02.12.1981
Efri deild: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
42. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Frsm. 2. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þessar upplýsingar. Að sjálfsögðu var mér um þetta kunnugt. En mér var tjáð að í hvorugt þetta skipti hefði komið til þess. Það stendur þarna í annað skiptið „kann“ skuldin að verða. Síðan stendur í þessum lögum: „Enn fremur skal endurgreiða ríkissjóði það, sem hann hefur vegna framleiðslu ársins 1976“ o. s. frv. Þar er um að ræða spurninguna um það hvort þetta hefur verið greitt. Í fyrra skiptið var það greitt, segir hæstv. ráðh., og það getur vel verið. En þá er spurningin þessi, hvort hafi verið um það að ræða, að það hafi verið samkomulag við framleiðendur sjávarafurða og að þarna hafi verið um að ræða mjög svipað hlutfall og þeir áttu í raun af þessum gengishagnaði. Um þetta skal ég ekki deila við hæstv. ráðh. En meginatriði þessara laga felast í 3. gr. og þar er þetta orðað svo: „65% af því, sem kemur í gengismunarsjóð af andvirði frystra sjávarafurða, saltfisks, verkaðs, óverkaðs og flaka, skreiðar, fiskmjöls, loðnumjöls og loðnulýsis, skal renna til viðkomandi deilda Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins“. Þetta hefur verið meginstefnan í gegnum árin.
Ég skal ekki segja hvort út af þessu hefur verið brugðið í einhverjum litlum mæli og þá kannske í samráði við framleiðendur sjávarafurða. Það skal ég ekkert um segja. En það er höfuðatriði, sem kom fram í gagnrýni minni við 2. umr., að út af þessari stefnu er nú fyrst verulega brugðið. Mér kemur ekki í hug að framteiðendur sjávarafurða, stjórn Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins og þeir aðilar, sem hafa upplýst okkur um að nú sé í fyrsta sinn verulega frá þessari stefnu brugðið, þeir fari ekki með rétt mál.
Í þessum lögum segir líka, — og það kom fram í mínu máli, að ég gagnrýndi að engu af þessum gengismun er ætlað að létta byrði þeirra sem verða fyrir áföllum vegna gengisbreytingarinnar, — í þessum lögum er gert ráð fyrir að 35% af þessum gengismun gangi til hagræðingar í fiskiðnaði og 57% til að létta stofnfjárkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa sem orðið hafa fyrir gengistapi vegna erlendra og gengistryggðra skulda. Það eru þessi meginatriði, sem oftast hefur verið lögð áhersla á þegar ráðstafað hefur verið gengismun, og í langflest skiptin hefur verið reynt að létta þeim byrðina sem sérstaklega verða fyrir áföllum af gengisbreytingu. Það er ekki gert núna. Það er farið þarna inn á nýja braut. Ég skal ekki fullyrða hvort hæstv. ráðh. hefur rétt fyrir sér að því leyti til, að í einhverju hafi með samráði við gagnaðila verið farið inn á þá braut að greiða skuld Verðjöfnunarsjóðs almennt. En þeir hafa allir lagt á það áherslu við okkur nm. í fjh.- og viðskn., að hér er um nýmæli að ræða.