25.11.1981
Efri deild: 15. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (847)

104. mál, sjómannalög

Stefán Guðmundsson:

Forseti. Ég vil aðeins segja hér nokkur orð í sambandi við það frv. sem hér er flutt af hv. þm. Finni Torfa Stefánssyni.

Í síðustu kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna, er undirritaðir voru 25. febr. s. l. , varð að samkomulagi að fara þess á leit við sjútvrn. að það hlutaðist til um að skipuð yrði nefnd til að endurskoða gildandi lög og reglur um réttindi og skyldur sjómanna og útvegsmanna í veikinda- og slysatilvikum sjómanna svo og um líf- og örorkutryggingar og gildissvið þeirra trygginga og gera tillögur til úrbóta í þessum efnum.

Nefnd þessi hefur hafið störf. Hún er, að ég best veit, skipuð þremur fulltrúum frá sjómönnum sjálfum, þremur fulltrúum frá útvegsmönnum, formaður nefndarinnar er tilnefndur af rn. Starfssvið þessarar nefndar er ekki aðeins, eins og upphaflega var gert ráð fyrir, einskorðað við að endurskoða 18. gr. sjómannalaga, heldur hefur það verið útvíkkað í það að endurskoða öll sjómannalögin.

Ég verð að segja að ég tel vafasamt, svo að ekki sé meira sagt, að vera að hrófla við þessum málum hér einmitt nú, meðan þau eru í vinnslu í nefnd, sem nú er að störfum og er skipuð fulltrúum þeirra aðila sem málið fyrst og fremst snertir. Ég tel fráleitt, eins og ég sagði hér áður, að sjá ekki til hvað fulltrúar þessarar atvinnugreina koma til með að leggja fram í þessu máli, en tel eðlilegt að Alþingi ætli þeim eðlilegan tíma til að ljúka störfum sínum í þessu svo sannarlega þýðingarmikla máli sjómanna.

Ég gæti sagt ýmislegt fleira um þessi mál en ég sé ekki ástæðu til þess hér og nú. Í grg. segir flm. m. a., eins og hann kom hér inn á áðan: „Útgerðarmaður situr mjög yfir höfðum skipverja í þessu máli, þar sem hann á þess kost, ef hann svo kýs, að svipta skipverja réttindum þessum með einfaldri uppsögn.“ Ég ætla ekki heldur að ræða þennan þáttinn frekar þótt ég gæti það vissulega. En ég tel bara að nú sé ekki staður og stund til að ræða það mjög ítarlega, vegna þess að ég tel að hitt sé öllu heppilegra, að þeir menn, sem til þess hafa verið kjörnir af hagsmunaaðilunum, fái að segja sitt álit hér á. Varðandi þennan kafla grg. vildi ég að endingu segja það, að í mínum huga er það nú orðið svo, að menn hræða ekki lengur með sögunum um ljóta karlinn í þessum málum þegar verið er að tala um útgerðarmenn.