24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (798)
329. mál, heilbrigðisþjónusta
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram að gefnu tilefni, að lög um heilbrigðisþjónustu eru í endurskoðun með fulltrúum frá öllum flokkum og ábyggilega á Framsfl. þar sinn fulltrúa. Ég man satt að segja ekki hver það er, en það er öruggt að þingflokkarnir eiga allir fulltrúa í þeirri nefnd sem er að endurskoða heilbrigðisþjónustulögin.
Hv. þm. benti á ýmislegt sem betur mætti fara í sambandi við heilsugæslustöðvar, kostnaðarskiptingu o. fl. M. a. nefndi hann þann möguleika að ríkið greiddi allan kostnað við svokallað sérhæft starfslið heilsugæslustöðvanna. Þessi hugmynd hefur vissulega heyrst áður. En ég vil minna menn á annað í þessu sambandi. Það hafa komið fram margar ábendingar um það sem betur mætti fara í sambandi við Tryggingastofnun ríkisins og starfsemi hennar. Þar væri hægt að halda langar ræður og benda á eitt og annað. Á sama tíma er ljóst að kostnaður við þennan þátt í okkar samfélagi og þá sérstaklega sjúkrahliðina er mjög verulegur. Ég held að við þurfum að átta okkur mjög vandlega á því, áður en við tökum ákvörðun um að breyta verulega til í þessum efnum, að við þurfum einnig að láta það liggja ljóst fyrir, með hvaða hætti við ætlum að fjármagna slíkt. Er Alþingi reiðubúið til að bæta mjög verulega við skattheimtuna í landinu frá því sem nú er? Ef svo er, þá eru menn tilbúnir að bæta við þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins við almenning. Annars eru menn það ekki.