02.12.1981
Neðri deild: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

80. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að þakka þeim hv. 5. þm. Reykn. og 3. þm. Reykv. undirtektir þeirra undir þetta frv., sem við hv. þm. Benedikt Gröndal flytjum og er nú til umr. Ég hafði beðið með að kveðja mér hljóðs þar til aðrir þm. hefðu haft tækifæri til að tjá sig um þetta mál, a. m. k. fulltrúar allra þingflokka. En ég tek eftir því, að enginn fulltrúi Alþb. hefur kvatt sér hljóðs um málefni þetta, og það sem meira er, að þegar ég skyggnist um í þingsölum er fátt um þm. Alþb. í sætum sínum og enginn ráðh. þess. Það er nauðsynlegt að undirstrika, að hvorki fjarvera þm. Alþb. úr þingsölum hér að þessu sinni né vera þeirra í núv. ríkisstj. má koma í veg fyrir að slík nytjamál komist í framkvæmd eins og bygging flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli.

Það er rétt til viðbótar greinargóðri framsöguræðu 1. flm., hv. þm. Benedikts Gröndals, að geta um nokkrar þær mótbárur sem fluttar hafa verið gegn byggingu þessarar flugstöðvar, úr því að þeir, sem þær hafa haft í frammi, hafa ekki manndóm í sér til að mæta á þessum þingfundi og flytja þær sjálfir.

Það hefur verið rætt um að þessi flugstöð væri samkvæmt teikningum og útboðslýsingum of stór með tilvísum til þeirrar óvissu sem ríkti varðandi framhald Norður-Atlantshafsflugs. Í því sambandi er og vitnað til ákvæðis í málefnasamningi núv. ríkisstj. um að endurskoða skuli teikningar og hönnun flugstöðvar með tilvísun til þessarar óvissu. Ég vil að þessu gefna tilefni taka það fram og láta koma hér fram í umr., að undirbúningur þessarar flugstöðvar hefur verið mjög ítarlegur og vandaður og margir erlendir sérfræðingar og ráðunautar komið þar við sögu. Fyrst voru fengnir franskir sérfræðingar til að leggja á ráðin um stærð og hönnun flugstöðvarinnar. Þeir þóttu nokkuð stórhuga í áætlunum sínum, sérstaklega varðandi áætlun um farþegaflutninga um Ísland í lofti, og því voru þessu næst fengnir danskir ráðunautar til að fara yfir tillögur hinna frönsku og varð sú yfirferð til þess að stærð og umfang flugstöðvarinnar minnkaði. Þá tóku næst við íslenskir hönnuðir, sem enn á ný minnkuðu flugstöðina um rúmlega 30% frá hinum dönsku tillögum eða úr 23700 m2 í 16358 m2. Loks er þess að geta, að það ákvæði í málefnasamningi núv. ríkisstj. að endurskoða stærð flugstöðvarinnar leiddi til þess, að hinir íslensku hönnuðir komu fyrir flugeldhúsi í flugstöðinni án þess að stækka bygginguna og varð byggingin ásamt flugeldhúsi tæpir 14000 m2 eða minnkaði enn um rúma 2000 m2. Þannig er ljóst að stærð flugstöðvarinnar hefur verið ítarlega könnuð og er útilokað að mínu mati að búast við því, að unnt sé að draga mjög úr stærð byggingarinnar miðað við þær fyrirætlanir sem nú liggja fyrir. Það má taka það fram, að núverandi flugstöð er áætluð 7000 m2, en fyrirhuguð flugstöð mun nú vera 12384 m2 eða stækkun miðað við núverandi flugstöð er 75%, þegar rými samsvarandi starfsþátta er borið saman.

Ég hygg að það þyki ekki of í lagt þegar á það er litið, hve þrengslin eru mikil í núverandi flugstöð og hve allur aðbúnaður í núverandi flugstöð er ófullnægjandi og raunar alls ekki bjóðandi því fólki, sem starfar í flugstöðinni, eða þeim farþegum, sem þurfa að hafa afnot af henni. Ég hygg líka að við hljótum að byggja á því, að flug yfir Norður-Atlantshaf verði þó ávallt að lágmarki til þess að fullnægja þörfum okkar Íslendinga sjálfra, og við vonumst til þess, að birti aftur og farþegum taki að fjölga á þessari leið. Vísasti vegurinn til að auka flugumferð um Ísland er auðvitað að skapa fullnægjandi skilyrði fyrir þá flugfarþega sem leggja leið sína um landið. Það er því liður í því að halda uppi flugsamgöngum um Norður-Atlantshaf að byggja nýja flugstöð. Bygging flugstöðvarinnar er einmitt veigamikil forsenda fyrir framtíð Norður-Atlantshafsflugsins. Hér tengist saman flugið sjálft og mannvirki við flugvöllinn.

