30.11.1981
Sameinað þing: 29. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (924)
21. mál, votheysverkun
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það eru örstuttar hugleiðingar og um leið vissar upplýsingar sem ég vildi að fram kæmu hér varðandi þessa tillögu.
Heyöflun og heygæði eru vissulega einhver mikilvægustu atriðin í okkar landbúnaði og þar með afkomu bændastéttarinnar og því fyllsta ástæða til að gefa þeim málum sem allra bestan gaum.
Hv. frsm. og 1. flm. hefur gert glögga grein fyrir þessu máli eins og hans var von og vísa. Málið er hið merkasta og ætti miðað við staðreyndir, sem áður voru reifaðar og ræddar af frsm., alveg sérstaklega að hljóta gaumgæfilega athugun þeirra sem þarna eiga hagsmuna að gæta, þ. e. bænda sjálfra, því að þeim snýr málið og brennur heitast á þeim.
Á ferð í Strandasýslu í sumar kom mér á óvart hve bændur þar virtust rólegir þó þurrkatíð væri slök og spretta síðbúin, — óvænt þó ekki, því ég vissi um heyverkun þeirra, en ólíkt var þetta þó því sem ég átti að venjast. Einmitt þá spurði ég sjálfan mig enn einu sinni hvers vegna ekki væri meiri votheysverkun yfirleitt en raun ber vitni.
Við erum að spyrja um það enn í þessum umr. og hljótum að gera í sambandi við margvíslegar upplýsingar, sem hv. frsm. tilreiddi hér áðan, m. a.: Hvað veldur hjá bændum að votheysverkun er svo aftarlega svo víða? Það er viss tregða án efa. Leiðbeiningaþjónustan er eflaust ónóg að hluta. Gömul reynsla frá þeim tíma þegar votheysverkun fylgdu hvimleiðir annmarkar, svo sem sú ljúfa angan sem ég man glöggt frá æskudögum — eða jafnvel búfjárdauði, sem ég vissi til að um tíma olli því t. d. í mínu nágrenni að menn héldu að sér höndum og hættu jafnvel að verka í vothey. Stórstígar framfarir í gerð heyvinnslutækja, sem flýta mjög þurrkun heys, og almenn súgþurrkun og öruggari eiga líka sinn ríka þátt. Uppbygging á heygeymslum okkar hefur verið mjög mikil á s. l. áratug og þeim, sem hafa reist þurrheyshlöður fyrir allan heyfeng og vel það, þykir eflaust sem skuldabagginn sé nægur þó slæmt árferði sanni þeim að öll góðu heyvinnslutækin og súgþurrkunin og hlöðurnar stóru dugi skammt þegar verst lætur.
Til þess að koma fram markmiðum þessarar till. verður frumkvæðið að koma frá bændunum sjálfum og örvunin og leiðbeiningarnar frá samtökum þeirra, en aðstoðin frá lánasjóðum og með styrkjum af opinberu fé, eins og hér er minnst á.
Leiðbeiningarþjónusta landbúnaðarins er að vísu býsna virk og öflug og henni þarf markvisst að beita ef hér á að verða veruleg breyting á. Bitur reynsla af stóráföllum á ekki ein að vera hvetjandi fyrir bændur að verka í vothey. Það eiga skynsamlegar leiðbeinandi aðgerðir til að koma. Það, sem segir í fyrri liðum þessarar till. um stóraukna kynningu þessara mála meðal bænda, snýr fyrst og fremst að samtökum þeirra, ráðuneyti, búnaðarsamböndum, leiðbeiningarþjónustunni, og áhersla á þau atriði í formi samþykktar á Alþingi hlýtur að vekja athygli og vera af hinu góða.
