03.12.1981
Sameinað þing: 30. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í B-deild Alþingistíðinda. (980)

115. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til að lýsa yfir eindregnum stuðningi Alþfl. við það samkomulag milli Íslendinga og Norðmanna, sem hæstv. utanrrh. leggur hér fram til staðfestingar Alþingis, og hvetja þingið til að staðfesta þetta samkomulag fljótt og vel.

Um er að ræða hvernig skipta eigi réttindum til auðæfa í botni hafsins á svæðinu milli Íslands og Jan-Mayen. Farin var sú leið, sem áður hafði orðið samkomulag um, að skipa sáttanefnd með einum fulltrúa okkar, öðrum Norðmanna og oddamanni frá þriðja ríki. Skilaði sú nefnd áliti um það, hvernig best yrði að leysa þessi mál.

Til greina hefði komið að reyna að finna einhverja línu sem mætti kalla markalínu á milli Íslendinga og Norðmanna, annaðhvort þá sömu og 200 mílna linuna eða einhverja aðra. En það nýstárlega gerðist, að sáttanefndin stakk upp á því, að ekki yrði reynt að skipta á þann hátt, heldur yrði afmarkað það svæði, þar sem mestar líkur eru á að olía finnist á hafsbotni á milli Íslands og Jan Mayen, og því svæði yrði síðan skipt, en að allt svæðið báðum megin við 200 mílna línuna verði rannsakað og olía þar unnin, ef hún finnsf, af báðum aðilum sameiginlega. Ég tel því að það séu tvær veigamiklar ástæður fyrir því, að Alþingi geti með góðri samvisku staðfest þetta samkomulag. Í fyrsta lagi er samkomulagið mjög hagstætt okkur Íslendingum. Í öðru lagi er á alþjóðlegan mælikvarða til fyrirmyndar að leggja til slíkt samstarf. Munu vera fá eða engin dæmi um það annars staðar enn sem komið er.

Ég vil skjóta því inn, að við erum hér að hugsa til langrar framtíðar. Dýpi er svo mikið á þessu svæði að það mun ekki vera tæknilega líklegt að olíuvinnsla komi til greina þar á allra næstu árum, en þar verður hægt að gera fljótlega mikilsverðar rannsóknir. Verði þær rannsóknir jákvæðar erum við með þessu samkomulagi að tryggja hagsmuni íslensku þjóðarinnar um aldamót og langan tíma eftir þau að minni hyggju. Það er ekki minna virði að afgreiða gott mál þó það sé ætlað til slíkrar framtíðar. Er algengara að við af núlifandi kynslóð tökum út á framtíðina heldur en hitt, sem við gerum með þessu máli, að við leggjum inn eitthvað sem getur komið komandi kynslóðum til gagns og tekna.

Það, sem við þurfum að hafa í huga í sambandi við framkvæmdir bæði á rannsóknum og hugsanlegri vinnslu á þessu svæði, er að sjálfsögðu mengun, og hefur í umr. í utanrmn. verið á það mál bent og tekið tillit til þess, þannig að ég vænti að séð sé við þeirri hættu.

Ég ítreka að þetta mál er hagstætt okkur Íslendingum. Í óðru lagi er það fyrirmynd hvað alþjóðleg samskipti snertir, og ég lýsi stuðningi við það.