Það hefur og verið nefnt, að svo mörg verkefni væru áríðandi varðandi endurbætur á aðbúnaði farþega á flugvöllum víða úti um land að þessi framkvæmd ætti ekki að vera í fyrstu röð. Ég dreg ekki í efa að mörg og mikil verkefni séu nauðsynleg varðandi byggingu flugstöðva á flugvöllum víða úti um land. En ég hygg þó að það hljóti að vera forgangsverkefni í þessum efnum að anddyri, það sem við byggjum gagnvart umheiminum, sé sómasamlega úr garði gert. Hér á ég ekki eingöngu við að við hljótum að taka vel eða sæmilega á móti þeim er sækja okkur heim eða héðan fara, heldur á ég ekkert síður við aðbúnað Íslendinga sem munu takast ferð á hendur til útlanda. Sem betur fer eru ferðalög landsmanna til útlanda vaxandi og er þar enginn skilsmunur á íbúum strjálbýlis og þéttbýlis, þannig að þessi flugstöð kemur öllum landsmönnum jafnt að gagni, auk þess sem hér er um að ræða nauðsynlega þjónustustöð gagnvart erlendum ferðamönnum. Við höfum verið sammála um það hér í þessum sölum að efla þjónustuna við ferðamenn þar sem hér er um mikilvægan atvinnuveg að ræða fyrir landsmenn alla.

Nú sé ég ekki betur en að sá eini þm. Alþb., sem var hér við upphaf umr., sé horfinn á braut. Ég var að gera mér vonir um að hæstv. iðnrh., sem stakk hér inn nefi sínu, ætlaði að ílengjast hér, en hann hvarf jafnskjótt á braut og hann heyrði hvert umræðuefnið var. En hv. þm. Suðurl., Garðar Sigurðsson, sem er flugmálum mjög vel kunnugur, er nú hér kominn og er ánægjulegt að þeir hafa þá vaktaskipti fyrrv. og núv. fulltrúi Alþb. í flugráði.

Af hálfu þm. Alþb. hefur sú mótbára verið uppi höfð, að það sé fyrir neðan virðingu okkar að Bandaríkjamenn taki þátt í byggingarkostnaði þessarar nýju flugstöðvar. Hér hefur þessari mótbáru verið andmælt af öðrum ræðumönnum. Vil ég aðeins undirstrika að það er ekki nema eðlliegt að Bandariíkjamenn taki þátt í byggingarkostnaði þessarar flugstöðvar. Það lá ávallt fyrir að Bandaríkjamenn væru reiðubúnir að kosta að öllu leyti leiðslur og flugvélastæði er nauðsynleg væru í tengslum við flutning flugstöðvarinnar frá þeim stað, þar sem hún er nú, og til þess staðar sem nýrri flugstöð hefur verið ákveðinn. Sá kostnaður er mjög umtalsverður og hef ég ekki heyrt neina mótbáru, ekki heldur frá þm. Alþb., við að þessi kostnaður falli í hlut Bandaríkjamanna. Með sama hætti er eðlilegt að Bandaríkjamenn greiði sem svarar 20 millj. dollurum í byggingarkostnaði nýrrar flugstöðvar, sem áætlaður er um 43 millj. dollara. Styðst það við það, að hvorir tveggja, Bandaríkjamenn og Íslendingar, hafa hagsmuna að gæta vegna aðskilnaðar varnarsvæðisins annars vegar og þess svæðis, sem einkum er nýtt til almennrar umferðar um flugvöllinn, hins vegar. Með þessum hætti verður varnar- og eftirlitsstörfum betur fyrir komið, og er það bæði í þágu Bandaríkjamanna og ætti að gera framkvæmd þeirra starfa ódýrari svo og í þágu Íslendinga þar sem við höfum lagt áherslu á að skilja þarna sem skýrast á milli.

