20.10.1981
Sameinað þing: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

33. mál, veðbókarvottorð í Reykjavík

Fyrirspyrjandi (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Á þskj. 33 beini ég eftirfarandi fsp. til hæstv. dómsmrh. um veðbókarvottorð í Reykjavík:

„Hverju sætir það, að hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík þarf einstaklingur að koma tvisvar — tvo daga í röð — til að fá veðbókarvottorð afgreitt?“

Ástæða er til þessarar fsp. Í sjálfu sér flokkast þetta varla undir stærri mál, en engu að síður munu afgreidd um 100 veðbókarvottorð á dag hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík. Sá háttur mun hafður á, en þeir, sem slík plögg þurfa, geta haft til þess alls konar ástæður — að þeir þurfa að koma hinn fyrri dag til að leggja inn pöntun fyrir slíku vottorði og greiðslu fyrir, en þurfa síðan að koma daginn eftir til að sækja vottorðið. Þessar skrifstofur eru aðeins opnar frá kl. 10 til kl. 3. Það segir sig sjálft að þetta er á venjulegum vinnutíma og hlýtur að vera algerlega óþörf fyrirhöfn. Ég fæ ekki betur séð en mjög auðveldlega væri hægt að koma þessu þannig fyrir að fólk, sem þarf á slíkum plöggum að halda, hringi til embættisins og panti í gegnum síma það tiltekna plagg, sem á þarf að halda, og komi síðan á gefnum degi, sennilega daginn eftir, og greiði fyrir það og sæki plagg sitt. Ég held að það sé fáránlegt að ímynda sér að slíkt væri misnotað. Nú er það svo að þessi plögg eru handskrifuð og afgreidd með mjög gamaldags hætti, en mér er kunnugt um að starfsfólk þarna vinnur vel. Það er iðulega að vinna fram að eða fram yfir kvöldmat við að undirbúa þessa pappíra. Engu að síður sýnist mér það vera í fyrsta lagi alveg ástæðulaust og í raun og veru alveg ástæðulaust tillitsleysi við einstaklinginn að vera að láta hann sendast yfir heila eða hálfa borgina tvisvar þegar auðveldlega má koma því fyrir einu sinni.

Það er af þessum ástæðum, herra forseti, sem þessi fsp. er borin fram til hæstv. dómsmrh. og í þeirri von að þetta megi lagfæra með lítilli fyrirhöfn alveg að kostnaðarlausu og þegnarnir í þjóðfélaginu fái góða þjónustu með sem minnstri fyrirhöfn. Það og það eitt ætti að vera hlutverk ríkisvaldsins.