30.11.1981
Neðri deild: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

109. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Í því frv., sem hér er til umr., er lagt til að framfærsluvísitala verði reiknuð út á fleiri stöðum en aðeins á Reykjavíkursvæðinu. Það hefur áður komið fram að ég er hlynntur því að það verði gert. Ekki á seinasta þingi heldur þar áður flutti ég þáltill. þar sem þetta var lagt til, en hún náði ekki afgreiðslu.

Hitt er svo annað mál, að þegar kemur að framkvæmdinni, hvernig eigi að hagnýta sér þær upplýsingar sem fengjust með því móti að reikna út framfærsluvísitöluna á fleiri en einum stað., vaknar sú spurning, hvort það, sem hér er lagt til, sé fullnægjandi í því sambandi. Vissulega er það svo, að gagnvart þeim aðilum, sem bera tekjuskatt, ætti að vera hægt að ná árangri að þeirri leið sem hér er lögð til. Að vísu er hún að hluta til takmörkuð, það verður um skerta leiðréttingu að ræða. En það eru fleiri hópar í þjóðfélaginu en þeir sem bera tekjuskatt sem búsettir eru úti á landi og af ýmsum ástæðum hafa viljað eiga þar heima þrátt fyrir að margt bendi til að framfærslukostnaður þar sé meiri en annars staðar. Mér er ljóst að hv. flm. gerir sér grein fyrir að þær tillögur, sem hér eru fram settar, ná þess vegna aðeins til hluta alls þess hóps sem rétt væri að taka inn í þetta dæmi.

Ég fagna því engu að síður, að hreyft skuli vera við þessu máli á þann hátt sem hér er gert, og efa ekki vilja hv. flm. að vinna að leiðréttingu á þessu sviði. Ég held að það eitt að reikna framfærsluvísitöluna út gæti undir sumum kringumstæðum orðið til að draga úr misklíð innanlands. Vissulega er það svo, að sumir kostnaðarþættir í lífi manna eru óhagstæðari hér á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna þarf alveg skilyrðislaust, þegar farið yrði í að reikna út framfærsluvísitölu fyrir hin ýmsu svæði, að gera sér grein fyrir því, að framfærslugrunnurinn undir vísitölunni getur ekki í öllum tilfellum verið sá sami. Ég vil nefna sem dæmi í því sambandi, að fargjöld utan af landi til Reykjavíkur, t. d. með flugi, hlytu að koma inn í það mál gagnvart framfærsluvísitölunni úti á landi, en mikill ferðakostnaður Reykvíkinga við að komast til vinnu sinnar á að sjálfsögðu að vera inni í framfærsluvísitölunni hér á höfuðborgarsvæðinu.

Ég held einnig að þegar upplýsingar lægju fyrir um útreikninga á framfærsluvísitölunni væri rétt að snúa sér að þessu verki á breiðari grunni en hér er lagt til. Þar vil ég t. d. minna á gjaldskrár opinberra fyrirtækja. Það er mikil spurning hvort ekki er hægt í beinu framhaldi að stuðla að því, að þær gjaldskrár séu þannig upp byggðar að þær taki tillit til þjónustunnar að stórum hluta, hvaða þjónustu þær inna af hendi fyrir hinn einstaka mann, en minna verði gert úr hinum þættinum, þ. e. deilunni um hvað sú þjónusta kosti hið opinbera á hinum ýmsu stöðum. Í sumum tilfellum hefur orðið breyting á upprunalegum kostnaði á þeim grunni sem hefur verið lagður þegar ákveðið hefur verið að þjónustan skuli efld eftir vissu kerfi. Það má nefna t. d. símann í þessu sambandi. Það er náttúrlega orðið úrelt að miða gjaldskrárkerfi hans aðeins við vegalengdir eftir að farið var að senda boð hans í gegnum loftið, en ekki eftir þráðum. Það er líka spurning í þessu sambandi hvort hinir ýmsu félagsmálapakkar, sem verið er að afgreiða í tengslum við kjarasamninga, eiga ekki að koma inn í þetta dæmi til að leiðrétta og jafna framfærsluvísitöluna í landinu. Ég læt mér detta í hug að það gæti verið, að á Alþingi Íslendinga sé breiðari grunnur fyrir því, að það verði samþykkt þáltill. í svipuðu formi og ég lagði til á sínum tíma. Ég hefði haft áhuga á að koma henni á framfæri á nýjan leik til að kanna hvort um breytt viðhorf er að ræða í þinginu.