Það var því mjög ákveðin og ítrekuð áhersla á það lögð í viðræðum og samningum við Bandaríkjamenn, að Bandaríkjamenn ykju þátttöku sína í kostnaði við flutning og byggingu nýrrar flugstöðvar. Við töldum ekki rétt í ríkisstjórninni 1974–1978 að láta sitja við að hlutdeild Bandaríkjamanna í kostnaði við flutning og byggingu flugstöðvarinnar takmarkaðist við leiðslur og gerð flugvélastæða, heldur töldum við eðlilegt og sjálfsagt að þeir tækju þátt í kostnaði við bygginguna sjálfa. Eftir að Bandaríkjamenn höfðu hafnað slíkri hlutdeild oftar en einu sinni gengu þeir loks að því að taka þátt í þessum kostnaði að þessu marki. Heimild þar að lútandi hefur verið sett í fjárlög Bandaríkjanna, en því skilyrði bundin að af hálfu okkar Íslendinga liggi fyrir að framkvæmdir séu hafnar eða fjárveitingar séu heimilaðar fyrir 1. okt. næsta ár. Það er svo, að þótt margt sé þungt í vöfum hér á Alþingi Íslendinga mun ekki síður vera þungt í vöfum að fá fram fjárveitingar í bandarísku fjárlögunum, og þess vegna skiptir það miklu máli að við Íslendingar, eftir að hafa fengið Bandaríkjamenn til þess að taka þátt í þessari framkvæmd, látum ekki á okkur standa og nýtum loforð þeirra um hlutdeild í byggingarkostnaði. Það er alveg rétt hjá hv. 3. þm. Reykv. að lita má á þessa hlutdeild sem nokkurs konar endurgjald fyrir afnot þau sem Bandaríkjamenn fá af gömlu flugstöðinni og því svæði, sem þar er um að ræða, með tímabundnum hætti.

Það er ástæðulaust nú að fjalla í einstökum atriðum um athugasemdir þeirra hv. 5. þm. Reykn. og 3. þm. Reykv. við lagafrv. þetta, þar sem eðlilegt er og sjálfsagt að nefnd sú, sem fær frv. til meðferðar, kanni þær athugasemdir.

Ég er í engum vafa um að unnt verður að ná samkomulagi um innihald og gerð þessa frv. Hér er um sérstaka og sérstæða framkvæmd að ræða sem ekki er óeðlilegt að sérstök lög gildi um, m. a. vegna þess að þessi framkvæmd er byggð á samningum og samkomulagi við Bandaríkjamenn og er að því leyti sérstaks eðlis. Á þeirri forsendu byggist það, að utanrrh. er falln framkvæmd málsins, svo og því, að samkvæmt starfsskiptingu ráðh., Er nú gildir fer utanrrh. með öll málefni Keflavíkurflugvallar og gegnir í raun og veru hvað hann snertir öllum fagráðherraembættum þótt á hinn bóginn sé ætlunin, þegar flugstöðin er komin í gagnið, að hér verði auðvitað um almenna íslenska starfsemi að ræða. En verkaskiptingu að þessu leyti má athuga frekar í nefnd.

Það leiðir svo af því sem ég sagði í upphafi máls míns varðandi stærð flugstöðvarinnar fyrirhuguðu, að það yrði erfitt annað en að byggja flugstöðina upp í einum áfanga þótt áfangaskipti geti verið varðandi innréttingavinnu og varðandi það að taka einstaka hluta flugstöðvarbyggingarinnar í notkun. Þetta leiðir af því, að fæstum mundi þykja það mikil stækkun eða mikil úrbót á núverandi vandræðum og þrengslum í gömlu flugstöðinni ef stækkun flugstöðvarinnar væri ekki a. m. k. 50–75%. Ég er svo bjartsýnn varðandi framtíð flugsamgangna um landið að ég tel eðlilegt og sjálfsagt að gera ráð fyrir að afnot flugstöðvarinnar aukist mjög hratt þegar hún er komin upp og skilyrði skapast fyrir að taka á móti fleiri flugvélum og farþegum.

