23.11.1981
Neðri deild: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (770)
107. mál, almannatryggingar
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég er samþykkur þeirri breytingu sem lögð er til í því frv. sem hér er til umr. Það er unnt a.. m. k. í sumum tilvikum, ég vil segja flestum, að koma við meiri hagkvæmni í rekstri með kerfi fastra fjárveitinga heldur en með daggjaldakerfinu eins og það er nú. Reynslan af rekstri ríkisspítalanna fyrir og eftir breytinguna 1977 er til vitnis um það.
Ef litið er á málið frá sjónarhóli rekstraraðila skiptir það í sjálfu sér ekki höfuðmáli hvort daggjaldakerfið verður áfram eða fastar fjárveitingar verða teknar upp. Það, sem öllu máli skiptir, er hvort ríkisvaldið á hverjum tíma viðurkennir staðreyndir um raunverulega verðbólgu og áhrif hennar á reksturinn. Á það jafnt við um bæði kerfin, en hingað til hefur verulega viljað á það vanta. Öll eða svo til öll daggjaldasjúkrahús landsins, m. ö. o. öll sjúkrahús önnur en ríkisspítalarnir, voru á s. l. ári rekin með dúndrandi tapi. Og á þessu ári er útlit fyrir að tapið verði a. m. k. tvöfalt á við það sem var á s. l. ári.
Með daggjaldakerfinu á að bæta þetta með svokölluðu halladaggjaldi, sem tekur mið af því hvað hallinn var mikill. T. d. er halladaggjaldi þessa árs ætlað að bæta tapið á síðasta ári. Það er bætt ári seinna eða þar um bil með óverðtryggðum peningum. En hvað skeður svo? Eftir ágústmánuð í ár er sjúkrahúsunum tilkynnt að nú verði þessi halladaggjöld ekki greidd lengur, fjárveiting sé þrotin. Öllum vandanum er sem sagt velt yfir á rekstraraðilana sem í flestum tilfellum, en þó ekki nærri því öllum eru sveitarfélög. Auðvitað verða sveitarfélögin eða aðrir rekstraraðilar að hlaupa undir bagga þegar loka á fyrir rafmagn og síma eða þegar hætta á afgreiðslu matvæla til sjúkrahúsanna. Oft hefur þetta því miður viljað brenna við. En auðvitað er þetta vegna langvarandi skuldasöfnunar sjúkrahúsanna.
Núverandi kerfi tekur ekki tillit til verðbólgu fram í tímann. Það tekur tillit til taps sem verður af verðbólgunni eftir á, ævinlega eftir á og í sumum tilvikum ekki fyrr en heilu ári á eftir. Rekstraraðilar verða því í reynd að velta á undan sér áhrifum verðbólgunnar á rekstrarkostnað. Er þar um mjög mikla fjármuni að ræða. Það skiptir tugum ef ekki hundruðum millj. gkr. á hvert meðalstórt sjúkrahús. Þetta er upphæð sem alltaf er til staðar, þessi vöntun er stanslaust, því að um leið og ein vöntun er bætt upp er önnur að myndast.
Ef fastar fjárveitingar verða teknar upp í stað daggjaldakerfisins þarf þrennt að koma til, og reyndar þarf það að koma til þótt engin kerfisbreyting verði.
Í fyrsta lagi verður að greiða uppsafnaðan halta frá tíma daggjaldakerfisins.
Í öðru lagi verður í fjárlögum að áætla rekstrarkostnað á raunhæfan hátt. T. d. verður að taka mið af því að öldruðu fólki og þá oft sjúku fjölgar miklu örar en öðrum aldursflokkum. Þannig verður þróunin a. m. k. næstu árin. Enn fremur verur að taka mið af því, að örar framfarir í læknavísindum valda því, að fleiri og fleiri sjúkdómar eru nú læknaðir, — sjúkdómar sem voru ólæknanlegir til skamms tíma. Ef við lítum aðeins á efnahagslega hlið þessarar þróunar, þá er hún sú, að þjóðfélagið í heild verður fyrir miklum ávinningi. Það er mikill ávinningur fyrir þjóðfélagið ef hægt er að lækna einn mann þannig að hann getur í áratugi unnið áfram fullt starf í stað þess kannske að vera rúmfastur eða svo til. Og það er feikilegur ávinningur fyrir þjóðfélagið ef hægt er að lækna barn sem verður þá nýtur þjóðfélagsþegn alla sína ævi í stað þess kannske að vera rúmfast eða hælismatur alla ævina. Ávinningur þjóðfélagsins er því geysilega mikill. En kostnaðurinn kemur á sjúkrahúsin, hann kemur á heilbrigðisþjónustuna, en ávinningurinn á þjóðfélagið, og það er ekki tekið mið af því í sambandi við rekstrarkostnað sjúkrahúsanna.
Í þriðja lagi verður jafnóðum að taka tillit til raunverulegra kostnaðarhækkana með aukafjárveitingum ef nauðsynlegt er. Það er t. d. vonlaust að halda sér við einhverja ákveðna reiknitölu í fjárlögum ef verðbólgan verður mun meiri en sú reiknitala. Það er líka nauðsynlegt, ef hæstv. fjmrh. semur við lækna og þeir samningar valda því, að útgjöld sjúkrahúsanna læknanna vegna hækka um 25–30%, að taka strax tillit til þess með aukafjárveitingum.
Í grg. frv. og í máli hæstv. ráðh. var talað um nauðsyn þess að tryggja að sveitarfélögin greiði áfram sín 15% kostnaðar eða þar um bil eftir þessa breytingu. Það er auðvitað rétt að það þarf að breyta reglum til þess að tryggja það. Hins vegar hafa erfiðleikarnir hingað til miklu fremur stafað af því, að ríkisvaldið hefur ekki séð fyrir sínum hluta. Það hefur ekki stafað af vanrækslu sveitarfélaganna, heldur ríkisvaldsins. Sveitarfélögin hafa alltaf í þessum málum eins og mörgum öðrum orðið að hlaupa undir bagga þegar ríkissjóður hefur brugðist.
Herra forseti. Ég styð þetta frv. en bendi jafnframt á nauðsyn þess, að ríkisvaldið standi við sinn hluta betur en hingað til hefur verið gert.