Og þá er að hinum síðari liðum komið. Af því að ég á sæti í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins fór ég að kanna hvort við höfum e. t. v. ekki staðið okkur sem skyldi, t. d. á liðnum árum, þegar neita þurfti allverulegum hluta umsókna, — það gildir ekki um síðustu tvö ár að vísu, — hvort við hefðum þá um of haldið aftur af bændum hvað þetta varðar, hvort við hefðum t. d. látið þurrheyshlöður í einhverju ganga fyrir votheyshlöðum. Það var síður en svo. Á þeim árum þegar við vikum til hliðar nokkrum umsóknum var hlutfall þeirra, sem fengu jákvætt svar og voru með votheyshlöður, tiltölulega hærra en þeirra sem voru að sækja um styrk út á þurrheyshlöður.
Um allt þetta eru glöggar upplýsingar hjá Stofnlánadeildinni. Þær komu að miklu leyti fram í máli hv. frsm. Ég tók einmitt eftir því, að lægsta hlutfallið, sem var nefnt hér í sambandi við lánveitingar Stofnlánadeildar út á votheyshlöður, var hlutfallið 1975. Þá er það aðeins rúm 20% af heildarmagninu. Það er sem sagt árið áður en við gerum lánabreytinguna hjá Stofnlánadeildinni og minnkum lánahlutfallið úr 50 í 40, en um leið gerist það, sem hv. 1. flm. kom inn á, að varð stórbreyting á styrkjum, nánar tiltekið á árinu 1976. Þegar við tókum þetta mál fyrir í Stofnlánadeild þá misminnir mig það held ég ekki og ég veit að formaður stjórnar Stofnlánadeildar leiðréttir mig á eftir ef ég fer ranglega með — þá minnir mig við fá um það upplýsingar frá þar til hæfum aðilum, og á þeim fundi voru bæði formaður Búnaðarfélagsins og formaður Stéttarsambands bænda, að þó að við lækkuðum þetta lánshlutfall væri engu að síður um mun hagstæðara hlutfall að ræða varðandi sameiginleg lán og styrki í votheyshlöðurnar en þurrheyshlöðurnar. Við fengum þetta útreiknað þá með skýrum dæmum dæmum sem við trúðum og dæmum sem forustumenn bændasamtakanna í þessum tilfellum gerðu síður en svo athugasemd við og þar sem hlutfall styrkjanna var vitanlega miklu hærra en lánahlutfallið. Enn þá er svo, eins og reyndar kom fram í máli hv. 1. flm., að varðandi styrki á rúmmetra í þurrheyshlöðum og styrki á rúmmetra í votheyshlöðum er auðvitað ólíku saman að jafna. Áið 1980 var styrkur á rúmmetra í þurrheyshlöðum 12.31 kr., en í votheyshlöðum 41.04 kr., þ. e. rúmlega þrisvar sinnum hærri styrkur. Og þegar við erum komnir með fjárfestingarlánasjóð eins og Stofnlánadeildina núna með verðtryggingu og þeim álögum sem því fylgja, þá hljóta styrkirnir reyndar að skipta enn meira máli en jafnvel 1976 þegar við breyttum um.
