30.11.1981
Sameinað þing: 29. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (926)
21. mál, votheysverkun
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu ánægjulegt til þess að vita, hverjar undirtektir sú till., sem hér er fjallað um, fær hér á Alþingi þar sem menn hver á eftir öðrum lýsa stuðningi við þennan tillöguflutning. Gefur það vissulega vonir um að héðan verði þessi till. afgreidd með myndarlegum hætti og megi sannarlega að gagni koma fyrir íslenskan landbúnað.
Ég get að sjálfsögðu tekið undir ákaflega margt sem hefur komið hér fram í þessum umr., og þess vegna ætla ég að fjalla hér einkum um það sem mér finnst aðalatriði í þessu máli.
Þá er það fyrst hvers vegna ekki hefur náðst árangur í útbreiðslu á votheysgerð hér á landi þótt farið hafi fram mikil umræða og verið lögð á það mikil áhersla nú um a. m. k. tveggja áratuga skeið. Er þá vissulega þess vert að athuga hvers vegna sá árangur, sem að hefur verið stefnt, hefur ekki náðst. Ég hygg að sumt af því, sem kemur fram í till., sé þar nokkurt svar og ef gengið verður til verka eins og þar er gert ráð fyrir mundu þessi mál breytast.
Hér hefur verið fjallað nokkuð um samanburð á kostnaði við byggingu á þurrheyshlöðum og votheyshlöðum annars vegar. Þar hefur m. a. komið fram að fjármagn annars staðar frá en frá landbúnaðinum gengi að meiri hluta til þurrheysgeymsla. Ég hygg að skýringin á þessu sé sú, að á síðari árum hefur styrkur við súgþurrkun mjög verið aukinn. Það var reyndar gert líka við votheyshlöður árið 1972, en þá var jarðræktarlögunum síðast breytt hér á Alþingi. Hins vegar hefur súgþurrkun verið sérstaklega styrkt á síðari árum af hinu svokallaða hagræðingarfé í landbúnaði. Hlutur þeirrar heyverkunar er af þeirri ástæðu orðinn allgóður og var vissulega þörf á að ná þar góðum árangri. En á styrk til votheysframkvæmda hefur ekki orðið breyting og m. a. s. upplýst að árið 1976 hafi verið dregið úr lánveitingum til votheyshlöðubygginga. Ég get ekki fundið rök fyrir því, vegna þess að þá áttu sér ekki stað neinar breytingar á jarðræktarlögum, heldur áttu þær sér stað allmiklu fyrr, eða árið 1972 eins og ég sagði áðan, og þar af leiðandi var ekkert sérstakt tilefni fyrir Stofnlánadeild landbúnaðarins að gera þarna breytingu á einmitt árið 1976. En þetta held ég að sé ekki heldur ráðandi um að ekki hafi náðst árangur, heldur komi þetta m. a. til af því, sem kom fram í ræðu hv. 1. þm. Suðurl. sem hefur ákaflega góða reynslu í þessum málum, að það hefur ekki verið lögð sú áhersla á tæknibúnað við votheysgerð eða fóðrun með votheyi sem sérstaklega er þörf á. Það er vissulega vert að minnast á það hér og þakka hversu mikinn áhuga einstakir menn hafa sýnt í þessum efnum og þá kannske fyrst og fremst Einar Guðjónsson, en hann hefur lagt mikið á sig til að útbúa sérstakan lofttæmingarútbúnað sem á að gera það að verkum að stórum auðveldara er að verka gott vothey en ella væri. Alveg með sama hætti hefur það gífurlega mikla þýðingu að fá góðan útbúnað við fóðrun á votheyi.
Ég hygg að það séu þessar þrjár meginástæður sem eru fyrir því, að vothey er ekki útbreiddara en raun ber vitni: Í fyrsta lagi er þessi heyverkun þung í meðförum og þarf góðan tækniútbúnað til að hún geti orðið skemmtileg fyrir bændurna í þessu landi að vinna að. Í öðru lagi þarf líka að bæta möguleika til góðrar verkunar, m. a. með lofttæmingu. Og í þriðja lagi þarf bætta aðstöðu og miklu meiri tækni í sambandi við fóðrun. Þetta held ég að séu þrjú áhersluatriði sem mundu miklu breyta ef hægt væri að koma í framkvæmd.
Þá er það spurningin, sem hér hefur verið minnst á, um lánveitingu úr Stofnlánadeild landbúnaðarins, hækkun á lánum til bænda úr þeirri heiðursstofnun. Í sannleika sagt held ég að það breyti ekki mjög miklu því að menn eru alveg áreiðanlega farnir mjög að halda að sér höndum í sambandi við framkvæmdir upp á þau býti að fjármagna þær með fjármagni úr Stofnlánadeild landbúnaðarins eins og það er uppfært nú. Eins og menn vita er þar allt fjármagn verðtryggt. Þetta skapar svo mikið misvægi á milli bændanna í þessu landi, þeirra, sem hafa lokið framkvæmdum, og hinna, sem eiga það eftir, að það er í raun og veru útilokað að það geti staðist. Ég get því ekki séð að það muni verða til verulegra bóta í þessum efnum þó að bændum væri heimiluð verðtryggð lántaka í stærri mæli en reglur Stofnlánadeildarinnar gera nú ráð fyrir. Það, sem mér sýnist að gæti komið að gagni og væri tiltækt í þessum efnum, er, eins og hv. 2. þm. Austurl. talaði um áðan, hið svokallaða hagræðingarfé og það er sannarlega mikil ástæða til þess hér á Alþingi að líta til með því, hvernig því fjármagni er varið.
Það er vert að minna á það hér í þessu sambandi, að Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur fengið ákveðinn hluta af þessu hagræðingarfé sem framlag til deildarinnar, sem hún hefur síðan aftur lánað út með 100% verðtryggingu. Þetta gerist á sama tíma og lögboðið framlag til deildarinnar er ár eftir ár skorið niður. Þetta er vissulega mikil ástæða til að hafa í huga þegar fjallað er um málefni í íslenskum landbúnaði, hvernig farið er að í þessum efnum.
Þá má líka benda á og vert að leggja á það áherslu hér, að þetta hagræðingarfé hefur aldrei skilað sér. Það eru fyrir því lög, að það eigi að miða það við meðaljarðræktarframlög árin 1978 og 1979 og síðan eigi að koma á það full verðtrygging. Hún hefur aldrei komið. Þetta fjármagn hefur aldrei komið til skila. Ég held að við gætum náð góðum áfanga í votheysgerð og komið á góðum tillögum sem mundu stuðla að nýjungum og auknum framförum í votheysgerð, þótt við gerðum ekkert annað hér á Alþingi en það eitt að standa við það sem var lögfest á Alþingi og er grunnurinn að hinu svokallaða hagræðingarfé. Þótt þessi till. sé allra góðra gjalda verð og verði væntanlega samþykkt hér á Alþingi held ég að við þyrftum ekki að bíða svo lengi til að ná árangri ef menn vildu bara standa að því, sem lög bjóða, að hagræðingarféð komi til skila við næstu fjárlagaafgreiðslu og þeim viðauka, sem þannig fæst, verði varið til eflingar votheysgerð í landinu. Þá hygg ég að fljótlega fáist góður árangur.