24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (792)
328. mál, gjaldtaka tannlækna
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það eru aðeins fáein orð út af ummælum hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur. Eins og ég tók fram á dögunum og vil gjarnan endurtaka nú er ég þeirrar skoðunar, að það geti vissulega vel komið til greina að lögfesta það greiðslukvittunarform sem reynt hefur verið að fá menn til samninga um. Ég teldi raunar að það væri ekkert óeðlilegt að Tryggingastofnunin stæði þannig að málum, að hún gerði þessum mönnum kosti, að það yrði gengið frá samningum eftir tiltekinn tíma, sem ég treysti mér ekki að tiltaka núna, og að honum liðnum væri tekin um það ákvörðun að þessum málum yrði, að því er þetta kvittunarform varðar, skipað með lögum.