24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í B-deild Alþingistíðinda. (817)
338. mál, aðild Íslands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum
Fyrirspyrjandi (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Ég vil fagna sérstaklega þeim svörum, sem hæstv. utanrrh. gaf hér áðan. Ég held að það sé mikil nauðsyn að þau svör berist skýrt og greinilega til frænda okkar á Norðuröndum. Það er mikill misskilningur, sem Kjartan Jóhannsson sagði áðan, að menn hafi ekki rætt um málið á þann hátt að Ísland ætti ekki að vera með, eins og ég mun koma að á eftir. Ég ætla að vona að þekking hans á umræðunum á Norðurlöndum sé meiri en þessi yfirlýsing hans hér áðan bar vott um.
Það er fagnaðarefni að utanrrh. Íslands skuli lýsa því yfir hér á Alþing; Íslendinga, formlega og skýrt, að hann telji enga hindrun í vegi fyrir því, að Ísland geti orðið fullgildur aðili að slíku kjarnorkuvopnalausu svæði, hann telji ekki að Ísland hafi undirgengist neinar skuldbindingar sem hindra það, að við getum strax í upphafi slíks svæðis, ef samningur verður um það gerður, tekið í því fullan þátt. Það er ánægjulegt að hæstv. utanrrh. skuli flytja þann boðskap hér á lögþingi þjóðarinnar. Ég endurtek: Ég vona að sá flutningur berist til eyrna allra þeirra á Norðurlöndum sem tekið hafa þátt í þessari umræðu — að samkv. yfirlýsingu utanrrh. Íslands sé ekkert sem hindri það, að við getum tekið þátt í þessu svæði. Þetta tel ég vera tímamótayfirlýsingu hvað snertir formlega framsetningu þess á Alþingi Íslendinga. Slík yfirlýsing hefur aldrei fyrr verið gefin. Ég vona satt að segja að allir hv. alþm. geti sameinast um að standa að baki þessari yfirlýsingu og að þeir fulltrúar, sem við höfum kosið til þess að sitja ávettvangi Norðurlandaráðs og gegna trúnaðarstörfum okkar í norrænni samvinnu, og þeir þm. hér, sem eru í bræðraflokkasamböndum við jafnaðarmannaflokkana á Norðurlöndum, komi þessari yfirlýsingu áfram.
Það kom fram í frásögn blaða af fundi sem hæstv. utanrrh. átti með íslenskum stúdentum í Osló, að hann hefði spurt að því á fundi utanríkisráðherranna í sept. í Kaupmannahöfn, hvort Ísland væri með í umræðum um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Ef það hefur farið fram hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni var í blaðafrásögnum af þessum fundi skýrt frá því, að utanrrh. hefði sagt að hann hefði fengið loðin svör. Við, sem sitjum í hv. utanrmn. Alþingis, höfum fengið nánari frásögn af þessum fundi. Það er þess vegna fásinna og fáfræði hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni að tala hér eins og það hafi aldrei borið á góma nokkurs staðar að Ísland væri ekki með. Því miður hefur það verið eitt af megineinkennum þessarar umræðu hjá mjög mörgum á Norðurlöndum.
Ég vil svo, herra forseti, nota þetta tækifæri til þess að lýsa því hér yfir að gefnu tilefni frá hv. þm. Árna Gunnarsyni hér í dag, að Alþb. hefur lýst því yfir, nú síðast á flokksráðsfundi sínum um síðustu helgi, að við erum reiðubúnir til viðræðna við alla stjórnmálaflokkana í landinu um það, að Íslendingar sameinist um að innleiða hér kjarnorkuvopnalausa fiskveiðilögsögu, að við bönnum umferð sovéskra, breskra, bandarískra og annarra kjarnorkukafbáta um íslenska fiskveiðilögsögu. Það er formleg stefna Alþb. að bjóða til viðræðna öllum stjórnmálaflokkum í landinu um þetta nýja landhelgismál sem við teljum brýna nauðsyn, vegna þess að saga kjarnorkuvopnanna á friðartímum sýnir að alls konar slys og óhöpp geta hent og gert okkar mikilvægustu fiskimið geislavirk.
Ég hef lýst því yfir fyrir hönd Alþb. á öðrum vettvangi, að við fögnum þeim hugmyndum sem komið hafa fram hjá hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni og hv. þm. Haraldi Ólafssyni og í leiðurum Tímans, málgagns hæstv. utanrrh., að Íslendingar eigi að boða til sérstakrar afvopnunarráðstefnu um Norður-Atlantshafið. Ég gerði meira að segja hv. þm. Árna Gunnarssyni tilboð um það s. l. sumar, að Alþb. og Alþfl. hefðu forgöngu um að til slíkrar ráðstefnu yrði boðað. Það væri ánægjulegt framhald af þeirri yfirlýsingu sem hér hefur verið gefin í dag, ef allir flokkar á Alþingi Íslendinga gætu sameinast um að við setjum hér lög sem banni umferð allra kjarnorkukafbáta um okkar fiskveiðilögsögu. Það eru ekki bara sovéskir kafbátar sem sigla hér í kring, eins og hv. þm. Eiður Guðnason hefur getið um, heldur einnig bandarískir og breskir kjarnorkukafbátar. Við þurfum að hefja nýja sókn í okkar landhelgismáli og tryggja að miðin verði varin gegn geislavirkni og óhöppum í framtíðinni. Alþingi Íslendinga, allir sem einn, þarf að taka undir þá stefnu að innleiða hér lög um kjarnorkuvopnalausa fiskveiðilögsögu. Við Íslendingar, í samvinnu við nágrannaþjóðir okkar, boðum síðan til sérstakrar alþjóðlegrar ráðstefnu um afvopnun á Norður-Atlantshafi.