Hins vegar kom það mjög skýrt fram í máli hv. 1. flm., þegar hann kom með tölur varðandi heildarkostnað og hlutfall í heildarkostnaði, að þurrheyshlöðurnar væru ofan á. Það munaði ekki neinu smáræði því hann talaði um 67% samanlagt magn láns og styrkja varðandi þurrheyshlöður, en 54% varðandi votheyshlöður. Þessar tölur eru, þrátt fyrir að ég hafi reynt að kynna mér þetta, algjör latína fyrir mér, og hefur aldrei verið kynnt af fulltrúum bændasamtakanna í stjórn Stofnlánadeildar að þarna gæti verið um þann mismun að ræða sem kom þarna mjög glöggt fram. Ég held að ég hafi ekki tekið rangt eftir, að miðað við 1000 rúmmetra hlöðu í báðum tilfellum, þ. e. flatgryfju í sambandi við votheyshlöðuna, væru hlutföllin 67% á móti 54. Það þóttu mér ljót hlutföll satt að segja, miðað við þá góðu trú sem ég stóð í varðandi þessi mál. Þarna er einhver skekkja sem ég átta mig engan veginn á í ljósi þeirra upplýsinga sem ég hef hér frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, þar sem annars vegar er talað um styrki og hins vegar lán. Þetta liggur að nokkru leyti í súgþurrkuninni sé ég er, en að hlutfallið skekkist svo óskaplega gagnvart súgþurrkuninni, það skil ég ekki. Ég tel hins vegar alveg sjálfsagt í ljósi þeirra upplýsinga, sem fram komu í máli hv. 1. flm. og eru komnar frá Búnaðarfélagi Ístands og ættu þá náttúrlega að berast til okkar í stjórn Stofnlánadeildarinnar frá forustumönnum Búnaðarfélags Íslands sem þar eiga sæti, ef skekkjan er svona gífurleg og þeir vita af svona gífurlegri skekkju í þessum málum, þá tel ég sjálfsagt að taka þetta mál upp í stjórn Stofnlánadeildarinnar. Ég veit að hv. 2. þm. Norðurl. e. er mér fyllilega sammála um að vitanlega verðum við að skoða þetta í ljósi talnanna sem voru raktar hér af hv. 1. flm. og komu a. m. k. algjörlega flatt upp á mig varðandi þessi hlutföll. Ég hélt satt að segja að mál stæðu þannig, að með styrkjakerfinu í þessum efnum væri um að ræða fyllilega sambærilega aðstöðu eða betri í þessu efni. Það síðasta, sem ég heyrði um þetta, var að við værum með í heild í kringum 5% betra hlutfall sameiginlega út á þurrheyshlöður en votheyshlöður.
En ég tel sjálfsagt, eftir að hafa fengið eins hrikalegar viðmiðanir og hér hafa komið fram, að við tökum þetta upp og lítum þá til þess, hvort við eigum ekki enn betur að gera og hvort ekki sé nauðsynlegt að hækka á nýjan leik lánshlutfallið úr Stofnlánadeildinni í votheyshlöðurnar. Það er þó ekki þar sem þessi mismunur liggur aðallega. Hann liggur auðvitað aðallega í styrkjakerfinu. Það er greinilegt. Skekkjan hlýtur að koma þar fram að mjög verulegu leyti þegar dæmin hafa snúist svo við að tölurnar eru orðnar 67 á móti 54 þurrheyshlöðunum í vil.
Spurningin er svo aftur um það, hvort við getum gert enn þá betur og hvort að það eigi þá ekki einnig að huga betur að þessum styrkjum. Eftir þessu að dæma gæti það kallað á spurningar um hvort styrkir til súgþurrkunar væru ekki allt of háir miðað við þá styrki sem eru veittir í votheyshlöðurnar.
Ég vil hins vegar benda á það, þó að það sé sjálfsagt að athuga þessi mál í stjórn Stofnlánadeildarinnar, að Stofnlánadeildin fær nú til meðferðar nýja lánaflokka til nýrra búgreina, þó þangað renni einnig fjármagn annars staðar að, og þessum lánaflokkum er nauðsynlegt að sinna vel ef árangur á að verða sá sem til er ætlast til eflingar íslenskum landbúnaði.
Stofnlánadeild lánar í dag aðeins til dráttarvélakaupa og sláttuvéla eða þyrla ef þær eru samhliða keyptar. Það eru engin stofnlán til allra þeirra stórvirku og um leið dýru vinnuvéla varðandi bæði áburðardreifingu og heyvinnslu frá Stofnlánadeild. Er sannarlega kominn tími til að sinna þessu að ákveðnum hluta, einkum hvað varðar þá sem eru að hefja búskap. Þá ber að geta þess um leið, að jarðakaupalán eru í lágmarki, þó að húsnæðisstjórn muni nú að sjálfsögðu hefja veitingu G-lána eða lána til kaupa á eldri íbúðum í sveitum einnig, sem er mikil framför frá því sem verið hefur. Þetta er ekki sagt til að draga úr nauðsyn góðrar lánafyrirgreiðslu til votheysverkunar, heldur aðeins til að minna á að Stofnlánadeild stendur nú andspænis í raun og veru stórauknum verkefnum varðandi nýjar búgreinar, varðandi hinar dýru heyvinnuvélar og varðandi kaup á jörðum til þess að jarðir verði ekki í æ ríkari mæli að bráð einhverjum fjársterkum aðilum sem ætla sér ekkert með jarðirnar annað en braska með þær.
