25.11.1981
Efri deild: 15. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (848)

104. mál, sjómannalög

Jón Sveinsson:

Herra forseti. Hugmyndin að baki því frv., sem hér er til umr., um breytingu á 4. mgr. 18. gr. sjómannalaganna, er vissulega góð og ástæða til að taka undir hana, enda um réttlætismál sjómanna að ræða eins og fram kemur í grg. Rétt er þó að minnast þess, að með lögum samþykktum á Alþingi 21. mars 1980 voru gerðar verulegar breytingar á sjómannalögum frá 1963 til samræmis við fyrirheit til sjómanna um aukin félagsleg réttindi. Var meginmarkmið þeirra laga annars vegar að auka rétt sjómanna til greiðslu launa í slysatilfellum til samræmis við aukin réttindi landverkafólks á þessu sviði, sbr. 4., 5. og 6. gr. laga nr. 19 frá 1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Hins vegar var markmið laganna að tryggja sjómönnum réttmætar kaupgreiðslur eftir að afskráning hefur farið fram, en til þess tíma hafði verið á því nokkur misbrestur. Í meðförum þingsins breyttist frv. sjómönnum í hag. Í upphaflega frv. var gert ráð fyrir þriggja ára samfelldum starfstíma hjá sama útgerðarmanni eða á sama skipi.í stað tveggja í lögunum, sem samþykkt voru, og hins vegar fimm ára samfelldri ráðningu hjá sama útgerðarmanni í stað fjögurra ára í lögunum. Byggði frv. á áður samþykktum lögum um réttindi verkafólks frá 1979, sem áður er getið. Gengu endanleg lög því lengra en lög um verkafólk og lengra en upphaflegt frv. Spurning kann því að vera hvort ekki hefði verið eðlilegra og réttara að sams konar breyting hefði samhliða þessari breytingu átt sér stað á lögum um rétt verkafólks frá 27. apríl 1979. Hafa ber einnig hugfast að sú breyting, sem gerð var á sjómannalögum 1980, mætti nokkurri andstöðu útgerðarmanna, hagsmunasamtaka þeirra og einstakra alþm., enda gengið mun lengra en fyrri lagaákvæði sögðu til um. Má því enn búast við slíkri andstöðu, einkanlega þar sem svo stutt er liðið frá þeirri meiri háttar breytingu sem átti sér stað 1980. Það eitt út af fyrir sig ætti þó ekki að hræða menn frá stuðningi við frv.; enda um réttlætismál sjómanna að ræða, eins og fyrr er að vikið.

Umhugsunarvert er hins vegar, hvort ekki hefði verið nauðsynlegt að taka fyrri mgr. 18. gr. sjómannalaganna jafnframt til endurskoðunar samhliða þeirri breytingu sem hér er gert ráð fyrir. T. d. segir í niðurlagsákvæði 3. mgr. 18. gr., með leyfi forseta:„ Skipverji, sem forfallast vegna veikinda, á þó ekki rétt til launa í fleiri daga en hann hefur verið í þjónustu útgerðarinnar.“

Loks finnst mér ekki fulls samræmis gæta í upphafi mgr. þeirrar sem hér er til umr., þar sem segir, með leyfi forseta:

„Hafi skipverji starfað við sjómennsku í tvö ár skal hann“ o. s. frv. og síðan niðurlagsákvæði greinarinnar, þar sem segir m. a., með leyfi forseta: „en í allt að tvo mánuði eftir fjögurra ára samfelld störf við sjómennsku.“ Virðist mér hér sem skipverji þurfi ekki samkv. greininni að hafa starfað við sjómennsku samfellt í tvö ár til þess að njóta þeirra réttinda sem greinin gerir ráð fyrir, en hins vegar eru fjögurra ára samfelld störf gerð að skilyrði til að njóta aukinna réttinda samkv. niðurlagi greinarinnar. Hér held ég að það skilyrði verði að setja í upphafi, að skipverji hafi starfað við sjómennsku í tvö ár samfellt, þar sem annað mundi án efa leiða til verulegrar óvissu, öryggisleysis og oft og tíðum sönnunarerfiðleika. Væri fróðlegt að heyra sjónarmið flm. hvað þessi atriði snertir.