24.11.1981
Sameinað þing: 25. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

38. mál, fangelsismál

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 38 hef ég leyft mér ásamt þeim hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni og Baldri Óskarssyni, sem sat hér inni um tíma, — á Alþingi vel að merkja, — að bera fram till. til þál. svohljóðandi:

„Alþingi samþykkir að fela ríkisstj. að skipa 7 manna nefnd til að gera heildarúttekt á fangelsismálum. Nefndin skal í kjölfar þeirrar úttektar skila áliti um þær úrbætur í fangelsismálum, sem henni þykja knýjandi, svo og áætlun um framtíðarskipan þessara mála.

Nefndin skal skipuð fjórum fulltrúum samkv. tilnefningu þingflokka, tveim fulltrúum frá félagssamtökunum Vernd og einum fulltrúa dómsmrn.

Dómsmrh. skipar formann nefndarinnar úr hópi nefndarmanna. Nefndin skal skila áliti fyrir þingbyrjun 1982.“

Í grg. með till. segir svo:

Fangelsismál okkar hafa mjög verið í sviðsljósi að undanförnu og mikið um þau rætt og ritað. Hér er um viðkvæman og vandmeðfarinn málaflokk að ræða, þar sem oft vill verða skammt öfga á milli. Það fer hins vegar naumast á milli mála, að hreinskilin og opinská umræða hlýtur að vera af hinu góða, og Alþingi hlýtur að vera sjálfsagður vettvangur slíkrar umræðu.

Þegar menntunarmál fangavarða komu til umræðu á Alþingi í fyrra hlutu fangelsismál almennt að verða fyrirferðarmest í umr. og þar kom margt athyglisvert fram í máli manna.

Fsp. frá hv. Salome Þorkelsdóttur um tiltekna þætti í fangelsismálum fékk ekki neina umr., en skriflegt svar ráðh. barst við fsp.

Í umr. undangenginna þinga um geðheilbrigðismál hefur málefni geðsjúkra afbrotamanna mjög borið á góma, en þar er á ferðinni eitt stærsta vandamál í fangelsismálum okkar. En heildarumræður um alla þætti fangelsismála, vandamálin þar og framkvæmd yfirleitt, hefur ekki farið fram á þingi og hafa þó oft gefist til þess ástæður. — Hér miða ég að sjálfsögðu við minn þingtíma. En ég vek athygli á að alvarleg og ítarleg umræða um fangelsismál mun ekki hafa farið fram hér á hinu háa Alþingi síðan 1968 og 1969. Þáv. hv. þm. Vesturl., Jónas Árnason, flutti hér mjög athyglisverða till. um úrbætur í fangelsismálum og rakti þar mörg dæmi um aðbúnað, framkvæmd, möguleika þeirra, sem úr fangelsi losna, og spurninguna um hversu langt ætti yfirleitt að ganga í refsingum af þessu tagi og hversu á annan hátt mætti bregðast við afbrotum, einkum hinum smærri. Mér er tjáð að í kjölfar þessarar till. hafi ýmsar lagfæringar verið gerðar, en síðan ekki söguna meir. Vissulega er það íhugunarefni, að það skuli vera komið á annan áratug frá því að löggjafinn síðast fjallaði rækilega um þessi mál.

Nú í sumar hefur séra Jón Bjarman fangaprestur vakið verðskuldaða athygli á fjölmörgu í fangelsismálum okkar. Hér segir í grg., að flm. þessarar till. muni leita liðsinnis hans er málið kemur til umfjöllunar Alþingis.

Í kjölfar þess, sem séra Jón Bjarman hefur látið frá sér fara, hafa svo birst viðtöl og greinar um þessi mál sem vekja ekki síður fjölmargar spurningar sem ósvarað er að miklu eða öllu leyti. Skemmst er að minnast viðtalsbókarinnar við Sævar Ciecielski, Stattu þig drengur, sem er þess eðlis, að löggjafinn, Alþingi, hlýtur að leggja að eyru og fá svör við ýmsum þeim spurningum sem vakna við lestur þeirrar bókar. En til þess að Alþingi geti um málið fjallað heildstætt og vegið og metið allar aðstæður er óhjákvæmilegt að fram fari hlutlaus úttekt á fangelsismálum okkar og stöðu þeirra í dag.

