02.12.1981
Neðri deild: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (973)

111. mál, söluskattur

Flm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. sem ég flyt á þskj. 114 ásamt hv. 7. landsk. þm., Halldóri Blöndal, um breytingu á lögum nr.10/1960, um söluskatt.

Þetta frv. er raunar aðeins ein grein, og það, sem þar er lagt til er að orðin „sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni“, sem er að finna í 11. lið 6. gr. laganna, falli niður.

Það, sem hér er um að ræða samandregið, er að nái þetta frv. fram að ganga er lagt til að öll blöð og tímarit verði undanþegin söluskatti. Undanfarin ár hefur blöðum og tímaritum verið mjög verulega mismunað í þessum efnum. Í söluskattslögunum er að finna þessi orð: „sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni“. Þetta er hins vegar mjög veik skilgreining, enda hefur fjmrh. eða embættismönnum í fjmrn. verið gert að útfæra þessi orð. Það er ljóst t. a. m. að dagblöð hafa ekki verið söluskattskyld. Nú er það auðvitað á allra vitorði, að rekstur dagblaða hefur gengið mjög mismunandi. Ég hygg að það sé ekki neitt leyndarmál t. a. m. að blað eins og Morgunblaðið er fyrirtæki sem skilar miklum hagnaði, gengur vel, borgar drjúgan arð til þeirra sem í því eiga. Dagblöð hins vegar, a. m. k. þau sem eru ekki gefin út af stjórnmálaflokkunum, ganga brösulega, svo ekki sé meira sagt, eða eru rekin með allmiklu tapi.

Þegar kemur að tímaritum hins vegar þá hefur þetta verið skilgreint þannig, að þau tímarit, sem gefin eru út af félagasamtökum, hafa verið undanþegin söluskatti. Nægir þar að nefna t. d. tímarit sem gefin eru út af Frjálsu framtaki, sem er fyrirtæki sem hefur mikið umfang í útgáfustarfsemi, en öðrum tímaritum eða blöðum sem gefin eru út á hálfs mánaðar eða mánaðar fresti, hefur verið gert að borga söluskatt. Verður þó ekki séð í raun og veru að um nokkurn mismun á ritum sé þarna að ræða. Þetta hefur orðið til þess, og að sumu leyti af mjög skiljanlegum ástæðum, að mikillar óánægju hefur gætt hjá aðilum sem í útgáfustarfi standa. Þeim finnst réttilega — og hafa skrifað um það blaðagreinar aftur og aftur — að ritum, sem í raun og veru eru gefin út á mjög líkum ef ekki alveg sömu forsendum, sé mismunað. Þegar þetta mál er skoðað er ekki hægt annað en að taka undir í þessum efnum.

Því má svo bæta við, að í því felst ákveðin hætta, að ráðuneyti hafi vald til að skilgreina hvaða útgáfustarfsemi sé menningarleg og hvaða útgáfustarfsemi sé ómenningarleg. Ég hygg að í raun hafi þessi skattlagning — þar sem þessi söluskattur er lagður á suma og aðra ekki — tekið mið af þeim sjónarmiðum, að útgáfustarfsemi, er þeim, sem um framkvæmd reglnanna fjalla, þykir ómenningarleg að einhverju leyti, sé skattlögð, þar séu slík sjónarmið sem liggi til grundvallar. Ég vil aðeins undirstrika það, hversu hættuleg svona sjónarmið geta orðið og hafa í raun orðið hjá okkur.

Eins og segir í grg. með frv. þá kann mjög að orka tvímælis hvort og þá með hverjum hætti skuli veita undanþágur frá söluskatti. Síðan segir að leiða megi að því rök, að allt prentað mál skuli undanþegið þessum skatti, þ. e. söluskatti, og sé þá stuðst við prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Alla vega er ljóst að það hefur valdið miklum vandræðum á undanförnum árum fyrir suma þá, sem í slíkri starfsemi hafa staðið, að þeir hafa verið óvissir um hvort slíkan skatt ætti að greiða eða ekki. Nefna m á sem dæmi að fyrir að ég hygg einu ári eða svo var hafist handa um útgáfu blaðs sem bar nafnið Núna. Útgefendur þessi vissu ekki fyrr en þeir voru vel komnir af stað með útgáfuna hvort þeir væru söluskattskyldir eða ekki. Þeim var gert að greiða söluskatt og „það reið útgáfunni að fullu,“ svo vitnað sé í blaðaviðtöl við þessa útgefendur.

Spurt kann að vera af hverju sé verið að fella niður orðin „sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni“ og hvort það sé verið að hlaða undir gróðastarfsemi sérstaklega. Ég hygg að þetta sé á misskilningi byggt. Vitaskuld er margháttuð útgáfustarfsemi í landinu, sem af er verulegur hagnaður, en vegna þess að útgáfunni er öðruvísi komið fyrir, vegna þess að gerðir eru samningar við félagasamtök og þau látin standa að útgáfunni, þá hafa lögin verið túlkuð svo, að slíkir aðilar þurfi ekki að greiða söluskatt. Hygg ég að með örfáum dæmum væri hægt að sýna fram á að hér er í raun um hróplegt ranglæti og hróplega misnotkun að ræða. Það skal viðurkennt, að ætíð er umdeilanlegt hvort veita eigi undanþágu frá söluskatti, og undanþágufrumskógur er auðvitað ekki góður og oft af hinu illa. En hér er búið að ryðja brautina. Allur þorri blaða og tímarita er undanþeginn söluskatti. Það er mikill minni hluti í slíkri útgáfustarfsemi sem enn greiðir slíkan skatt. Og það felst í því mjög ákveðin hætta, að embættismönnum í rn. sé falið að framkvæma þetta þó að hæstv. ráðh. taki hina endanlegu ákvörðun. Eins og öll þessi mál eru í pottinn búin sýnist sanngirnismál og langsamlega einfaldast, að sú regla sé gerð almenn og undantekningarlaus, að prentað mál sé undanþegið söluskatti. Herra forseti. Það er í því skyni, að sú breyting komist á, sem þetta frv. er fram lagt.

Ég legg svo til að að þessari umr. lokinni verði málinu vísað til 2. umr. og til fjh.- og viðskn.