24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í B-deild Alþingistíðinda. (816)
338. mál, aðild Íslands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst segja það, að mér finnst ekki nægilega skýrt tekið til orða þegar menn tala um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Hér er um að ræða hugmynd um það, að gefin verði yfirlýsing um áframhaldandi kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Þau eru kjarnorkuvopnalaus öll núna.
Þær fsp., sem hér hafa verið bornar fram, eru til marks um furðulegan málflutning. Það er uppáfinning Alþb. að Ísland geti ekki verið þátttakandi í slíkri yfirlýsingu. Þetta er áróðursbragð. Það er margbúið að leiðrétta þetta, en áfram er haldið að stagast á því, að Ísland geti hugsanlega ekki verið aðili að þessu. Utanrrh. svaraði þessu hér skýrt og skorinort, og það er auðvitað fráleitt að halda því fram, að Ísland geti það ekki þegar það þegar er kjarnorkuvopnalaust. Ísland hefur aldrei verið undanþegið í neinni þeirri samþykki sem ég hef séð um þetta efni. Þetta vildi ég að kæmi skýrt fram.
Að öðru leyti vil ég ítreka það, að í öllum þeim umr., sem hafa farið fram af hálfu jafnaðarmannaflokkanna í Evrópu, og þá einkanlega á Norðurlöndum varðandi þetta atriði, yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum, hefur verið lögð áhersla á það að þetta gæti einungis verið liður í stærra heildarsamkomulagi, að fyrir slíka yfirlýsingu þyrftu að koma tilslakanir af hálfu Sovétmanna og samdráttur í kjarnavopnum af þeirra hálfu. Einhliða yfirlýsing Norðurlandanna í þessum efnum án tillits til umhverfisins hefur aldrei verið á dagskrá hjá jafnaðarmannaflokkunum, hvorki á Norðurlöndum né í Evrópu. Þetta segi ég vegna þess að málflutningur hér á landi, einkum og sér í lagi hjá Alþb., hefur gefið til kynna allt, allt annað, nefnilega að einhliða yfirlýsingar væru til umræðu, en svo er alls ekki.
Hugmyndin um yfirlýsingu af þessu tagi er sú, að með því að bjóða þetta fram sé verið að knýja á um frekari viðræður milli stórveldanna um afvopnun og þetta gæti verið liður í stærra heildarsamkomulagi. Af hálfu Norðurlandanna, af hálfu jafnaðarmannaflokkanna á Norðurlöndum er ætlast til þess, að þetta knýi á um viðræður milli stórveldanna, að þetta l;nýi á um raunverulega afvopnun og takmörkun í kjarnavígbúnaði. En það hefur aldrei verið hugmyndin að einhliða yfirlýsing yrði gefin. Og skýringin er ákaflega einföld. Slíkar einhliða yfirlýsingar hafa ekkert gildi. Þær eru pappírssamkomulag, sem stórveldin standa ekki við, þegar þeim sýnist öryggi sínu ógnað. Lykilatriðið í öllum umræðum jafnaðarmanna um þetta hefur verið það, að gagnkvæmni og jafnvægi yrði að ríkja í afvopnunarmálum.