02.12.1981
Neðri deild: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (965)

80. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Utanrrh. (Ólafnr Jóhannesson):

Herra forseti. Hér er um mjög stórt og mikilvægt mál að tefla og þess vegna út af fyrir sig ekkert óeðlilegt að lagasetning komi til varðandi það. Reyndar er trúlegt að þyrfti alltaf þegar til framkvæmda kemur varðandi flugstöð að koma til lagasetning eða heimild.

Ég fagna út af fyrir sig þeim áhuga sem hv. flm. hafa sýnt á þessu máli. Ég tel um mjög mikilvægt þjóðþrifamál að ræða og ætla ekki að eyða orðum að því. Ég hef sagt mína skoðun á því áður.

Ég held að það sé mjög þarflegt að Alþingi taki málið til meðferðar, bæði hér í þingsal á fundum og ekkert síður að nefnd fái málið til umfjöllunar. Ég held að það geti verið gott að því leyti, að það vekur menn til umhugsunar um þetta og málið skýrist. Því er ekki að neita, að að ýmsu leyti hefur þetta mál verið talsvert afflutt. Þess vegna held ég að það sé af hinu góða að um það sé talað og hið sanna komi í ljós.

Hitt er annað mál, að þó að hér sé flutt þetta frv. til laga um flugstöð á Keflavíkurflugvelli er margs að gæta í sambandi við hvenær samþykkt eða setning slíkra laga er fímabær. Það er ekki rétt að stinga höfðinu í sandinn í þessu sambandi, og það er ekki rétt að gleyma hvernig ákvæði eru í stjórnarsáttmálanum um þetta, þó að það sé auðvitað öllum ljóst, að Alþingi getur sett lög um þetta hvenær sem er — nota bene: ef þingfylgi er fyrir hendi. Ég held því að það verði erfitt í þessu máli að horfa fram hjá því pólitíska ástandi sem er, því pólitíska viðhorfi sem ríkir hér, og menn verði að lita raunsætt á það og athuga það, þeir sem áhuga hafa á málinu, sem ég hygg að séu velflestir þm., með hvaða hætti líklegast er að þoka málinu áfram og koma fram því sem helst þarf að koma.

Þetta er ekki einfalt mál að því leyti til, að það blandast inn í þau sjónarmið sem hér hafa komið fram hjá hv. ræðumönnum, að mönnum vex nokkuð í augum sú fjárhæð, sem á að verja í þessu skyni, þegar þeir horfa á hjá sér og í sínu nágrenni og í sínu kjördæmi flugvelli sem eru mjög illa í stakk búnir vegna fjárhagsvandræða. Ég skil því ákaflega vel að menn íhugi þessi mál frá ýmsum sjónarmiðum. En ég get algjörlega tekið undir það sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, að það þarf vitaskuld að líta á þetta mál með nokkuð öðrum hætti, sem sé þeim, að þetta er mál þjóðarinnar allrar, þetta er flugvöllur og flughöfn þjóðarinnar allrar.

En eins og ég sagði verður náttúrlega að hafa opin augun fyrir þeim staðreyndum sem hér eru fyrir hendi varðandi pólitískt ástand. Eins og menn rekur minni til var flutt hér í fyrra brtt. við lánsfjáráætlun þar sem gert var ráð fyrir heimild til 10 millj. kr. lántöku. Hún fékkst ekki samþykkt. Ég greiddi þeirri till. atkv., gerði grein fyrir atkv. mínu í því sambandi og taldi að samþykki slíkrar heimildar bryti ekki á nokkurn hátt í bága við stjórnarsáttmálann, það ákvæði hans er lýtur að þessu. Við nánari og rólega athugun á þessu hlýtur náttúrlega öllum að vera ljóst, og allir hljóta að fallast á það að athuguðu máli, að það er ekki brotið í bága við stjórnarsáttmálann þó að veitt sé heimild til lántöku. Það er aðeins um framkvæmdirnar sem áskilið er samþykki allra ráðh. Nú hefur það gerst, sem mér þykir gleðilegt, að það hefur verið algjörlega fallist á þetta sjónarmið mitt í ríkisstj. og nú er í fjárlagafrv. heimild til lántöku sem gæti verið undirstaða að fyrsta skrefinu í þessu máli.

Það er að vísu jafnframt tekið fram, að skipuð skuli nefnd til að athuga alla hönnunina og athuga m. a. hvort verði komið við einhverri áfangaskiptingu í sambandi við þetta mál. Það má segja um þetta mál að það verður seint of vel athugað. Að sjálfsögðu tel ég rétt að slík nefnd starfi. Hún hefur þegar verið skipuð og tekið til starfa og ég efast ekki um að hún starfi vel. Hitt er eftir að sjá, hvort hún getur komist að annarri niðurstöðu en þeirri, sem fyrir liggur varðandi þetta mál, af því að það hefur verið unnið mikið að því eins og hér hefur komið fram.

