24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

338. mál, aðild Íslands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum

Fyrirspyrjandi (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Á undanförnum mánuðum hafa átt sér stað miklar umræður um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Fjölmargir stjórnmálaflokkar á Norðurlöndum hafa lýst yfir stuðningi sínum við þetta markmið, m. a. allir stjórnmálaflokkarnir í Noregi. Sænska þingið hefur ályktað sérstaklega um nauðsyn þess að komið verði upp kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum. Utanríkisráðherrar Norðurlanda hafa fjallað sérstaklega um þetta mál á fundi sínum í Kaupmannahöfn í sept. s. l. Fjöldahreyfingar hafa verið myndaðar til stuðnings þessum málstað og undirskriftasafnanir fara fram í ýmsum Norðurlandanna.

Það hefur hins vegar vakið athygli, að í allri þessari umræðu hefur það komið mjög skýrt fram af hálfu þingmanna, ráðherra, fulltrúa ríkisstjórna, fulltrúa fjöldasamtaka og annarra þeirra sem eru í fararbroddi þessarar umræðu á Norðurlöndum, að þeir telja að kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum geti ekki náð til Íslands, a. m. k. ekki í fyrsta áfanga, það sé nauðsynlegt að Ísland sé með einum eða öðrum hætti undanskilið frá þessu svæði. Aðspurðir nefna þeir ýmsar röksemdir þessu til stuðnings, m. a. þá, að Íslendingar hafi gert hernaðarsamning við annað risaveldanna. Engin önnur þjóð á Norðurlöndum hafi gert slíkan samning. Hann einn útiloki það, að Íslendingar geti verið með öðrum Norðurlandaþjóðum í þessu máli. Aðrir nefna að þeir telji Ísland liggja á öðru hernaðarsvæði en Norðurlöndin. Í þriðja lagi er nefnt að Íslendingar sjálfir hafi ekki sett fram nægilega skýrt kröfuna um að komi til stofnunar kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum, þá eigi Ísland að vera þar með.

Nú er það rétt, eins og komið hefur fram í umr. áður, að ýmsar skoðanir eru uppi um það á Norðurlöndum, með hvaða hætti eigi að vinna að stofnun slíks kjarnorkuvopnalauss svæðis. Sumir telja að það eigi að vera liður í samningum risaveldanna um afvopnun í Evrópu. Aðrir telja að það eigi að vera liður í víðtækara evrópsku samkomulagi. Hinir þriðju telja að Norðurlöndin eigi sjálf að hafa þar meira frumkvæði o. s. frv.

Sú fsp., sem ég hef hér borið fram á þskj. 53, snertir ekki þennan þátt málsins, heldur er hún eingöngu sett fram til þess að hér á innlendum vettvangi komi til umr. það atriði sem fjölmargir stjórnmálamenn og aðrir á Norðurlöndum hafa dansað í kringum eins og köttur í kringum heitan graut, þ. e. staða Íslands innan kjarnorkuvopnalausra Norðurlanda ef til slíks samnings kemur. Þessi fsp. er sett fram sem fyrsta skrefið til að vekja umr. um það hér á Alþingi Íslendinga, að það sé nauðsynlegt að við Íslendingar tjáum öðrum norrænum þjóðum þá skoðun okkar, að komi til viðræðna um slíkt svæði — með hvaða hætti sem það svo yrði, og menn geta haft ýmsar skoðanir á því, eins og ég rakti hér áðan — þá sé alla vega ljóst að Ísland ætli sér að vera fullgildur aðili að því svæði.

Það hefur verið nefnt í þessu sambandi í Noregi og Danmörku, að samkv. skuldbindingum Noregs og Danmerkur við Atlantshafsbandalagið eigi þessi tvö ríki að taka við kjarnorkuvopnum á tímum spennu og ófriðar. Það er athyglisvert, að á nýafstöðnu þingi danskra jafnaðarmanna, sem haldið var s. l. haust, var mörkuð sú nýja stefna, að danski jafnaðarmannaflokkurinn vill breyta þessum skuldbindingum og innleiða þá afstöðu Danmerkur, að Danir taki hvorki við kjarnorkuvopnum ástríðstímum né friðartímum, Danmörk neiti algerlega að taka við kjarnorkuvopnum.

Það hafa komið fram ýmsar yfirlýsingar hér á Íslandi um afstöðu Íslendinga til kjarnorkuvígbúnaðar Atlantshafsbandalagsins, en þó hefur það ávallt verið ítrekað af utanríkisráðherrum Íslendinga, nú síðast í dag af núv. hæstv. utanrrh., að Íslendingar ætli sér ekki að taka við kjarnorkuvopnum. Í ljósi þeirra yfirlýsinga er enn undarlegra að þessir fjölmörgu aðilar á Norðurlöndum skuli skilja Ísland út undan eins og þeir gera í umræðum.

Ég hef þess vegna, herra forseti, borið hér fram þrjár spurningar til hæstv. utanrrh. til þess að varpa kastljósinu á þetta atriði fyrst og fremst í þessari víðtæku umræðu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, þótt fjölmörg önnur atriði mætti einnig taka til umræðu. Fsp. eru:

1. Hvaða áhrif hafa skuldbindingar Íslands gagnvart NATO á möguleika landsins til að verða hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum?

2. Eru einhverjar skuldbindingar Íslands gagnvart NATO sem gætu hindrað að Ísland yrði hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum, og hverjar eru þá þær skuldbindingar?

3. Hvert er álit utanrrh. á þeirri skoðun, sem fram hefur komið á Norðurlöndum og ég hef hér vikið að, að Ísland geti ekki orðið hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum vegna hernaðartengsla Íslands við Bandaríkin?