Hins vegar bendi ég á það, að varðandi lán annars vegar og styrki hins vegar fer auðvitað ekkert á milli mála hvor leiðin yrði meira hvetjandi til þess, að menn réðust í votheysverkun: hærri lán, sem eru verðtryggð, eða hærri styrkir. Þarna er fyrst og fremst komið að styrkjakerfinu, eins og ég benti á áðan, og kæmi í hlut Framleiðnisjóðs landbúnaðarins fyrst og fremst, held ég, að koma inn í dæmið ef það sýndist verða til þess að efla votheysverkun á sem skjótastan hátt og gera hana enn snarari þátt í heyöflun en nú er, sem ég tek heils hugar undir með 1. flm. og þeim öðrum sem þessa till. flytja.
Varðandi síðasta liðinn í till., sem ég tel allrar athygli verðan og snertir okkur í stjórn Stofnlánadeildar mjög, þ. e. liðinn um endurbæturnar, að veita sérstök stofnlán og framlög til að breyta þurrheyshlöðum í votheyshlöður, þá vil ég til upplýsingar greina frá áliti Byggingastofnunar landbúnaðarins um breytingar á þurrheyshlöðum í votheyshlöður. Ég legg engan dóm á þetta, en ég tel að þetta eigi rétt á sér sem innlegg í þessa umr. Þar segir Gunnar M. Jónasson forstöðumaður Byggingastofnunarinnar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Yfirleitt má reikna með að örðugt sé að breyta gömlum þurrheyshlöðum í votheyshlöður. Aðallega er það vegna þess, að mikil áraun er á veggi votheyshlöðu meðan verið er að hirða og troða heyið. Enn fremur er oft örðugt að koma við fullnægjandi frárennsli eftir á. Við athuganir á kostnaði hefur hann reynst órýmilega mikill, ef farið er eftir sömu reglum við breytingar og við nýbyggingar á votheyshlöðum. Ef til kæmi að lánað yrði út á svona breytingar hlýtur að verða að gera nokkurn veginn sömu gæðakröfur til breytinganna og nýbygginga. Það er meginregla, að ekki sé lánað til bráðabirgðaframkvæmda. Að öllu samanlögðu er ljóst, að ekki er ástæða til að hvetja menn í stórum stíl til að breyta hlöðum úr þurrheysverkun til votheysverkunar, þótt finna megi dæmi þess að slíkt sé framkvæmanlegt. Vitað er um bændur sem hafa verkað vothey í þurrheyshlöðum með sæmilegum árangri án nokkurra breytinga á þeim, en þá eru yfirleitt sérstakar aðstæður fyrir hendi og oftast óljóst með árangur fyrr en eftir vissa tilraunastarfsemi. Það gefur því ekki grundvöll fyrir lánveitingum. Það, sem hins vegar mætti gera, er að athuga hvert tilvik fyrir sig og reyna síðan að leiðbeina mönnum hvernig ganga mætti til verks með sem minnstum tilkostnaði án þess að lán kæmu til. Miðað við þá reynslu, sem er af hörðum áróðri fyrir votheyshlöðum, mun þó vera langt í land að svona breytingar nái almennri hylli“.
Undir þetta skrifar Gunnar M. Jónasson forstöðumaður Byggingastofnunar landbúnaðarins. Hann leggur hér engan dóm á, en bendir á ýmsa annmarka sem koma inn í framkvæmd þessa. Ég vil láta athuga þetta betur. Ég vil líka láta kanna möguleika Stofnlánadeildarinnar á því að koma til móts við þriðja liðinn, en ég vil fyrst og fremst taka undir tillöguna sem slíka, sem tillögu um örvun á þessari heyverkunaraðferð.