Hv. síðasti ræðumaður benti á að það væri nokkuð óeðlilegt að í þessari nefnd væru aðeins fulltrúar frá stjórnarflokkunum, en ekki frá stjórnarandstöðuflokkunum. Út af fyrir sig get ég tekið undir þetta sjónarmið því það er æskilegt að sameina um svona mikla framkvæmd alla aðila. En það verður að stíga fyrst yfir neðstu rimina áður en komist er upp í þá næstu. Það, sem fyrir liggur núna í málinu, er að athuga og kanna hvort ekki getur orðið samkomulag innan ríkisstj. um að hefja framkvæmdir. Það fer sjálfsagt eftir því, vona ég, hverjar tillögur koma frá þeirri nefnd sem málið hefur nú til athugunar.

En það dugar ekki annað en að horfa raunsætt á þetta. Á meðan núv. stjórn situr, og það eru engin feigðarmerki á henni enn þá að sjá, verður ekki ráðist þarna í framkvæmdir samkv. stjórnarsáttmálanum nema allir flokkarnir eða við skulum segja allir ráðh. samþykki það. Auðvitað er svona ákvæði í stjórnarsáttmála ekki bindandi fyrir hv. alþm. En hitt vitum við, að í raunveruleikanum víkja stjórnarstuðningsmenn ógjarnan frá slíku ákvæði sem þessu. Ég held því að enn verði að reyna að þoka þessu máli áfram með samkomulagi. Og miðað við það sem ég sagði áðan, að skipt hefði verið um skoðun frá því í fyrra á því, hvern skilning ætti að leggja í stjórnarsáttmálann, ætti ekki að vera útilokað að gera sér von um að menn gætu skipt um skoðun og fallist á að framkvæmdir hæfust kannske með einhverjum breytingum frá því sem menn hafa upphaflega gert sér í hugarlund.

Þetta vildi ég aðeins taka fram, en endurtek það sem ég hef þegar sagt, að ég fagna því út af fyrir sig að þetta frv. er komið fram og málið er vakið á Alþingi. Þetta frv. fer náttúrlega til nefndar. Þá gefst kostur á að upplýsa málið þar enn betur og gefa nefndinni upplýsingar. Það getur verið álitamál kannske til hvaða nefndar frv. ætti að ganga. Ég hafði hugsað með mér, áður en ég heyrði tillögu 1. flm., að frv. mundi fara í fjh.- og viðskn., en það er auðvitað álitamál og ekki neitt aðalatriði. Þar verða að sjálfsögðu athuguð einstök atriði í þessu sambandi. —

Mér finnst t. d. fullmikið á utanrrh. lagt í 2. gr., þar sem honum er boðið að tryggja fé til byggingarinnar. Það væri kannske rétt að hafa eitthvað mildara orðalag á því. Ekki treysti ég mér til að leggja fram eigin lánsfé ef á þyrfti að halda. Vonandi verður möguleiki á að fá lánsfé til þess, en er þó hvergi nærri kannað vegna þess að ekki hafa verið tök á að kanna það fyrr en lægi fyrir hvort í framkvæmdir yrði ráðist eða ekki.

Það er auðvitað fullkomið álitamál, hvort þessi flugstöð og flugstöðvarbygging og rekstur hennar heyrir undir samgrh. eða utanrrh. Má auðvitað lengi um það deila. En sá háttur hefur verið á hafður á Keflavíkurflugvelli að mál hafa færst undir einn ráðh., og það hefur orðið hlutskipti vil ég segja utanrrh. að fara með þau mái. Það hefði svo sem mátt hugsa sér að þau væru öll í heild lögð undir einhvern annan ráðh. Af minni reynslu tel ég að það sé heppilegast að hafa þessi mál undir einum og sama ráðh., en hvort það er utanrrh. eða einhver annar getur verið álitamái. En auðvitað getur Alþingi í lögum ákveðið að þessi bygging, rekstur þessarar stöðvar skuli heyra undir einn og sama ráðh.

Ég vil út af því, sem hv. þm. Albert Guðmundsson sagði, benda honum á að þetta er bundið í lögum nú. Það er ekki aðeins að það komi til greina að þessi starfsemi heyri undir ráðh., heldur er það beinlínis bundið í lögum að þessi mál skuli heyra undir utanrrh. Vitaskuld má breyta því eins og öðru. Er reyndar ákvæði í stjórnarsáttmála um að tekin skuli til athugunar verkaskipting að því er varðar Keflavíkurflugvöll, en það hefur ekki komið til framkvæmda.

Ég skal svo, herra forseti, ekki blanda mér meira í þessa umr. Það má vera að það gefist tilefni til að tala eitthvað nánar um þetta í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og þá lántökuheimild sem þar er að finna og ég tel allmikinn ávinning fyrir þann málstað sem ég barðist fyrir.