19.10.1981
Efri deild: 4. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
4. mál, orkulög
Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. 3. þm. Vesturl. fyrir hans góðu undirtektir undir þetta mál, sem mér komu að vísu ekki á óvart, vegna þess að hann, sem var formaður hv. iðnn., lét ekki eftir liggja sinn hlut til þess að málið fengi á síðasta þingi sem besta umfjöllun þar, eftir því sem við varð komið, og ég veit að hlutur hans mun ekki liggja eftir nú.
Hann kom inn á ágreininginn sem er um orkuvinnsluna. Ég ætla ekki að fara að ræða það, en við þurfum að vara okkur líka á því að gera ekki of mikið úr þeim ágreiningi. Þegar við skoðum það mál í hnotskurn var ágreiningurinn um það, að sumir vildu að enginn mætti virkja stærra en 5 mw. virkjun nema eitt fyrirtæki, Landsvirkjun. Aðrir vildu að þetta væri opið fyrir þá sem hefðu vilja og getu. Það þýddi ekki það, eins og hv. 3. þm. Vesturl. sagði, að við hefðum gert ráð fyrir að fjölmargir aðrir aðilar færu nú að virkja og reka virkjanir. Ég held að aldrei hafi verið gert ráð fyrir því. En síðan þessi ágreiningur varð, sem varð þess valdandi að það var ekki alger samstaða í skipulagsnefnd orkumála frá 1977, virðist mér að þróunin sé að verða sú, að það ætti að verða grundvöllur fyrir samstöðu í þessu máli. Reynslan hefur orðið sú, að það hefur ekki verið hægt að binda sig við þau takmörk að heimila aðeins einum aðila að virkja stærra en 5 mw. Slíkar takmarkanir geta ekki staðist. Þær verða brotnar niður af nauðsyn. Reynslan er sú líka hjá okkur í dag. Síðan þessi ágreiningur olli því, að skipulagsnefnd orkumála náði ekki samstöku, hafa verið samþykkt lög á Alþingi um nýjar virkjanir sem eru stærri en 5 mw. Hitaveitu Suðurnesja hefur verið heimilað að virkja allt að 10 mw., sjóefnaverksmiðju hefur verið heimilað að virkja o. s. frv. Ég held líka að þegar nánar er að gætt, ef mætti orða það svo, segir heilbrigð skynsemi að það sé ekkert vit í því að banna einhverjum aðila, sem hefur vilja og getu til þess, að virkja. Svo þýðingarmikil eru þessi mál að hví skyldum við ekki hagnýta alla þá krafta, sem tiltækir kunna að vera í þessu mikilvæga verkefni: að hagnýta orkulindir landsins? En það kann að vera að þetta sé ekki sérstaklega raunhæft, að það verði mikið um þessi fyrirtæki. Það kemur ekki til stuðnings við landshlutafyrirtæki, sem snúa sér að þessum verkefnum, nema þau séu stofnuð. Þau hafa ekki verið stofnuð og þau verða ekki stofnuð nema viðkomandi sveitarfélög séu fús til þess og vilji slíkt.
Ég vildi nú aðeins, án þess að ég ætli hér að fara að innieiða neinar almennar umr. um þetta, vekja athygli á þessu að gefnu tilefni. Þegar hv. 3. þm. Vesturl. var að tala um þennan ágreining, sem ég vék einnig að, vildi ég undirstrika þetta sem ég sagði. Og við skulum ekki heldur gera of mikið úr þessum ágreiningi.
En skipulagsmál orkumálanna eru ákaflega þýðingarmikil. Hv. 3. þm. Vesturl. sagði, að vegna þess að þau væru þýðingarmikil ættum við ekki að flýta okkur of hratt. Ég veit hvað hann á við. Hann á við að við eigum að vanda mjög þessa endurskoðun. Ég er honum sammála um það. En við erum búnir að standa í mörg ár í þessari endurskoðun og það er kominn tími, að mínu viti, vegna mikilvægis málsins til að ljúka þessu máli sem allra fyrst. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt: Ég vonast til þess að okkur takist það á þessu þingi.