30.11.1981
Sameinað þing: 29. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (927)
21. mál, votheysverkun
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Á sama tíma og flm. hóf að tala fyrir máli þessu boðaði 1. þm. Vestf. okkur á fund út í Þórshamar til að ræða þar brýnt mál og því miður missti ég af framsöguræðunni. Ég hygg að það sé ekki hægt að túlka það á þann veg, að 1. þm. Vestf. hafi ekki fullan áhuga á því máli sem hér var flutt. Að minnsta kosti kom ekkert fram sem benti til þess.
Ég sakna þess hér í grg., að þær tölulegu upplýsingar, sem hér hafa mikið verið ræddar, um hlutfallið á milli stuðningsaðgerða annars vegar til votheysverkunar og hins vegar til þurrheysverkunar skuli ekki vera í grg. Það er nú svo, að ég og ábyggilega fleiri höfum verið þeirrar skoðunar, að þessi mál stæðu þó þannig að votheysverkunin hefði vinninginn hvað stuðning snerti, en ekki öfugt, þannig að mér kemur það atriði mjög á óvart.
Hins vegar gladdi það mig að sjálfsögðu mjög mikið þegar ég las grg., að hér eru landshlutarnir upp taldir og ein sýsla alveg sérstaklega, Strandasýsla. Það er margt sem við framsóknarmenn teljum að sé til fyrirmyndar í Strandasýslu. Ég verð að segja það eins og er, að þó að þm. ferðist um kjördæmið til að hafa áhrif er líka ánægjulegt þegar kemur í ljós að ferðalög þeirra hafa orðið til þess að þeir hafa orðið fyrir áhrifum. Ég tel að það sé gleðilegt, að hér kemur það fram í máli manna m. a. að þeir hafa ferðast um Strandasýslu og orðið hissa á því, að þar hefðu bændur minni áhyggjur vegna verkunar síns heyafla en annars staðar. Þetta er alveg hárrétt. Þeir hafa fyrst og fremst áhyggjur af því, hvort grasið sprettur eða hvort það sprettur ekki. Þeir eru búnir að sjá við þeim lekanum. En ef það sprettur bjarga þeir því í sínar hlöður. Ég er hlynntur því, sem hér kemur fram, að við stuðlum að því að mun hærra hlutfall af heyverkun innanlands verði votheysverkun. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það er rétt.
Hins vegar kemur það fram í 4. liðnum í þessari þáltill., sem vekur kannske vissar spurningar, hvort sú stefna sé alfarið auðframkvæmanleg að breyta þurrheyshlöðunum í votheyshlöður. Ég held að undir mörgum kringumstæðum sé þetta fyrst og fremst spurningin um það, að þótt fyrir séu þurrheyshlöður verði leyft og að fullu stutt við bakið á mönnum fari þeir í að byggja votheyshlöður, jafnvel þó að hægt sé að benda á að heyfengur þeirra rúmist í þeim þurrheyshlöðum sem fyrir eru. Ég held að það sé raunverulega kjarnaatriðið ef á að fara í þessar breytingar.
Það blasir jafnframt við, að við lifum þá tíma núna að kvótakerfi og fleira kemur í veg fyrir þá framþróun, sem þarf að eiga sér stað, og menn hika við að fara í fjárfestingar vegna þess að þeir geta ekki horft fram á það um leið að þeir geti aukið sinn bústofn. Þetta blasir við og kemur inn í þetta mat. Hins vegar liggur það ljóst fyrir, ef við berum saman þróunina sem orðið hefur, að það hefur átt sér stað mikil og jákvæð þróun á vissum svæðum í þessu efni. M. a. má benda hér á í grg., að árið 1964 fara 35.8% af heyafla Strandamanna í vothey, en árið 1980 er hlutfallið komið upp í 77,3%.
Ég vil aftur á móti geta þess, að ég held að sum svæði á Íslandi muni ávallt vera með hátt hlutfall í þurrheysverkun. Ástæðurnar fyrir því eru m. a. þær, að þar eru önnur veðurfarsskilyrði. Þetta geta menn kynnt sér með því að skoða úrkomukort yfir Ísland, að því viðbættu, að þar sem svo er ástatt er þó nokkuð algengt að bændur selji það umframfóðurmagn sem þeir geta aflað. Það fóðurmagn er undantekningarlaust selt í því formi að það er selt sem þurrhey. Ég held þess vegna að á þeim svæðum muni það verða almennt áfram, að menn þurfi að eiga bæði tæki til að verka hey í þurrhey og vothey og sá sparnaður, sem hér er talað um að geti átt sér stað, komi e. t. v. ekki til greina á þeim svæðum.
En hitt vil ég taka undir, sem hefur komið fram hér í máli manna, að aðalatriðið er að við höldum áfram að þreifa okkur áfram um bætta heyverkun. Það hefur m. a. verið minnst hér á súgþurrkun sem fær stuðning frá heitu vatni á þann veg að það er blásið heitu lofti, en ekki aðeins köldu, eins og algengast mun vera. Í því sambandi er náttúrlega vert að horfa á þá staðreynd, að við erum með mjög mikla umframraforku vissan tíma ársins, yfir sumartímann, sem ekki væri óeðlilegt að bændur fengju á öðru verðlagi en verið hefur og ættu þannig kost á að vera með betri súgþurrkun, því að alhliða framþróun í heyverkunarmálum er aðalatriðið í þessu efni.