26.11.1981
Sameinað þing: 27. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
11. mál, stóriðnaður á Norðurlandi
Stefán Jónsson:
Herra forseti: Efnislega er þessi till. til þál. hógværlega og skynsamlega orðuð. Ég hlýt að lýsa yfir fylgi við það sem er kveðið á um í þessari till., að gerðar verði sérstakar athuganir á því sviði sem hér um ræðir, þ. e. sem lúti að orkufrekum iðnaði í Norðurlandskjördæmi eystra, svæðum við Eyjafjörð og í grennd við Húsavík. Ég skil það svo og einnig af ræðu hv. l . flm., Lárusar Jónssonar, að hér sé átt við að gerð verði gangskör að ítarlegri og alhliða athugun á þessum málum og niðurstaðan verði síðan lögð til grundvallar skynsamlegum ákvörðunum.
Ég þakka 1. flm. sérstaklega fyrir það, að hann skyldi í framsöguræðu sinni núna hlífa okkur við því að vitna til hins ágæta árangurs sem náðst hefði í orkufrekum iðnaði í Straumsvík og uppi á Grundartanga í Hvalfirði, svo sem samþm. hans, hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson, gerði í framsöguræðu fyrir stóriðjumáli hér í haust. Nú vil ég ekki og alls ekki fara að nudda hv. þm. Lárusi Jónssýni upp úr slíkum orðagraut ellegar færa þetta sérstaka þingmál, sem hann mælir hér fyrir, yfir í reynsluna af járnblendiverksmiðjunni við Grundartanga eða reynslu okkar af samstarfi við erlendan aðila í Straumsvík. En ég hlýt að undirstrika nokkur varhugaverð atriði tengd orkufrekum iðnaði eins og þau blasa við mér.
Í fyrsta lagi er það þetta atriði sem hver stjórnspekingurinn af öðrum étur nú upp eftir hverjum hagfræðingum og lögfræðingnum á fætur öðrum, að við höfum fullnytjað gæði landsins og þ. á m. fiskstofnana í kringum þetta land, við höfum gert það nú í þegar, og þess vegna eigum við ekki annarra kosta völ til þess að renna stoðum undir atvinnulíf á Íslandi en að byggja upp iðnað og þá fyrst og fremst orkufrekan iðnað. Ég vil minna á það, að í sumar leið og einmitt á þeim mánuðum þegar sérfræðingarnir héldu fyrirlestra sína á fjórðungsþinginu á Húsavík, þá vantaði 700 manns í fiskiðnað til þess að vinna til útflutnings fiskafla okkar á Austurlandi, 1000–1500 manns á Norðurlandi og talið vera í kringum 1200 manns á Vestfjörðum þar sem afli barst þá mjög mikill á land. Samt er verið að tala um það, að sjávarútvegurinn og fiskiðnaðurinn geti ekki tekið við fleira starfsfólki. Í sömu andránni vil ég vekja athygli á niðurstöðu ráðstefnu þeirrar sem Verkfræðingafélag Íslands og Félag líffræðinga hélt á Hótel Loftleiðum hér í Reykjavík fyrir fimm árum, þar sem rætt var um möguleika Íslendinga á framleiðslu eggjahvítuefnaríkrar fæðu. Niðurstaða þeirrar ráðstefnu var sú, að Íslendingar gætu brauðfætt 36 milljónir manna á ári með eggjahvítuefnaríkri fæðu og þar væri orka og vinnuafl ekki takmarkandi. Með þeirri orku, sem við þá hefðum upp á að hlaupa, og með því vinnuafli, sem þá hefðum upp á að hlaupa, ef við tækjum svo þá pólitísku ákvörðun að veðja meira til langframa á framleiðslu á eggjahvítuefnaríkri fæðu, þá gætum við gert þetta. Ég hef orðað það þannig áður, að mér sé kunnugt um að margur maðurinn hrópi á banastundu sinni á mat, en enginn vissi ég til að hrópað hefði á ál eða kísiljárn.
Okkur er það ljóst, að við getum gert miklu betur en við höfum gert í uppbyggingu okkar þjóðlegu atvinnuvega, þjóðlegu bjargræðisvega. Við getum unnið miklu betur en við höfum gert fram að þessu í því að vinna úr gæðum landsins sjálfs, þeim hráefnum sem fyrir eru í landinu, með miklu minni tilkostnaði en þeim sem við þurfum að leggja í orkufrek iðjuver, ef tekið er tillit til þess, hvaða atvinnu þessi orkufreku iðjuver bjóða: Sem dæmi vil ég nefna það, að það kostar 3.5 millj. nýkr. eða 350 millj gkr. að veita einum manni atvinnu í orkufrekum iðnaði þegar verð raforkuversins er reiknað með, lágmark, 350 gamlar millj. eða 3.5 millj. nýkr., ef um hina ódýrari kosti er að ræða. Ef um hina dýrari kost er að ræða, svo sem í áliðnaði, í álframleiðslu, þá kostar það 7.5-8 millj. nýkr. að veita einum manni þar atvinnu eða 750-800 millj. gkr. Með því að nefna þessi kostnaðardæmi er ég ekki þar með að segja að alls ekki komi til mála að koma upp slíkum orkufrekum iðnfyrirtækjum. En fyrst verðum við að gá að því, hvort við getum ekki notað það mikla fé, sem hér er um að ræða, fjárfestingarfé, á hagkvæmari hátt til uppbyggingar á annars konar iðnaði og annars konar atvinnugreinum. Þetta verðum við fyrst og fremst að gera.
