé orðin þegar virk á þessum aldri.

Þetta var sem sagt meginástæðan fyrir því, að ég taldi ekki óhætt að fara hærra með aldurinn. (Gripið fram í.) Nei, engin takmörk sem miðað er við. Ég skal víkja að því.

Það er augljóst mál, að börn eru ekki umkomin þess að breyta nafni sínu, a. m. k. ekki ein sér, heldur koma þar að sjálfsögðu til foreldrar með foreldravald. Nú eru oft dæmi þess, að börn, kannske 10, 11 til 12 ára gömul, sem una ekki af einhverjum ástæðum nafni sínu, vilja breyta nafninu. Til þess yrðu þau að sjálfsögðu að hafa atbeina foreldra sinna, sem eru forráðamenn barnanna. Þegar í frv. segir: „ Nú vill maður breyta nafni sínu“ — og mundi oftast vera um að tefla í raun og veru börn, þá liggur í hlutarins eðli að atbeini foreldra þyrfti að koma þar líka til.

Ég held að ég hafi með þessum orðum gert í stórum dráttum grein fyrir því, af hverju þessi aldur er valinn. Sumir þeirra, sem hafa rætt við mig um efni frv., hafa bent á að aldurinn þyrfti að vera lægri, en þá finnst mér frelsið vera skert býsna mikið. Ég var ekki á því, að ástæða væri til að hafa hann lægri. Hvort hann eigi að vera nokkru hærri gæti verið álitamál, en af þeim ástæðum, sem ég hef þegar bent á, tók ég ekki þann kostinn, heldur þann að miða við lögráða mann.