Fullyrðingar allar er hollast að spara, en engum dylst þó að í svo vandmeðförnum málaflokki getur vart hjá því farið að ýmislegt sé öðruvísi en vera ætti. Þar geta komið til mannleg mistök, einstrengingsháttur og jafnvel mannúðarskortur gagnvart því ógæfufólki sem oft á sér fáa formælendur, ef nokkra. Hvergi er í raun meiri hætta á valdaníðslu en einmitt gagnvart þessu fólki og úr því verður að fá skorið óyggjandi, að slíkt eigi sér ekki stað, og ef svo er, að gripið sé þá til harkalegra gagnráðstafana.

Í ljósi þeirrar úttektar, sem lögð verður fyrir Alþingi, munu svo fara fram enn frekari umræður og í væntanlegum tillögum um frekari úrbætur gefst svo enn færi á að fjalla um þessi mál. En þögn um þau á Alþingi í ljósi þess, sem um málin hefur verið rætt og ritað úti í þjóðfélaginu, er af hinu illa, vekur enn frekari tortryggni og grunsemdir og er í raun ekki réttlætanleg.

Sú spurning leitar mjög á flm., hvort fangelsunum sé ekki beitt um of með tilliti til þeirra áhrifa. sem slík frelsissvipting hefur í för með sér. Nefndinni er því nauðsyn að kanna rækilega hvort önnur viðurlög en fangelsun eigi ekki í mörgum tilfellum meiri rétt á sér.

Hér er að stórri spurningu komið og ég veit að hv. 2. flm. þessarar till. Guðmundur J. Guðmundsson, mun koma rækilega inn á það atriði. Ég ætla því aðeins að varpa fram hér og nú tveim atriðum.

Allir þekkja nafngiftina betrunarhús sem annað orð yfir fangelsi eða a. m. k. vissa gerð þeirra. Samkv. því ættu þessar stofnanir að vera til betrunar, gera einstaklinginn, sem þar dvelst, að betri manni. Er það nú svo, að þessi nafngift sé í einhverju réttmæt, eða er hún öfugmæli? Þar svarar hver fyrir sig með tilliti til þess sem hann veit dæmi um.

Annað atriðið er varðandi eðli afbrots og ástæður allar þegar til hörðustu refsinga er gripið, hversu réttlætanleg og um leið æskileg frelsissviptingin er, ekki aðeins vegna einstaklingsins, heldur og frá samfélagslegu sjónarmiði. Inn í þessa mynd koma geðsjúkir alveg sérstaklega. Það er fyllilega ástæða fyrir okkur að staldra hér við og reyna á hlutlægan hátt að gera okkur sem besta grein fyrir gildi og tilgangi frelsissviptingar sem refsingar. Varðandi störf nefndar með heildarúttekt að markmiði er eðlilegt og sjálfsagt að kanna þetta grundvallaratriði alveg sérstaklega. Ég minni á fleyg orð, sem munu hafa verið sögð af séra Árelíusi Níelssyni, á aðalfundi Verndar nýlega, þar sem hann var að skora á okkur að vera fyrstu þjóðina, sem legði fangelsi niður. Sannarlega er þetta umhugsunarefni frá manni sem hefur svo mjög nálægt þessum málum komið og hefur kynnt sér þau eins og séra Árelíus hefur gert.

Ég vil minna enn frekar á nokkur atriði sem komið er inn á í þessari grg. Í þessu máli hæfa engir dómar engar alhæfingar til eða frá. Hlutlaus úttekt á að vera öllum nauðsyn. Eflaust þykir mörgum þó glöggt af tillgr. að flm. telji að úrbætur þurfi og nýtt heildarskipulag þurfi til að koma. Úr því dreg ég ekkert. Alveg sérstaklega skal þar minnt á þá fanga sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Þar er vandinn viðkvæmastur og erfiðastur úrlausnar, svo sem glögglega var rakið hér áður í tengslum við till. um geðheilbrigðismál sem samþykkt var sem ályktun Alþingis í fyrra.