Hv. frsm. má vera minnistætt ekki síður en mér, ég minnist þess glaðlega svipmóts sem hv. þm. bar einmitt á fjórðungsþinginu fyrir norðan, þegar það rann upp fyrir okkur báðum að oftar var nefnd sú, sem vitnaði hefur verið til hér, kölluð Staðarhólsnefnd heldur en staðarvalsnefnd í umræðunum á fjórðungsþinginu fyrir norðan. En hvað svo sem þeim framburði líður, þá er flm. till. báðum ljóst að þessi mál hafa verið til athugunar í heild, þ. e. hvernig henta mundi að skipa orkufrekum iðnfyrirtækum, ef reist verða, niður á landsbyggðina með tilliti til aðstæðna á hverjum stað, þ. á m. atvinnuþarfar, vinnuaflsframboðs, náttúrulegra skilyrða, mengunarhættu og byggðar eða stöðu atvinnuveganna sem fyrir eru. Ég er alveg viss um að hv. þm. Lárus Jónsson vitnar ekki til áhrifa álversins í Straumsvik á atvinnuhætti í Hafnarfirði þegar hann er að tíunda kosti þess fyrir byggðarlögin að fá slík fyrirtæki í grennd við sig. Ég hygg að hann hugsi það mál miklu dýpra en svo. Ég er einnig efalaus um það, að hv. 1. flm. gerir sér grein fyrir stöðu ullariðnaðarins á Akureyri, þess iðnaðar sem þar er fyrir og hefur sannarlega átt fullt í fangi með að borga starfsfólki sínu sæmileg laun þannig að það yndi við þau störf, — hvaða stöðu stórt iðjuver á sviði orkufreks iðnaðar mundi setja þann iðnað í, iðjuver sem hefur yfir miklu fjármagni að ráða og þar sem hlutfall launagreiðslna í heildarútgjöldum er tiltölulega lágt miðað við það sem tíðkast í almennum léttiðnaði.
Ég get ekki fallist á það sem hv. þm. sagði, að erfiðleikar verksmiðjanna á Akureyri og Slippstöðvarinnar séu af völdum stefnu núv. ríkisstj., enn þá síður erfiðleikar eina einkafyrirtækisins sem hann tilgreindi í upplestri sínum, K. Jónssonar á Akureyri. Þetta er einkafyrirtæki, rekið sem slíkt með hámarksgróðamyndun sem meginmarkmið. Ég veit ekki betur en erfiðleikar þess fyrirtækis, þessa einkafyrirtækis, þessa einkaframtaksfyrirtækis hafi fyrst og fremst stafað af skorti á vöruvöndun, að maður ekki segi af vörusvikum, sem mætti þó færa ærin rök að, ekki vegna stjórnarstefnu. Hv. þm., sem tengdur var á sínum tíma mjög niðurlagningariðnaðinum hérna, kann kannske að koma upp í ræðustólinn á eftir mér núna og ítreka það sem haft var eftir forstjóra þessa einkafyrirtækis fyrir norðan, að varan, sem send var í hausinn á fyrirtækinu aftur frá Evrópu, hafi verið hráefnislega góð, það hefi ekkert verið að henni nema lyktin og bragðið. En ekki má ætla sér þá dul að kenna stefnu ríkisstj. um vandræði þess fyrirtækis. Hinu hygg ég að við kynnum að geta fært rök að, að ef við sæjum þessum einkafyrirtækjum, ef við sæjum Slippstöðinni á Akureyri og Sambandsverksmiðjunum fyrir þess háttar fjármagni til tæknilegrar uppbyggingar, þess háttar fyrirgreiðslu sem stóriðjufyrirtæki, sem nú eru í landinu, njóta hér, þá kynni að vera hægt að reka þau öll með mjög góðum hagnaði og jafnvel ekkert síður niðurlagningarverksmiðju K. Jónssonar, sem ég vil síður en svo níða niður, því að barátta eigenda þess fyrirtækis um áratugaskeið við framleiðslu úr íslenskum hráefnum er fremur hrósverð en hitt.
Ég tek undir aðvaranir sem fram komu í ræðu hv. þm. Árna Gunnarssonar, hvatningu til aðgátar í sambandi við hugmyndir okkar um fjárfestingu í orkufrekum iðnaði, en tel að efni þeirrar þáltill., sem hér um ræðir, hvatning til sérstakrar athugunar á svæðinu við Eyjafjörð og við Húsavík með tilliti til orkufreks iðnaðar sé af hinu góða.