26.11.1981
Sameinað þing: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
78. mál, viðaukatillaga við vegáætlun
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Við afgreiðslu vegáætlunar á s. l. vori kom það fram í nál. þegar vegáætlun var afgreidd, að hæstv. samgrh. mundi beita sér fyrir því innan ríkisstj., að lögð yrði fram við aukatillaga við þessa samþykktu vegáætlun sem fæli í sér fjárútvegun til framkvæmda vegna hinna svokölluðu Ó-vega. Það hefur verið undanfarið allmikil umræða um það, til hvaða ráðstafana væri hægt að grípa til að koma í veg fyrir eða reyna að koma í veg fyrir slys á þessum svonefndu Ó-vegum, sem eru Ólafsfjarðarmúli, Ólafsvíkurenni og Óshlíð, og ég hygg að allir séu um það sammála, að einskis má láta ófrestað til að hægt sé að ráðast í þær framkvæmdir. Ég hef því lagt fram fsp. til hæstv. samgrh. um það, hvenær sé að vænta þeirrar viðaukatillögu um vegáætlun, sem um var rætt í sambandi við afgreiðslu vegáætlunar á s. l. vori, varðandi þessar framkvæmdir og fjárútvegun til þeirra. Það er nauðsynlegt að fara að fá um það vitneskju, hvort hæstv. ráðh. hefur komið því í gegnum ríkisstj. að þetta verði gert og þá hvenær. Sé það ekki fyrir hendi verður að sjálfsögðu að grípa til einhverra annarra ráða. Ég er ekki í neinum vafa um að meiri hluti er fyrir því hér á hv. Alþingi að þetta verði gert.