20.10.1981
Sameinað þing: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

33. mál, veðbókarvottorð í Reykjavík

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Hv. þm. hefur gert grein fyrir fsp. sinni á þskj. 33 um útgáfu veðbókarvottorða í Reykjavík, svohljóðandi:

„Hverju sætir það, að hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík þarf einstaklingur að koma tvisvar — tvo daga í röð — til þess að fá veðbókarvottorð afgreitt?“

Þar sem fsp. beinist að afgreiðslu mála við borgarfógetaembættið hef ég fengið greinargerð vegna þessa frá yfirborgarfógeta, Jóni Skaftasyni. Hljóðar bréfið svo, með leyfi forseta:

„Dómsmálaráðuneytið, Arnarhvoli.

Til svars fsp. Vilmundar Gylfasonar alþm. um veðbókarvottorð á þskj. 33 vil ég taka eftirfarandi fram: Verkefni í þinglestursdeild borgarfógetaembættisins eru gífurlega mikil. Mörg hundruð viðskiptamanna koma þangað á hverjum degi. Sem dæmi vil ég aðeins nefna að á s. l. ári var tala þinglesinna og aflýstra skjala 45 857 og tala veðbókarvottorða 26 904. Veðbókarvottorð eru enn þá handrituð og gerð sumra þeirra er fjarri því að vera auðveld eða fljótunnin. Alveg er útilokað að afgreiða þau um leið og viðskiptamaður pantar þau. Því er það meginregla, að viðskiptamaður pantar skriflega veðbókarvottorð á tölusettan pöntunarseðil og nær í það á næsta degi.

Frá þessari meginreglu er sú undantekning, að veðbókarvottorð vegna bifreiða eru afgreidd um leið þar sem þau eru tiltölulega einföld. Tala þeirra mun sennilega nálgast það að vera þriðjungur af heildartölu veðbókarvottorða. Enn fremur geta fastir viðskiptavinir embættisins, svo sem bankar, lögfræðingar og fasteignasalar, pantað veðbókarvottorð sín símleiðis og greitt þau um leið og þau eru sótt. Allir eiga þess að sjálfsögðu líka kost að panta veðbókarvottorð með bréfi og senda greiðslu um leið. Þurfa þeir þá ekki að koma tvo daga í röð til þess að fá þau afgreidd.

Á s. l. ári neyddist ég hins vegar til þess að taka fyrir það, að hver og einn gæti pantað veðbókarvottorð símleiðis. Aðalástæðan fyrir því var sú, að mjög mörg vottorð, sem þannig voru pöntuð, voru aldrei sótt og að sjálfsögðu aldrei greidd. Er mér í fersku minni að á fyrri hluta s. l. árs var 1450 veðbókarvottorðum hent í einu sem orðin voru þriggja mánaða gömul og eldri. Ég get hvorki gagnvart sjálfum mér né öðrum varið það, að starfsfólk standi í því í yfirvinnu að skrifa út veðbókarvottorð sem síðan er hent af því að þau eru ekki sótt.

Starfsfólk þinglestursdeildar reynir að hraða afgreiðslu veðbókarvottorða eins og hægt er og veita viðskiptavinum embættisins sem besta þjónustu. Miðað við allar aðstæður tel ég þá framkvæmd, sem í gildi er, þá bestu. Hins vegar vona ég að sá tími styttist sem enn þá er í það að starfsemi þinglestursdeildar verði tölvuvædd.

Með bréfi frá 12. okt. s. l. sendi ég dómsmrn. skýrslu starfshóps borgarfógetaembættisins og Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar um tölvukerfi sem hentaði þeirri starfsemi sem fram fer í þinglestursdeildinni. Lögum samkvæmt er það á valdi dómsmrn. að ákveða að tölvutækni skuli viðhöfð þar. Verði af slíku og takist vel um framkvæmdina vona ég að beiðni um veðbókarvottorð verði afgreidd um leið og hún er fram sett.

Virðingarfyllst.

Jón Skaftason.“

Þetta var bréf yfirborgarfógeta og er eigi þörf á að bæta við svör hans.

Eins og fram kom í bréfi yfirborgarfógeta hefur hann nú alveg nýverið sent rn. skýrslu um tölvukerfi sem hentað gæti þeirri starfsemi sem fram fer í þinglýsingardeild og þar á meðal við útgáfu veðbókarvottorða. Þessi skýrsla er nú til athugunar í rn.

Þá er þess að geta, að á næstunni mun borgarfógetaembættið fá aðgang að tölvuskrám Bifreiðaeftirlitsins. Einfaldast þá framkvæmd þinglýsinga vegna veðsetningar bifreiða, þar sem eigi verður þá þörf á að leggja fram staðfestingu lögreglustjóra eða bifreiðaeftirlits á eignarhaldi bifreiðar við þinglýsingu. Jafnframt skapast möguleiki á að koma upplýsingum um veðsetningar ökutækja í tölvuskrána og dregur þá úr þörf á útgáfu veðbókarvottorða við umskráningu bifreiða.