Það er svo íhugunarefni hvernig á því skuli standa, að Alþb. beitir sér gegn byggingu nýrrar flugstöðvar. Alþb. hefur þó verið í ríkisstjórn og látið sér lynda ýmsar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli sem Bandaríkjamenn hafa fjármagnað. Ég nefni lengingu flugbrauta, byggingar ýmiss konar, þótt þeir á hinn bóginn hafi sett sig upp á móti byggingu flugstöðvar sem er einmitt til þess fallin að skilja á milli varnarliðsins og Íslendinga í daglegu lífi. Það skyldi þó ekki vera að Alþb. megi ekki til þess hugsa að missa glæpinn sinn, að það megi ekki til þess hugsa að hafa ekki möguleika til þess að reyna að koma óorði á samskipti Bandaríkjamanna og Íslendinga til þess að skapa tortryggni ekki eingöngu milli þessara þjóða, heldur gagnvart nauðsynlegu varnar- og eftirlitsstarfi sem fram fer í þágu Íslendinga sem annarra vestrænna þjóða frá Keflavíkurflugvelli. Það var gamall foringi þeirra Alþb. sem sagði við mig, þegar við ræddum þessi mál og raunar fleiri á breiðari grundvelli, að hann hefði varað sína menn, Alþb.-menn, við að vera með þessa þráhyggju varðandi varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Hann sagði: Hvað ætlið þið nú að gera ef svo skyldi fara að friðvænlega liti út í heiminum og varnarliðið hyrfi brott? Þá hafið þið ekkert að berjast fyrir og þá hafið þið á engu að lifa.

Ég vek enn á ný athygli á því, að þeir einstöku Alþb. menn, sem hér voru, fyrrv. og núv. fulltrúar þess í flugráði, hafa ekki setið hér undir þessum umr. og eru flúnir af hólmi. Alþb. er mállaust. Við skulum vona að það viti á gott og sinnaskipti séu í aðsigi á þeirra heimili vegna þess að auðvitað ættu þeir ekki síður en aðrir alþm. að leggja áherslu á að þessi framkvæmd komist í höfn. Það má auðvitað gagnrýna það, að í nefnd þá, er skipuð er til að fjalla um byggingu þessarar flugstöðvar, séu eingöngu skipaðir 3 menn frá núverandi ríkisstjórnaraðilum. En ef tilgangurinn með því er að reyna að fá Alþb.-menn til að taka sinnaskiptum í þessum efnum skal ég ekki fetta svo mjög fingur út í þessa nefndarskipun þótt hún sé út af fyrir sig lítt þingleg og lýðræðisleg.

Ég vil að lokum leggja á það megináherslu, sem fram kom hjá 1. flm., hv. þm. Benedikt Gröndal, að það er algerlega óviðunandi ef innan við fimmtungur þm. ætlar sér að ráða ferðinni í þessu máli, og það er virðingu Alþingis og alþm. algerlega ósamboðið ef einn þingflokkurinn hefur stöðvunarvald í slíku þjóðnytjamáli sem hér er um að ræða. Það er að vísu ákaflega óvenjulegt að í málefnasamningi ríkisstj. sé sérstakt ákvæði um að einn flokkur hafi neitunarvald um tiltekna framkvæmd í landinu, eins og byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Það er venjan að í slíkum málefnasamningum sé tekið fram hvaða framkvæmdir skuli komast í höfn fremur en hitt, hvaða framkvæmdir skuli ekki verða að veruleika, eins og um er að ræða í sambandi við byggingu flugstöðvar. Ég skora á þm. Framsfl. og þá þm. Sjálfstfl., sem styðja núv. ríkisstjórn eða veita henni hlutleysi, að standa við sannfæringu sína og tryggja meiri hluta Alþingis til að koma þessu þjóðþrifamáli í höfn. Ég held að það sé ekki ofætlun að gera það, þrátt fyrir 160 millj. króna kostnað, þar sem rekstrarkostnaðaráætlanir gera grein fyrir því, að hagnaður verði af rekstri flugstöðvarinnar. Þótt í þeim áætlunum sé ekki tekið inn vextir og afborganir af stofnkostnaði er hér um rekstrarafgang að ræða svo að töluvert ætti að vera til þess að greiða fjármagnskostnað af byggingarkostnaði. Og með vaxandi flugumferð, sem ný flugstöð skapar skilyrði fyrir, er ég í engum vafa um að sú fjárhagslega byrði, sem af byggingu þessarar flugstöðvar leiðir, verði minni en engin þegar hún er komin upp og tekin í notkun.

Má ég bæta því við, að ég tók svo eftir að hv. 1. flm. gerði um það tillögu að samgn. fengi málið til meðferðar. Ég hef aðeins borið mig saman við hann lítillega og sú ábending hefur fram komið, að með því að hér er um töluvert fjárhagsmál að ræða, eins og um getur í 2. gr. frv., sé ef til vill eðlilegra að fjh.- og viðskn. fái málið til meðferðar. Vil ég beina því til hæstv. forseta að meta það og vega.