Á ráðstefnu Verndar um þessi mál, vanda geðsjúkra afbrotamanna, sem haldin var s. l. vor, kom margt fram sem sannarlega vakti til athugunar og umhugsunar. Inn í fangelsismál okkar blandast að sjálfsögðu ýmis þjóðfélagsleg vandamál, sem nú eru mjög ofarlega á baugi: áfengisvandamálið, fíkniefnavandamálið, svo þau stærstu séu dregin fram í dagsljósið. Svo miklir orsakavaldar eru hér á ferð að í raun er ekki hægt að ræða þessi mál, afbrotamál yfirleitt, án þess að þessir vímugjafar komi meira og minna inn í myndina. Öll litu þessi mál allt öðruvísi út ef svo væri ekki. Inn í það fléttast svo ótalmargt sem ekki er þörf á að rek ja hér. En hollt er okkur öllum að hafa þetta hugfast í allri umræðu og umfjöllun um þennan málaflokk og vímugjafarnir, áfengi sem fíkniefni, eiga að skoðast m. a. í ljósi þessa. Í allri umræðu okkar um betra þjóðfélag og fegurra mannlíf ættum við að líta á vímugjafana af raunsæi, með opnum augum, og í aðgerðum okkar öllum ættum við að miða við hversu fyrirbyggjandi aðgerðir í þeim efnum og hjálparaðgerðir einnig eru afgerandi þættir til að létta þann vanda sem við erum nú sérstaklega að ræða. En þetta átti aldrei að vera nema þörf áminning, enda vart hægt að fjalla hér um án þess að að vímugjöfunum sé vikið um leið þeim vímugjöfum sem vefa marga örlagaþræði allt of margra þeirra sem við erum að dæma og refsa fyrir afbrot af ýmsu tagi.

Varðandi önnur fíkniefni en áfengi og afbrot þeim tengd verður eflaust umræða í vetur, þar sem stjórnvöld fjalla nú sérstaklega um þá óhugnanlegu þróun sem þar á sér stað og hversu við skuli bregðast. Enda þótt vímugjafarnir verði hér ekki teknir frekar inn í almennt fer þó ekki hjá því, að þeir eru afgerandi oft og tíðum varðandi þá afbrotamenn sem við geðræn vandamál eiga að etja, auka vanda þeirra og gera öll þeirra mál oft enn erfiðari úrlausnar en ella væri og enn vandmeðfarnari, enn viðkvæmari. Á þeim á þess vegna að taka á sérstakan hátt, en ekki á þann hátt sem nú er því miður í allt of ríkum mæli gert.

Ég ætla að vona að þetta verði upphaf málefnalegrar og hreinskiptinnar umr. hér á eftir.

Til þess að gera megi sér nokkra grein fyrir því, hve mikið umfang það er sem við erum hér að fjalla um, ætla ég að leyfa mér að vitna í nokkra minnispunkta sem séra Jón Bjarman fangaprestur hefur látið mér í té sem innlegg í þessa umr. Með leyfi forseta segir séra Jón Bjarman í bréfi til okkar flm.:

„Að minni hyggju þarf úttekt að ná til eftirtalinna þátta, sem allir tengjast fangelsismálum, og jafnframt til þeirra laga sem hver þáttur fyrir sig byggir á:

Íslenskar refsivistarstofnanir, hlutverk þeirra, rekstur þeirra, starfslið o. fl. það sem lýtur að rekstrinum. Framkvæmd skilorðsbundinna losana úr refsivist, náðana, uppgjafar saka, skilorðsbundinna dóma, frestun á ákæru og mat á gagnsemi þessara þátta refsikerfisins. Framkvæmd gæsluvarðhalds vegna rannsókna í sakamálum, rekstur sérstakrar stofnunar í því skyni, mat á reglum sem varða frelsisskerðingu sakaðra manna vegna málsrannsókna. Réttarúrræði vegna manna sem sýknaðir eru fyrir dómi vegna ósakhæfni, en jafnframt úrskurðaðir til öruggrar gæslu á viðeigandi hæli. Hinn almenni seinagangur réttarkerfisins og oft og tíðum langa bið frá því brot er tekið til rannsóknar og þar til dómur er upp kveðinn og til fullnustu kemur. Starfsemi frjálsra félagasamtaka til aðstoðar mönnum í fangelsum og þeim sem þaðan losna. Stuðningur ríkis og sveitarfélaga við slík samtök. Mat á beitingu ákvæða stjórnarskrárinnar um náðun og uppgjöf saka svo og 40. gr. almennrar hegningarlaga um reynslulausn og framkvæmd slíkra ákvarðana.

