24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
337. mál, nýjar kjarnorkueldflaugar í Evrópu
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að efast um friðarvilja hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, en hann verður að gæta að því, sá hv. þm., að hann hefur ekki einkarétt á friði. Ég vil líka benda honum á í fullri vinsemd að hann hefur í nær öllum málflutningi sínum í þessu máli tekið skakkan pól í hæðina. Nú langar mig að benda hv. þm. á hvers vegna ég fullyrði þetta.
1. Alþb. tekur þátt í ríkisstj. sem hefur samþykkt þegjandi mjög umtalsverðar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Þetta hefur hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson gert og ekki krafist stöðvunar framkvæmda.
2. Kjarnorkufloti Sovétmanna er á daglegu ferðalagi frá Kólaskaga niður með Noregsströndum út á hafið milli Íslands og Grænlands. Ég sagði kjarnorkufloti, vegna þess að stór hluti af þessum flota siglir upp að Íslandsströndum. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur ekki gert kröfu um að dregið yrði úr ferðum þessara skipa eða þær stöðvaðar. Og í öllum þessum umr. hef ég ekki heyrt hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson tala t. d. um friðlýsingu norðurhafa. Þess vegna segi ég það, að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur tekið skakkan pól í hæðina. Og það, sem mér þykir sýnu lakara og hefur komið hér fram í dag, er að hann tekur lakar í tilboð Bandaríkjaforseta um afvopnunarmál heldur en Ceausescu Rúmeníuforseti. Að þessu leytinu tel ég hv. þm. taka skakkan pól í hæðina. (ÓRG: Við erum nú nokkurn veginn sammála, við Ceausescu.) Vera má að Ceausescu og Ólafur Ragnar séu nokkurn veginn sammála og þeir eru það þá líklega í fleiri málum en afvopnunarmálum. Mig langar aðeins að benda á þá staðreynd, að menn, sem hafa tekið þátt í þessari umr, greinir á um aðferð, um leiðir, hvernig megi komast sem fyrst að því marki að afvopna risaveldin. Sá ágreiningur er í því fólginn, að hv. þm. Ólafur Ragnar vill einhliða afvopnun vesturveldanna en við hinir tvíhliða afvopnun. Og við viljum að stórveldin setjist niður og ræði afvopnunarmálin vegna þess að við erum þeirrar skoðunar, að menn á borð við hv. þm. Ólaf Ragnar geri það ekki.