26.11.1981
Sameinað þing: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (871)

78. mál, viðaukatillaga við vegáætlun

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgrh. fyrir svör við þessari fsp. Það er augljóst að málið er í höndum ríkisstj. núna, og ég vænti þess, að hæstv. ráðh. takist að sannfæra sína samráðherra um að þetta sé nauðsynlegt, þurfi að gerast. Spurningin er þá hvort það tekst og hvenær megi vænta að því verki verði lokið að sannfæra hina hæstv. ráðherrana. Ég vil í lengstu lög vona að það taki sem skemmstan tíma, en vil þó að hæstv. ráðh. viti það, að þyki mönnum dragast úr hömlu að slíkt komi hér fram á Alþingi, þá er öruggt mál að vel verður ýtt á eftir því, að þetta gerist það tímanlega að unnt sé að koma við framkvæmdum strax á næsta vori. Það þarf að gerast tímanlega, helst um eða fljótlega upp úr áramótum, þannig að hægt sé að fara að vinna að undirbúningi ef á að ráðast í framkvæmdir á komandi sumri. Ég treysti hæstv. ráðh. til að ýta vel á eftir mönnum í hæstv. ríkisstj. þannig að þeir vinni vel og málinu verði borgið. En verði það ekki tiltölulega fljótlega upp úr áramótum sem slík vitneskja liggur fyrir, þá verður að grípa til annarra ráða.