26.11.1981
Sameinað þing: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

50. mál, tjón á Vesturlínu

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hæstv. iðnrh., að við getum alltaf átt von á einhverjum skemmdum á byggðalínunum eða rafmagnslínunum. Það er alveg rétt. Það er ekkert óvenjulegt. Það, sem er óvenjulegt við það mál sem við ræðum hér, er að skemmdirnar eru með óvenjulegum hætti og ber að með óvenjulegum hætti. Ég get tekið undir það sem hv. 5. þm. Vestf. sagði. Ég hafði heyrt það sem hann nefndi hér að væri óeðlilegt. Og það væri hægt að nefna fleira.

Aðalatriðið er að upplýsa þetta mál vegna allra, vegna Vestfirðinga og vegna almennings. Það þarf m. a. að hyggja að því hvort ekki sé rétt að þessi rannsókn verði framkvæmd af hlutlausum aðila, þó að ég sé ekki með neina óeðlilega tortryggni í garð Rafmagnsveitna ríkisins. Það er ekki eðlilegt að sá aðili, sem getur verið valdur að tjóninu, eigi að kveða á um það, hvers vegna tjónið hefur borið að og hvernig það hefur borið að.