24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

337. mál, nýjar kjarnorkueldflaugar í Evrópu

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Frá því að sú fsp., sem hér er á dagskrá, var borin fram, og frá því að hér fóru fram á hv. Alþingi ítarlegar umr. um þessi mál á dögunum hafa gerst athyglisverðir atburðir á þessum vettvangi sem nauðsynlegt er að hugleiða svolítið í þessu sambandi. Aðrir hafa reyndar komið inn á það í þessum umr. Það, sem ég á við, er ræða sú sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, hélt á dögunum, þar sem hann bauðst til þess, að frestað yrði framkvæmd ályktunarinnar frá því í des. 1979 um að settar skyldu upp meðaldrægar eldflaugar í Evrópu, ef Sovétríkin tækju niður þær meðaldrægu eldflaugar sem þau hafa sett upp í sínum löndum og eins og hæstv. utanrrh. gat um munu nú vera um 750 talsins, þ. e. kjarnorkuoddarnir, í um 250 eldflaugum sem beinast gegn næstum öllum meiri háttar borgum og bæjum í Vestur-Evrópu.

Fyrstu viðbrögð forseta Sovétríkjanna lofuðu ekki góða í þessu efni. Fyrstu viðbrögð hans voru þau að neita alfarið þessum tillögum Ronald Reagans. Nú þessa dagana stendur yfir fundur þeirra Helmuts Schmidts, kanslara Vestur-Þýskalands og Bresnevs, forseta Sovétríkjanna, um þessi mál, og það er ljóst af fréttum, að Helmut Schmidt hefur lagt verulegan þrýsting á forseta Sovétríkjanna í þessu efni. En þetta hlýtur að sjálfsögðu að vekja upp spurningar um það, sem reyndar var hreyft í þessum umr. hér um daginn, hver viðbrögð friðarhreyfingarinnar í Evrópu verða nú þegar þessi staða er komin upp í málinu. Ég held að það sé öllum ljóst, að eins og friðarhreyfingarnar hafa hagað sínum málflutningi og hagað sinni baráttu, þá hafa þær fyrst og fremst lagt þrýsting á ríkisstjórnir í Vestur-Evrópu, þannig að í raun, hvað sem orðum líður, hefur þessi þrýstingur verið krafa um einhliða afvopnun. Krafan um afvopnun Austur-Evrópuríkjanna eða Sovétríkjanna að sama marki hefur að sjálfsögðu verið eins og að stökkva vatni á gæs, því að ljóst er að Sovétríkin láta sér ekki segjast þótt einhverjir menn fari í göngur hér vestan járntjaldsins.

Nú hljóta menn að spyrja sjálfa sig að því og fylgjast mjög gaumgæfilega með því á næstu vikum, hvort friðarhreyfingarnar muni nú ekki breyta um tón í sinni baráttu og leggja höfuðáhersluna á að Sovétríkin og Austur-Evrópuríkin afvopnist þannig að því geysilega misvægi, sem nú er í meðaldrægum eldflaugum í Evrópu, verði eytt. Því er ekki að neita, að málflutningur hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, bæði fyrr og reyndar nú einnig, ber mjög keim af þessari einhliða afstöðu, kröfunni um einhliða afvopnun Vestur-Evrópu.