30.11.1981
Sameinað þing: 29. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (929)
21. mál, votheysverkun
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég vil leiðrétta hér örlítinn misskilning sem kom fram í ræðu 4. þm. Vestf. Það kom skýrt fram í orðum 2. þm. Austurl., að hann hafi orðið fyrir áhrifum á ferðalagi um Strandasýslu. Ég nafngreindi aldrei 4. þm. Vestf. þegar ég fagnaði þeim áhrifum. Hins vegar má það aftur á móti magnað vera hafi hann ferðast um Strandasýslu og ekki orðið fyrir áhrifum. Það læt ég þó liggja á milli hluta.
Mér er fullkunnugt um það, að í þeirri ágætu sveit á Ingjaldssandi hefur verið verkað vothey lengi. Ég kom þangað ungur að árum og varð hrifinn af þeirri verkunaraðferð sem þar var stunduð. Ég vil bæta því við, að ég veit ekki betur en formaður kjördæmissambands framsóknarmanna á Vestfjörðum verki mikið í vothey. Það mættu fleiri formenn kjördæmasambanda á Vestfjörðum taka til fyrirmyndar.