30.11.1981
Neðri deild: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (911)
109. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Þeir sem úti á landi búa finna oft harkalega fyrir því, hve tilkostnaður þar er miklum mun hærri á ýmsum sviðum en á Reykjavíkursvæðinu. Flestar neysluvörur og reyndar aðrar vörur koma frá Reykjavík. Ofan á verð þeirra þar leggst því flutningskostnaður út á land og það furðulega: söluskattur á flutningskostnaðinn. Þannig leggst fullur söluskattur á flutningskostnað matvæla þótt þau sem slík séu undanþegin söluskatti. Flutningi neysluvara frá landsbyggðinni til Reykjavíkur er aftur á móti jafnað á landsmenn alla og á það við um garðávexti, kjötvörur, mjólkurvörur og annað því um líkt. Söluskattur á ferða- og flutningskostnað innanlands er að langmestu leyti sérskattur á dreifbýlisfólk. Sama má segja um flugvallaskatt í innanlandsflugi og reyndar margt annað.
Verulegur munur í búsetukostnaði fólks liggur í ferðakostnaði innanlands. Flestir, sem úti á landi búa, þurfa oft til Reykjavíkur að fara. Þangað verður margt að sæk ja hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Á það t. d. við um viðskipti hvers konar, listir og skemmtanir, nám ýmiss konar, opinbera þjónustu, og margir þurfa til Reykjavíkur til að leita sér lækninga. Þannig mætti lengi telja.
Á móti ferðakostnaði innanlands kemur verulegur kostnaður við innanbæjarferðir á Reykjavíkursvæðinu, hvort sem strætisvagnar eru notaðir eða einkabílar. Flestir telja þó að verulega halli á landsbyggðina í þessum efnum, þó mjög mismunandi mikið.
Út yfir allan þjófabálk tekur þó hinn hrikalegi mismunur á upphitunarkostnaði húsa eftir landshlutum. Hann getur verið allt að 10 á móti 1. Hann getur verið 10 sinnum meiri í einum landshluta en öðrum. Olíustyrkurinn bætir þetta ekki nema að sáralitlu leyti og margfaldur munur er á gjaldskrám hinna ýmsu hitaveitna. Þar getur munurinn verið 8:1. Fer það mest eftir því, hvort þær eru gamlar orðnar og að mestu afskrifaðar eða nýlegar og þurfa þá að standa undir mjög miklum fjármagnskostnaði.
Orkujöfnunargjaldið, sem upphaflega var sett á til að bæta úr neyð þeirra, sem kynda með olíu, þegar olíuverðhækkanir urðu mestar árið 1979, siglir nú hraðbyri í að verða hreinn viðbótarskattur til ríkissjóðs á sama hátt og viðlagasjóðsgjaldið á sínum tíma. Í fjárlagafrv. næsta árs er gert ráð fyrir að innheimta í orkujöfnunargjaldi 190.1 millj. kr., en af því á aðeins að nota 30 millj. kr. í olíustyrki.
Í því frv., sem hér er til umr., er gert ráð fyrir að jafna út mismun á búsetukostnaði fólks eftir landshlutum í gegnum skattakerfið með því að hækka eða lækka eftir atvikum persónuafslátt og barnabætur við álagningu tekjuskatts. Gert er ráð fyrir að Hagstofu Íslands verði falið að reikna út einu sinni á ári sérstaka framfærsluvísitölu fyrir hvern kaupstað utan Reykjavíkursvæðisins og hverja sýslu. Ef framfærslukostnaður á einum stað reynist t. d. 5% hærri en almenna framfærsluvísitalan gerir ráð fyrir þarf að hækka persónuafslátt og barnabætur á viðkomandi stað um 15% til að mæta þessum viðbótarkostnaði nokkurn veginn að fullu hjá lágtekjufólki, en minnkandi eftir því sem tekjurnar aukast, enda er um að ræða fasta krónutölu, og er það sýnt í töflu sem fylgir grg. frv. Ef kostnaður á einhverjum stað er 10% hærri en almenna framfærsluvísitalan segir til um þarf að hækka persónuafslátt og barnabætur um 30% til að ná sama árangri. M. ö. o.: það þarf að hækka persónuafsláttinn og barnabæturnar þrisvar sinnum meira í prósentum talið en sem nemur hækkuðum tilkostnaði. Þó verður að hafa það í huga, að ef við þurfum að reikna með jafnmikilli verðbólgu í framtíðinni og hefur verið síðustu árin dugar þetta varla til vegna þess að tekjuskattur er lagður á eftir á og allt sem honum fylgir. Ef við gefum okkur að verðbólgan verði jafnmikil áfram þyrfti í staðinn fyrir að þrefalda þetta hlutfall að fjórfalda það til að bæta þetta að fullu hjá þeim sem lægri tekjur hafa.
Ýmsir munu halda því fram, að framkvæmd laga sem þessara verði bæði dýr og erfið. Svo þarf þó ekki að vera, a. m. k. ekki þegar frá liður. Í byrjun verður það auðvitað talsvert verk fyrir Hagstofuna að meta ýmsa þætti, sem þungt vega víða á landsbyggðinni, en eru varla eða ekki með í grundvelli hinnar almennu framfærsluvísitölu. Þetta á einkum við um ferða- og flutningskostnað innanlands. Auðvelt er að reikna út mismunandi hitunarkostnað eftir byggðarlögum þótt hitaveitugjöld í Reykjavík séu nú einráð í grundvelli framfærsluvísitölunnar. Samanburður á verði almennra neysluvara ætti og að vera auðveldur og hefur reyndar verið framkvæmdur.
Í þessu sambandi má einnig benda á það, að á undanförnum allmörgum árum hafa margir þm. úr öllum flokkum talið nauðsynlegt að öruggt mat fari fram á mismun tilkostnaðar við búsetu eftir landshlutum. Það eitt út af fyrir sig er mjög þýðingarmikið og mundi leysa úr mörgum ágreiningi sem nú er uppi. Gert er ráð fyrir því, að þessar sérstöku framfærsluvísitölur verði reiknaðar út einu sinni á ári, ekki fjórum sinnum eins og hin almenna framfærsluvísitala, enda er upphæð persónuafsláttar og barnabóta ákveðin einu sinni á ári. Útreikningur tekjuskattsins er nú unninn í tölvum og skiptir því engu máli þótt persónuafsláttur og barnabætur verði breytilegar eftir landshlutum. Tölvurnar munar ekki neitt um slíka smámuni. Þó að höfuðtilgangur tekjuskatts sé að sjálfsögðu tekjuöflun fyrir ríkissjóð er hann öðrum þræði tæki til tekjujöfnunar á milli manna, þótt ekki hafi í þeim efnum eins vel til tekist og flestir vildu.
Eitt einkenni tekjuskattsins hefur ávallt verið það, að tekjur fyrir nauðþurftum, sem er að vísu mjög teygjanlegt hugtak, hafa verið undanþegnar skattlagningu. Í núgildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt er svokölluðum persónuafslætti og barnabótum ætlað að sjá fyrir þessari hlið mála. Ef kostnaður við öflun lífsnauðsynja er mismunandi mikill í hinum ýmsu landshlutum hlýtur það að vera bæði eðlilegt og sanngjarnt að tekið sé mið af því við ákvörðun persónuafsláttar og barnabóta. Út á það gengur frv. sem hér er til umr. og flutt er af mér ásamt hv. þm. Árna Gunnarssyni, hv. þm. Karvel Pálmasyni og hv. þm. Sighvati Björgvinssyni.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að þessu frv. verði eftir þessa umr. vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar.