30.11.1981
Sameinað þing: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (915)

330. mál, útboð verklegra framkæmda

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 41 spyr hv. 6. þm. Reykv., Birgir Ísl. Gunnarsson, um útboð verklegra framkvæmda nokkurra ríkisstofnana. Eins og kom fram í máli hans áðan er fsp. í tveimur liðum, annars vegar hvaða verk hafi verið boðin út á almennum markaði verktaka 1980–1981 hjá Vegagerð ríkisins, Pósti og síma, Vita- og hafnarmálastofnun og Flugmálastjórn, og í öðru lagi hversu stór hluti af heildarframkvæmdum þessara stofnana er boðinn út 1980–1981 og hversu stór hluti var unninn af verktökum samkv. samningum án útboðs. Ég mun reyna að svara þessu í þeirri röð sem um er spurt hjá stofnununum, en fyrir hverja stofnun er svarinu slegið saman, þ. e. bæði 1. og 2. lið.

Ég vil taka það fram í upphafi, að í mörgum tilfellum er satt að segja dálítið erfitt að greina nákvæmlega á milli þegar um smáverk er að ræða. T. d. er í dreifbýlinu e. t. v. ekki hægt að segja að um almennt útboð sé að ræða þó leitað sé til fleiri verktaka á svæðinu um að taka verkið að sér. Í mjög mörgum tilfellum er um svo lítið verk að ræða, vegna þess hvernig fjárveitingum er háttað, að jafnvel þótt talið væri æskilegt að bjóða verkið í heild sinni út er það beinlínis ekki unnt vegna þess hvað verkið er sundur slitið með litlum fjárveitingum.

Hjá Vegagerðinni er svarið eins og ég skal nú lesa. Þar segir:

„Spurningar þm. varða annars vegar verk sem boðin voru út á almennum verktakamarkaði 1980 og 1981 og hins vegar hlutfall verktakaverka, úfboðsverka og samningaverka af heildarframkvæmdum Vegagerðar ríkisins þessi ár. Útboðin verk þessi ár eru sem hér segir.

Árið 1980 Vesturlandsvegur á Kjalarnesi og grjótnám í Borgarfirði. Árið 1981 Suðurlandsvegur við Hvolsvöll, Eyrarbakkavegur, Gaulverjabæjarvegur, slitlag í Árnessýslu, Bláfjallavegur, Hafnarfjarðarvegur um Hraunsholt, Vesturlandsvegur á Kjalarnesi, Vesturlandsvegur í Hvalfirði, Vestfjarðavegur við Búðardal, Grenivíkurvegur. Auk þeirra verka, sem boðin voru út, var mikið af verkum unnið af verktökum á grundvelli samnings án útboðs. Er hér einkum um að ræða efnisvinnslu, framleiðslu olíumalar, lagningu bundinna slitlaga og uppgræðslu lands.“

Fellur slíkt undir það, sem ég sagði áðan, að þótt æskilegt hefði verið að bjóða slíkt út hafa heildir verið of litlar og í mörgum tilfellum ekki um marga aðila að ræða. — Síðan segir áfram, með leyfi forseta:

„Heildarkostnaður við útboðsverk og samningsverk og hlutfall þeirra verka að heildarframkvæmdum í nýjum vegum og brúm verður á þessa leið:

Árið 1980 eru útboðsverk 274 millj. kr., hlutfallið 2.1%, samningsverk 2207 millj. kr., hlutfallið 16.7%, samtals 2482 millj..kr. og hlutfallið 18.8%. Þetta var 1980. Árið 1981 eru útboðsverkin 14.26 millj. kr.“ — Þarna er að vísu breytt á milli gkr. og nýkr. og væru sem sagt 1426 millj. gkr. — „Þarna er um mjög mikla aukningu að ræða og hlutfallið orðið 7.1%, samningsverk 26.15 mill j. kr., hlutfallið 13.1%, samtals árið 1981 40.41 millj. nýkr. Hlutfallið 20.2%.“ — Síðan segir í bréfi Vegagerðarinnar:

„Rétt er að taka fram, að hér er ekki talið með útboð á efni, vörum og tækjum sem keypt eru til framkvæmda. Þá eru heldur ekki taldir verksamningar sem gerðir eru við bæjarfélög, einkum Reykjavík og Akureyri, um framleiðslu og útlögn malbiks. Tölur eru á verðlagi hvors árs og fyrir árið 1981 er miðað við tilboðs- eða samningsupphæð. Endanlegur kostnaður þessara verka liggur enn ekki fyrir, en samkv. eðli málsins verður hann eitthvað hærri en tilgreindar tölur.

Hlutfall af heildarframkvæmdum miðast við fjárveitingar samkv. vegáætlun 1981. Hlutdeild verktaka í framkvæmdum Vegagerðar ríkisins hefur verið mjög breytileg undanfarinn áratug. Mest var hún á árunum upp úr 1970 eða 40% af nýjum framkvæmdum, en minnst 11% árið 1978. Eins og tölur hér að ofan bera með sér er hlutfall verktaka vaxandi bæði árin.

Samkv. vegalögum er það skylda Vegagerðar ríkisins að annast viðhald og rekstur vegakerfisins og sjá um framkvæmdir á því. Þeirri skyldu fylgja mörg verkefni sem ekki verða með góðu mót boðin út, eins og vetrarþjónusta, ýmsir þættir viðhalds o. fl. Verður því að vera fyrir hendi verulegur mannafli og tækjakostur hjá stofnuninni víðs vegar um landið. Hagkvæmt er að nýta þessa afkastagetu til margra verkefna sem í sjálfu sér mætti bjóða út. Í samræmi við þetta hefur hlutdeild verktaka verið í lágmarki þegar fjárveitingar eru í lágmarki, en vaxið með auknum fjárveitingum.

Hlutdeild útboðsverka verktaka í verkum eykst mjög mikið árið 1981 miðað við árið á undan, en útboð hafa ekki í langan tíma orðið minni en þá var. Orsök þess má einkum rekja til þess, að undanfarin ár hefur vegáætlun verið afgreidd síðustu daga þings á vorin og einungis gilt fyrir eitt ár í einu. Verður þá mjög lítið svigrúm til útboða og hefur það m. a. komið fram í því, að dæmi eru þess, að verktakar hafa sameinast um tilboðsgerð og skilað inn einu sameiginlegu tilboði. Með samþykkt vegáætlunar nú í vor varð nokkur breyting til batnaðar í þessum efnum. Er það von Vegagerðar ríkisins að þar með verði unnt að auka útboð og draga úr samningsverkum, en útboðsleiðin hefur marga kosti umfram samninga. Af ýmsum ástæðum verður þó áfram allmikið um samningsverk. Stafar það m. a. af því, að í sumum tilvikum er einungis að vænta tilboðs frá einum verktaka eða að erfitt er að skilgreina verk eða aðstæður verks.“

Þá segir í svari frá póst- og símamálastjórninni: „Eins og kunnugt er hefur þessi stofnun á að skipa sérfræðingum á sviði póst- og fjarskiptamála. Verkefni utan þess sviðs eru unnin af verktökum og hönnuðum eins og kostur er og hagkvæmt þykir.

1. Húsbyggingar stofnunarinnar eru boðnar út á almennum verktakamarkaði sem svarar til um 90%, en um 10% er unnið af verktökum samkv. sérstökum samningi þar sem það er talið hagkvæmt. Póst- og símahús, sem byggð eru samkv. útboði og hönnun verktaka, eru sem hér segir:

Múlastöð í Reykjavík: Verkið hófst 1979, en er ólokið. Kópavogur: Stækkun hófst 1979, verki lauk 1980. Tálknafjörður: Nýtt hús. Verkið hófst 1979, verki lauk 1980. Húsavík: Stækkun. Verkið hófst 1980, verki lokið 1981. Sandgerði: Nýtt hús. Verkið hófst 1980, verki lauk 1981. Kirkjubæjarklaustur: Nýtt hús. Verkið hófst 1981, en er ólokið. Varmahlið, Skagafirði: Nýtt hús. Verkið hófst 1981, verki ólokið.

Stofnunin hefur falið verktaka að smíða sérhönnuð smáhýsi, 5.76 fermetra og 9–18 fermetra að grunnfleti, fyrir fjarstöðvar og litlar sjálfvirkar símstöðvar til sveita. Húsin eru gerð með tilliti til flutnings á bílpalli og m. a. uppsetningu sjálfvirkra símstöðva heima við verkstæði áður en húsin eru flutt á ákvörðunarstað. Þannig sparast verulegur kostnaður við uppihald og ferðalög tæknimanna.

2. Jarðsímalagnir og þáttur verktaka í þeim efnum: Árið 1980 var kostnaður við nýlagnir í þéttbýli 674 millj. gkr. Þar af var efniskostnaður 210 millj. kr. og hann er allur boðinn út, verktakar og vinnuvélaeigendur 180 millj. kr., kostnaður í sambandi við efnisflutninga og vinnuflokka línumanna og símsmiða og verkamanna þeim tilheyrandi 284 millj. kr. Kostnaður við nýlagnir í dreifbýli 1980 var 722 millj. kr., þar af efniskostnaður 390 millj., verktakar og vinnuvélaeigendur 106 millj., eigin vinnuflokkar og flutningar 226 millj. Árið 1981 er áætlaður heildarkostnaður við nýlagnir í þéttbýli 7.8 millj. kr. — og þar eru að sjálfsögðu komnar nýkr. — „efniskostnaður 2.6 millj. kr., verktakar 2.2 millj. kr., eigin vinnuflokkar og flutningar 3 millj. kr.

Dreifbýlið: Efniskostnaður 1.8 millj. kr., verktakar 1.4 millj., eigin vinnuflokkar og flutningar 1.4 millj. Efnisútvegun er gerð samkv. útboði á veigamiklu efni og fylgir hér með sýnishorn af niðurstöðum: Í fjölsíma voru fengin tilboð frá 5 fyrirtækjum, radíótæki frá 12 fyrirtækjum, en jarðsímar frá 12 fyrirtækjum.“

Síðan býðst stofnunin til að veita allar nánari upplýsingar, ef óskað er.

Vita- og hafnamálastofnunin veitir eftirfarandi upplýsingar:

Útboðsverk 1980:

Bolungarvík: Steyptur 27.5 m kantur, útboð 21.7 millj., en verkkostnaður varð 26 millj. Ólafsfjörður: Steypt þekja o. fl. 1456 fermetrar. Útboð var 35 millj. 450 þús., en verkkostnaður reyndist vera 40 millj, Fáskrúðsfjörður: Steypt þekja 900 fermetrar. Útboð var 19 millj. 200 þús., en verkkostnaður var 22 millj. Fáskrúðsfjörður: Brunnar, vatnshús o. fl. Útboð var 9 millj. 27 þús., en verkkostnaður varð 9 millj. 800 þús. Hafnarfjörður: Steyptur kantur 89 m. Verkútboð var 21 millj. 650 þús., en verkkostnaður var 25 millj. Hafnarfjörður: Ekið fyllingu í 21 200 rúmmetra. Útboðið var 63 millj. 573 þús. Verkkostnaður reyndist 65.3 millj. Rifshöfn: Ker vegna Töskuvita. Útboðið var 22.5 millj., verkkostnaður 28.9 millj. Vestmannaeyjar: Akkerisflötur o. fl. 15 millj. 800 þús., verkkostnaður 15.8 millj. Samtals voru boðin út 1980 verk fyrir 208.9 millj. og verkkostnaður reyndist 232.8 millj. Þar að auki voru keypt samkv. útboði stálþil, sem boðin voru út, upp á 512.6 millj., harðviður upp á 49.8 millj., vogir upp á 6.1 millj. og löndunarkranar upp á 34.8 millj. Í heild voru útboðsverkin 1980 því 836.1 millj. Framkvæmdir aðrar en dýpkanir voru 4.7 millj. Útboðsverk af framkvæmdum voru 17.8%, þar af innlend 5%, en erlend 12.8%.

Fyrir árið 1981 eru upplýsingar frá Vita- og hafnamálaskrifstofunni því miður mjög ófullkomnar, en ég mun geta þess sem ég hef frá þeim fengið á þessu stigi: Boðið hefur verið út í Vestmannaeyjum fyrir um það bil 2.5 millj. í nýkr., á Eskifirði fyrir 500 þús., Ólafsfirði fyrir 450 þús., í Hafnarfirði fyrir 300 þús. Það eru samtals 3 millj. 750 þús. eða 375 gamlar millj. samanborið við 232 millj. á árinu 1980. Eru slík útboð innanlands 6/4% framkvæmda en voru 5% áður. Hins vegar hef ég ekki fengið upplýsingar um útboð á ýmiss konar efni, sem farið hefur í gegnum Innkaupastofnun ríkisins.

Síðan er spurt um Flugmálastjórn og þar segir:

1. Framkvæmdir á vegum Flugmálastjórnar eru einkum hjá þrem deildum stofnunarinnar, þ. e. flugvalladeild, flugöryggisþjónustu og Reykjavíkurflugvelli. Mjög fáar framkvæmdir eru þannig vaxnar að fært þyki að bjóða þær út á almennum markaði vegna þess hve þær eru litlar að umfangi, hve þær eru sérhæfðar og að ekki er nema takmarkað framboð af verktökum á framkvæmdasviðinu. Rétt hefur þótt að láta heimamenn njóta vinnu við framkvæmdir og er langoftast samið við þá á kjörum sem almennt tíðkast. Meginhluti framkvæmda Flugmálastjórnar er unninn af verktökum og þá án útboðs.

2. Eftirfarandi verk- og tækjabúnaður var samkv. útboði: 1980 flugleiðsögubúnaður 1 millj. 165 þús., 1981 891 þús 800. — Hér hygg ég að sé átt við nýkr. í báðum tilfellunum. — Síðan ljósabúnaður 1980 146.1, 1981 142 þús. og annað í flugstöðvar 1980 1 millj. 420 þús., 1981 2 millj.

3. Framkvæmdafé var árið 1980 14.5 millj. kr og 22 millj. 850 þús. kr. árið 1981. Hlutfall þess, sem unnið var samkv. útboði, var 1980 19%, 1981 13.2%.

4. Unnið var af verktökum án útboðs 1980 fyrir 5.2 millj. eða 36% af framkvæmdafé, en 1981 fyrir 12 millj. eða 52.5% af framkvæmdafé.

5. Verk, sem unnin eru af verktökum, eru þannig í heild: 1980 7 931 300 kr. eða 55% af heildarframkvæmdafé og 1981 15 033 800 kr. eða 66% af framkvæmdafé.

Herra forseti. Mér er ljóst að þessi lestur er dálítið erfiður að ýmsu leyti og margar tölur nefndar, en að sjálfsögðu er velkomið að afhenda fyrirspyrjanda ljósrit af þessum upplýsingum og útvega frekari upplýsingar ef hann óskar.