19.10.1981
Neðri deild: 4. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

15. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Í því frv., sem hér er til umr., eru lagðar til breytingar á lögum um tekjuskatt og eignarskatt: Í fyrsta lagi, að Kjararannsóknarnefnd verði gert kleift að hafa áhrif á hvort og þá með hvaða hætti óskað væri ítarlegri upplýsinga um launagreiðslur og vinnutíma á launaseðlum en nú er gert. Í öðru lagi felur frv. í sér að Kjararannsóknarnefnd svo og Jafnréttisráð fái aðgang að upplýsingum um kjaramál úr skattframtölum.

Hér er um einfaldar breytingar að ræða á þeim ákvæðum tekjuskattslaganna sem nú kveða á um þetta efni. Í 1. gr. frv. er breytingin fólgin í síðustu fjórum orðum greinarinnar frá því sem nú er, en það er að ríkisskattstjóri ákveði í samráði við Kjararannsóknarnefnd hverra upplýsinga er óskað á launaseðlum, en það ákvörðunarvald hefur hingað til samkv. ákvæðum 92. gr. laga um tekju- og eignarskatt verði eingöngu á hendi ríkisskattstjóra.

Breytingin í 2. gr. frv. frá þeim ákvæðum, er nú gilda samkv. 115. gr. um tekju- og eignarskatt, er eingöngu sú, að Kjararannsóknarnefnd og Jafnréttisráð fái aðgang að upplýsingum úr skattframtölum, en samkv. núgildandi ákvæði eru það Hagstofa Íslands og Þjóðhagsstofnun, auk skattyfirvalda, sem aðgang hafa að þeim upplýsingum.

Eins og fram kemur í grg. þessa frv. væri löggjafarvaldinu með samþykkt þeirrar lagabreytingar, sem hér er lagt til að gera, fyrst og fremst auðveldað að fara að vilja Alþingis sem fram kom þegar Alþingi vorið 1980 samþykkti þáltill. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum. Þáltill. miðaði að því að láta framkvæma ítarlegar kannanir á launakjörum og tekjuskiptingu í þjóðfélaginu sem mætti verða grunnur að sanngjarnari tekjuskiptingu og hagkvæmara launafyrirkomulagi. Var tillagan útfærð í 15 liðum og skyldu kannanir miða að því að upplýsa ýmsa þætti kjaramála. Ljóst var að upplýsingaöflun sumra þeirra þátta gat tekið langan tíma, en aðra var hægt að vinna á tiltölulega skömmum tíma án mikils tilkostnaðar. Bent var á í till. að þær upplýsingar og kannanir, sem þáltill. gerði ráð fyrir, þyrftu að vera stöðugt í gangi og endurbæta eins og tilefni gæfist til hverju sinni. Var bent á að eðlilegt væri að Kjararannsóknarnefnd í tengslum við Þjóðhagsstofnun ynni það verk.

Segja má að verkaskipting þeirra stofnana, sem fengist hafa við kjararannsóknir hér á landi, sé nokkuð skýr. Þjóðhagsstofnun hefur því meginhlutverki að gegna á sviði kjararannsókna að gera grein fyrir heildarstærðum tekna, verðlags, skatta o. fl., en þetta verkefni fellur augljóslega í hennar hlut sem ráðgefandi stofnunar á sviði efnahagsmála. Hagstofa Íslands hefur augljóslega miklu hlutverki að gegna á sviði kjararannsókna með því að stofnunin hefur á hendi framkvæmd á útreikningi verðvísitölu. Og meginviðfangsefni Kjararannsóknarnefndar er að afla sem víðtækastra upplýsinga um raunveruleg launakjör og vinnutíma verkafólks og hefur því nefndin miklu hlutverki að gegna fyrir aðila vinnumarkaðarins og stjórnvöld.

Það er ljóst að verði þetta frv. samþykkt skapast möguleikar til að fara mjög fljótvirka og hagkvæma leið til að ná því markmiði sem þáltill. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum gerði ráð fyrir, þ. e. að fá fram úttekt á raunverulegri tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Einnig má benda á þá viljayfirlýsingu, sem fram kom með samþykkt rökstuddrar dagskrár á síðasta Alþingi, en með leyfi forseta segir svo í þessari rökstuddu dagskrá:

„Í trausti þess, að ríkisstj. beiti sér fyrir því nú þegar, að kannanir verði gerðar á raunverulegum launakjörum kvenna og karla svo og að kannanir þessar verði gerðar reglulega og Kjararannsóknarnefnd, Jafnréttisráði eða öðrum aðila verði gert kleift með fjárframlögum eða á annan hátt að standa fyrir þeim, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Enn má benda á að með samþykkt þeirrar lagabreytingar, sem hér er gert ráð fyrir, væri Alþingi að auðvelda að hægt væri að fá fram þær kannanir sem vilji kom fram um hjá hv. alþm. þegar þessi mál voru á dagskrá s. l. vetur.

Benda má á tölur, sem unnar voru úr skattframtölum 1979 og renna mjög stoðum undir nauðsyn þess að skapa Kjararannsóknarnefnd og Jafnréttisráði möguleika á að fá frekari upplýsingar úr skattframtölum en nú er unnt. Þær upplýsingar komu fram, að aðeins 3% kvenna, sem höfðu einhverjar launatekjur árið 1979, fóru yfir meðallaun það árið, sem þá voru 53 þús. kr. árslaun. Jafnréttisráð er sá aðili sem lögum samkv. á að fylgjast með að konum og körlum séu greidd jafnhá laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Eðlilegt og réttmætt verður því að telja að Jafnréttisráð hafi aðgang að sem gleggstum og aðgengilegustum upplýsingum um kjaramál. Það auðveldar ráðinu að sinna hlutverki sínu.

