24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

338. mál, aðild Íslands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Vegna þeirrar umr., sem hér hefur farið fram um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, held ég að ég verði að upplýsa það, að ég hef setið viðræðufundi bræðraflokkanna á Norðurlöndum um þetta mál, kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, og á þeim fundum hefur það ævinlega og ávallt komið fram mjög skýrt, að hugmyndin um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd væri hluti af mun stærri áætlun. Ég held að það hljóti allir, sem hafa lesið sér eitthvað til um þessi mál, að vita að hugmyndin um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd er liður í margfalt stærri áætlun, — áætlun sem nær til Evrópu yfir höfuð, ekki aðeins Vestur-Evrópu, heldur líka Austur-Evrópu.

Mig langar að minna hv. þm. á að þessi hugmynd er ekki að koma fram núna fyrst. Höfundur hennar er ekki í þessum þingsölum, heldur má rekja þessa hugmynd til sænskra þingmanna og síðan til Kekkonen-áætlunarinnar svokallaðrar. Þessi hugmynd hefur verið til umræðu á Norðurlöndum í u. þ. b. 12 ár eða svo, 12–15 ár, en blossar nú upp á síðustu misserum vegna ýmissa atburða sem hafa gerst.

Ég vil segja það vegna ummæla hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, að það verður mér sífellt meira áhyggjuefni hve mikil umferð kjarnorkukafbáta og kjarnorkuvopnabúinna skipa er um norðurhöf. Ég er sannfærður um að sú hætta, sem af þessu stafar, er mun meiri en við Íslendingar gerum okkur almennt ljóst. Þessi hætta steðjar ekki bara að okkur, hún steðjar að nágrannaþjóðum okkar Grænlendingum og Færeyingum, sem eins og við byggja nær alfarið afkomu sína á fiskveiðum. Ég vil taka undir það með hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, að ég held að það geri sér enginn ljósa grein fyrir því, hvað gæti gerst og hvað gæti borið að höndum ef slys yrði í hafdjúpunum, t. d. á hrygningarslóðum þeirra fiskstofna sem við byggjum afkomu okkar á.