23.11.1981
Neðri deild: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (773)
107. mál, almannatryggingar
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Það eru aðeins tvö atriði sem mig langaði til að vekja athygli á. Því miður hef ég ekki lagasafnið við höndina, en eins og frá frv. er gengið, þó svo að það sé í meginatriðum í samræmi við gildandi 41. gr., er raunverulega verið að gefa undir fótinn með að þeim einum sjúklingum verði ábyrgst ókeypis vist á sjúkrahúsi sem liggja á sjúkrahúsum sem ekki eru rekin samkv. daggjaldakerfinu. Eins og frá málum er gengið mætti ætla — þó svo að það sé síður en svo að mínu viti tilgangur hæstv. ríkisstj. eða þeirra sem frá 41. gr. gengu á sínum tíma — að þessi trygging um ókeyptri sjúkrahúsvist nái aðeins til ríkisspítalanna og þeirra sjúkrahúsa annarra sem rætt er um í greininni, en ekki til daggjaldasjúkrahúsa. Vil ég aðeins skjóta því fram, hvort viðkomandi nefnd vilji ekki skoða og lagfæra þannig að frá því sé gengið í lögunum og enginn vafi geti leikið á því, að löggjafinn vilji tryggja öllum sjúklingum ókeypis vist, líka þeim sem verða á daggjaldasjúkrahúsum.
Í öðru lagi tel ég alveg nauðsynlegt að taka fram í þessum lögum hvaða sjúkrahús önnur en ríkissjúkrahús eiga að falla undir bein fjárframlög úr ríkissjóði og hvaða sjúkrahús á að reka með daggjaldakerfi. Annars gæti svo farið, að sum húsanna væru e. t. v. að rokka á milli þessara flokka á milli ára, væru eitt árið í öðrum flokknum og annað í hinum, og a. m. k. gæti rekstraraðilum þessara sjúkrahúsa reynst mjög erfitt að gera rekstraráætlanir fram í tímann um starfrækslu húsanna ef einhver óvissa ríkti í þessu sambandi. Fyrsta viðfangsefni fjárveitingavaldsins, fjvn. og Alþingis, eftir að svona breyting hefði verið samþykki, væri vitaskuld að gera upp við sig og setja einhverjar reglur um hvaða sjúkrahús önnur en ríkisspítalar eigi að vera háð beinum fjárframlögum úr ríkissjóði. Þess vegna væri mjög ákjósanlegt að það kæmi fram, þó ekki væri nema í grg. með frv. af þessu tagi frá hæstv. ráðh., hvaða sjúkrahús það eru sem fyrir honum vaka.