Í lögum um tekjuskatt og eignarskatt er skattyfirvöldum, eins og áður kom fram, gert skylt að veita Hagstofu Íslands og Þjóðhagsstofnun skýrslur í því formi, er þessir aðilar ákveða, um framtaldar tekjur og eignir er varða skýrslugerð þeirra. Kjararannsóknarnefnd gegnir ekki síður en þessir aðilar mikilvægu hlutverki á sviði kjararannsókna hérlendis og ber því nauðsyn til að veita Kjararannsóknarnefnd einnig aðgang að upplýsingaöflun úr skattframtölum.

Eins og uppbyggingu Kjararannsóknarnefndar er háttað byggir nefndin ekki upplýsingaöflun sína á lagalegri stoð um skyldu atvinnurekenda til að veita nefndinni nauðsynlegar upplýsingar til að kjararannsóknir þeirra komi að fullkomnum notum. En eins og allir vita er nefndin frjáls samstarfsvettvangur þeirra samtaka sem að henni standa, þ. e. Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Starfsemi þessi er að því leyti sérstæð, að hérlendis hafa bæði samtök launþega og vinnuveitenda hönd í bagga með henni, en víða erlendis, t. a. m. á hinum Norðurtöndunum, fer þessi starfsemi einhliða fram á vegum samtaka vinnuveitenda.

Kjararannsóknarnefnd framkvæmir úrtakskannanir sínar ársfjórðungslega og nær úrtakið nú til allra landshluta. Aflað er einstaklingsbundinna upplýsinga um aldur, kyn, stéttarfélag, atvinnugrein, laun fyrir dagvinnu, eftir- og næturvinnu, bónus, greiðslu fyrir vaktavinnu og ákvæðisvinnu og greiðslu í veikinda- og slysatilvikum. Úrtaksupplýsingarnar eru reglulega flokkaðar með margvíslegum hætti eftir kynjum, grófri aldursskiptingu, eftir landshlutum, atvinnugreinum, stéttarfélögum og störfum. Megininntak úrvinnslunnar er að upplýsa meðaltímakaup og einstaka þætti þess. Meginmunur á þeim upplýsingum, sem Kjararannsóknarnefnd vinnur, og á þeim upplýsingum úr skattframtölum, sem Þjóðhagsstofnun og Hagstofan vinna, er að upplýsingar Kjararannsóknarnefndar taka ekki til mánaðar- eða árslauna.

Með þeim breytingum, sem gerðar voru á skattalögum og framtölum og til framkvæmda komu á s. l. ári, opnuðust nýir möguleikar til úrvinnslu launaupplýsinga á skattframtölum. Í grg. með þessu frv. er lýst, hvernig upplýsingar úr skattframtölum hafa áður verið nýttar af Hagstofu og Þjóðhagsstofnun, og verður ekki nánar farið út í það í þessari framsögu.

Ljóst er að með breyttum skattframtölum verður unnt að fá mun ítarlegri upplýsingar en áður um laun og aðrar tekjur. Möguleikar eiga t. d. að vera á því að fá upplýsingar um launatekjur fólks sundurliðaðar eftir stéttarfélagsaðild, aldri, kyni, búsetu o. fl. Fengi Kjararannsóknarnefnd að hafa hönd í bagga með því, hvaða upplýsinga væri óskað á launaseðlum og launaskýrslum, opnuðust einnig mjög þýðingarmiklir möguleikár til að fá fram skiptingu á heildartekjum sundurliðuðum eftir dagvinnugreiðslum, eftir- og næturvinnu og öðrum greiðslum. Þar með opnuðust möguleikar til að fá fram hvaða þáttur launakjara sé mest ákvarðandi um launakjör hverrar starfsstéttar um sig, svo sem dagvinnutaxtar, yfirvinnutaxtar, afkastahvetjandi launataxtar og aðrar greiðslur eða kjaraþættir. Allar þessar upplýsingar gætu orðið mjög þýðingarmiklar fyrir hið opinbera ekki síður en fyrir aðila vinnumarkaðarins að því leyti sem þær upplýstu samsetningu launatekna og vinnumagn í einstökum greinum atvinnulífsins, en við alla kjarasamningagerð er notagildi þeirra upplýsinga, sem þar fengjust, mjög þýðingarmikið.

Það vita allir, að þeir launataxtar, sem eru deiluefni í hverri samningagerð, segja ekki nema hálfa sögu um raunverulega greidd laun einstakra starfsstétta eða hvernig tekjuskiptingin er í raun í landinu. Því skortir mikið á allar staðreyndir og þekkingu um raunverulega þróun kjaramála og tekjuskiptingu undanfarinna ára, en þekkingu á þeim er algjör forsenda fyrir því, að efnahags- og kjaramálum verði stjórnað af sanngirni með einhverjum árangri og án alvarlegra árekstra. Það, sem kannske er þó hvað alvarlegast, er að tekjulægstu hóparnir í þjóðfélaginu virðast ávallt uppskera skarðastan hlut eftir hverja samningagerð, og er það ekki hvað síst því að kenna hvað lítið er vitað um raunverulega tekjuskiptingu í landinu. Það er því trú mín, að hv, alþm. hljóti að sjá notagildi þeirra upplýsinga, sem fengjust með samþykkt þessa frv., og þá möguleika, sem þær upplýsingar sköpuðu til að byggja upp réttláta tekjuskiptingu í þessu þjóðfélagi. Það er grundvöllur þess, að við getum byggt upp sanngjarna efnahags- og kjaramálastefnu í framtíðinni.

Herra forseti. Ég sé ekki sérstaka ástæðu til að hafa þessa framsöguræðu lengri, enda liggur mál þetta mjög ljóst fyrir. Ég óska eftir að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. félmn.