20.10.1981
Sameinað þing: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

Afbrigði um útvarpsumræður

Forseti (Jón Helgason):

Ákveðið hefur verið að stefnuræða forsrh. og umr. um hana fari fram n. k. fimmtudag. Fram hafa komið tilmæli frá þingflokki Sjálfstfl. um að hann fái 20 mínútna ræðutíma í fyrri umferð. Forsrh. hefur farið fram á að fá 10 mínútur í seinni umferð. Að höfðu samráði við þingflokka verður leitað afbrigða frá þingsköpum um það, að umr. verði hagað þannig að orðið verði við þessum tilmælum.

Umræðan verður þá þannig, að fyrstur talar forsrh. í 30 mínútur, síðan fulltrúar þingflokkanna 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða og einnig forsrh.

Verður þá leitað afbrigða.