24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (827)
338. mál, aðild Íslands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Hv. 11. þm. Reykv. vék hér að viðbrögðum í sambandi við 50 mílna landhelgisútfærsluna. Hann sagði: „Við fengum 50 mílurnar.“ Og hann sagði líka: „Við fengum 200 mílurnar.“ En hann vék ekki að viðbrögðum hv. fyrrv. sjútvrh. Lúðvíks Jósepssonar þegar tillögurnar um 200 mílurnar komu fram. Þessi hv. fyrrv. sjútvrh. og formaður Alþb. sagði þá: Það liggur ekkert á með 200 mílurnar. Við skulum bíða eftir hafréttarráðstefnunni.