30.11.1981
Neðri deild: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (905)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég vekja athygli á því, sem öllum hv. þdm. er að sjálfsögðu vitanlegt, að ekkert álit hefur enn borist frá nefndum um þau mál, sem nefndir hafa til meðferðar, ekki eitt einasta. Það sneiðist mjög um tíma hv. deildar. Forsetar Alþingis hafa ákveðið að stefna að því, að þingfundum ljúki eigi síðar en föstudaginn 18. des., og þess vegna eru tæpar þrjár vikur til stefnu. Ég vil enn fremur vekja athygli hæstv. ríkisstj. á því, að hún gái að því hjá sér, hvort einhver þau mál eru til meðferðar sem hún hefur áhuga á að nái fram að ganga fyrir jólaleyfi, því að þá er ekki seinna vænna að bregða við, því að aðalmál hin tímafreku, sem eftir er að afgreiða á hinu háa Alþingi fyrir jólaleyfi, eru vitanlega fjárlög og svo lánsfjáráætlun og lánsfjárlög lánsfjáráætlun tengd.

Þetta vildi ég að menn og alveg sérstaklega nefndarformenn tækju til rækilegrar athugunar.