Upptalning mín verður ekki lengri þó hún gæti verið miklu lengri,“ segir séra Jón Bjarman.

„Ég er fús til að koma til viðræðna við þn. þá sem um þetta mál kann að fjalla áður en það kemur til endanlegrar ákvörðunar hins háa Alþingis.“

Ég vek athygli á því, að séra Jón Bjarman lýsir yfir sérstökum vilja til viðræðna við þá þn. sem fær þetta mál til meðferðar. Ég efa ekki að það væri nefndinni mjög til hjálpar í starfi hennar, svo víðtæka og yfirgripsmikla þekkingu sem hann hefur á þessum málum almennt. En þessi upptalning hans á verkefnunum, sem við væntanlegri nefnd blasa, gefur okkur nokkra hugmynd um það mikla víðfeðmi sem hér er um að ræða. Nauðsyn þessarar úttektar verður a. m. k. enn ljósari þegar þessi verkefnalisti, sem Jón Bjarman segir að engan veginn sé tæmandi, er skoðaður.

Ég minnti í grg. á bókina: Stattu þig drengur. Ég ítreka það hér og nú, að þar koma fram ýmis atriði sem eru allrar athygli verð og láta engan mann ósnortinn með öllu. Um allt það mál skal hins vegar ekki rætt frekar hér, hvorki með tilvitnunum né því síður einhverjum fullyrðingum í tengslum þar við. Bókin er samt að vissu marki hólmgönguáskorun til okkar allra, til þjóðfélagsins í heild, og við eigum að bregðast við henni sem við best gerum á hverju því sviði sem sú lesning snertir okkur og það er víða, vægast sagt.

Ég segi það hér í grg. og við flm., að fá mál eigi meiri heimtingu á raunsærri skoðun, umræðum og í framhaldi af þeim og nauðsynlegu starfi nefndar, sem gerði úttekt og tillögur til Alþingis, yrði þá af mikilli alvöru snúið sér að því að gera þær umbætur sem knýjandi teldust. Þetta ógæfufólk á þar ótvíræðan rétt. Rétti þess má löggjafinn aldrei gleyma, heldur gæta hans sem best.

Í till. okkar er vikið að nefndarstarfi og uppbyggingu þeirrar nefndar. Það er sjálfsagt að hver þingflokkur tilnefni aðila í þessa nefnd til nánari tengingar málsins við Alþingi á öllum stigum, Að sjálfsögðu eiga tilnefningar ekki að vera bundnar við alþingismenn. Fulltrúi ráðuneytisins er sjálfsagður til upplýsingagjafar og sambands við yfirvöld dómsmála. En í till. er gert ráð fyrir sérstöku vægi í nefndinni hvað snertir Félagasamtökin Vernd. Við flm. leggjum mikla áherslu á virka og sterka þátttöku frá þeim ágæta félagsskap í öllu því starfi sem till. beinist að. Þeir, sem þar starfa, vita öðrum betur hverju er ábótavant, hvað má betur gera, hvernig skal á málum haldið, hvert framtíðarfyrirkomulag skal vera. Óeigingjarnt og fórnfúst starf þessara samtaka verður seint metið til fulls, og hversu vel sem við gerum í þessum málum verður lifandi og styrk þátttaka þessara samtaka brýn nauðsyn engu að síður. Þeirra starf hefur beinst öllu öðru fremur að hinum beina mannlega þætti, hjálparstarf sem oft hefur borið ótrúlegan ávöxt. Löggjafinn getur sannarlega verið þakklátur fyrir þetta starf, og okkar er því að styrkja sem best þessa starfsemi, ekki aðeins með fjárhagslegum stuðningi, svo mikilvægur sem hann er, heldur með beinum aðgerðum og virkari þátttöku um leið. Við flm. leggjum því höfuðáherslu á að Vernd komi svo rækilega inn í þessa nefnd sem till. gerir ráð fyrir.

Ég hef ekki hugsað mér að hafa þessa framsögu lengri. Hún er fyrst og fremst hugsuð sem opnun þessa máls á Alþingi, opnun sem ég tel nauðsynlega, sem ég tel tímabæra, sem ég tel óhjákvæmilega.

Ég vil leggja til að þessu máli verði vísað til hv. allshn. að lokinni þessari umr.