03.12.1981
Sameinað þing: 30. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1212 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

115. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir með síðasta ræðumanni, að ég átti ekki von á því að þetta mál kæmi hér til umræðu á þessum stutta fundi, en hef svo sem ekkert á móti því. En það hefur óhjákvæmilega í för með sér að nánari umræða verðí um þetta mál þegar álit kemur frá utanrmn.

Ég vil í upphafi minna á það, að þegar Jan Mayenmálið var til umræðu hér á síðasta ári og árið 1979, þá lýsti Alþb. þeirri grundvallarafstöðu, að kröfur Íslendinga í því máli ættu að byggjast á helmingsrétti okkar á móti Norðmönnum hvað snertir auðæfi hafs og hafsbotns á þessu svæði. Á þessum tíma tóku allir aðrir stjórnmálaflokkar í landinu undir þetta grundvallarviðhorf. Síðan var gerður samningur um Jan Mayen sem fyrst og fremst snerti fiskveiðarnar og fól í sér afneitun á þessu grundvallarviðhorfi. Sá samningur byggðist á því, að Norðmenn hefðu fullan yfirráðarétt yfir fiskstofnunum í kringum Jan Mayen, en viðurkenndu síðan samráðsrétt við Íslendinga um heildarveiðar úr loðnustofninum. Við í Alþb. töldum, þegar þessum viðræðum var lokið í Osló, að það ætti að halda þeim áfram — og fluttum um það tillögu hér á Alþingi — til þess að knýja fram grundvallarviðurkenningu Norðmanna á þessari helmingsréttarreglu hvað snertir auðæfi hafs og hafsbotns á þessu svæði. Því miður var samningurinn um fiskveiðarnar afgreiddur án þess að út í slíkar áframhaldandi viðræður væri farið, og við stóðum þess vegna ekki hér á Alþingi að afgreiðslu þess samnings. Síðan var haldið áfram viðræðum um skiptingu auðæfa hafsbotnsins, og ég tel fagnaðarefni að í þeim samningi, sem hér liggur fyrir, er — gagnstætt því sem var með fyrri samninginn hvað snertir fiskveiðarnar- gengið verulega í átt að viðurkenningu á þessari grundvallarreglu um jafnan rétt Íslendinga og Norðmanna til auðæfa hafsbotnsins á þessu sviði. Ég vil taka undir með síðasta ræðumanni, sem sagði áðan að hann vonaðist til að sá skilningur, sem fram kemur í texta þessa samnings, leiddi til þess, að menn viðurkenndu einnig að Íslendingar ættu helmingsrétt varðandi auðæfi sjávarins ofar hafsbotninum á þessu svæði, þ. e. varðandi fiskveiðarnar.

Ég fagna því sérstaklega, að þessi yfirlýsing skyldi koma fram, vegna þess að það var afstaða okkar Alþb. manna fyrir um það bil ári að það ætti að halda áfram að vinna að viðurkenningu á helmingsrétti Íslendinga til fiskveiða á þessu svæði einnig. Ég tel að Norðmenn hafi með því að fallast á þær grundvallarreglur, sem eru lagðar í þessum samningi, stigið verulegt skref í þá átt.

Því er hins vegar ekki að leyna, að í 9. gr. þess samkomulags, sem hér liggur fyrir, er ekki nægilega skýrt orðalag hvað snertir rétt okkar Íslendinga ef við teljum að olíuboranir eða önnur umsvif á þessu umrædda svæði kunni að stefna fiskstofnum eða auðæfum hafsins í hættu. Ég held að það sé mjög mikilvægt, að í meðferð Alþingis á þessu máli, í hv. utanrmn. og síðan í afgreiðslu Alþingis á málinu endanlega, komi skýrt fram skilningur Íslendinga á þessu ákvæði. Það er alveg rétt sem hv. þm. Benedikt Gröndal sagði áðan: við erum að ræða hér mikið framtíðarmál, stórt og afdrifaríkt framtíðarmál. Það er bæði stórt hvað snertir réttinn til að vinna auðæfin á hafsbotninum, en það er líka stórt til þess að tryggja að Íslendingar hafi rétt til að bægja frá sér þeirri stórfelldu mengunarhættu sem olíuboranir og ónnur umsvif á svæðinu kunna að hafa í för með sér í framtíðinni.

Megingagnrýni okkar Alþb.-manna á Jan Mayensamninginn á sínum tíma var annars vegar, að þar væri ekki viðurkenndur helmingsréttur Íslendinga gagnvart auðæfum hafs og hafsbotns, og svo hins vegar að í samningnum væru ekki nægileg tryggingarákvæði sem gerðu rétt okkar tvímælalausan í framtíðinni. Þótt sá samningur, sem hér liggur fyrir, gangi verulega til móts við fyrra sjónarmið sem við lýstum þá og hafði reyndar verið stefna allra íslensku flokkanna fram að þeim tíma, þá tel ég að því miður sé ekki nægilega vel gengið frá ákvæðunum í 9. gr. og afstaðan til þessa saninings fari þess vegna að verulegu leyti eftir því, hvort Íslendingar geti sameinast um þann skilning sem þeir leggi í þessa grein.

Ég vil í þessu sambandi rifja það upp, að áður en viðræðurnar í Osló sem leiddu til fiskveiðisamningsins um Jan Mayen, síðustu viðræðurnar, hófust gerði þingflokkur Alþb. sérstaka samþykkt sem birt var öðrum flokkum og þjóðinni allri. I 3. og 4. lið þeirrar samþykktar sagði, með leyfi hæstv. forseta: „Réttindi Íslendinga til auðlinda hafsbotnsins á Jan Mayensvæðinu verði tryggð með afdráttarlausri skiptingu, sem tilgreind verði í samningi, og Norðmenn fallist á að færa ekki út efnahagslögsögu við Jan Mayen fyrr en slíkur samningur hefur verið staðfestur af báðum aðilum. Í fjórða lagi, að olíuboranir á Jan Mayen-svæðinu verði háðar samkomulagi beggja þjóðanna.“

Eins og þegar hefur komið fram í mínu máli tel ég að sá samningur, sem hér liggur fyrir nú, gangi verulega í þá átt að fullnægja þeim 3. lið sem hér er settur fram, en varðandi olíuboranirnar hefði verið æskilegra að fá skýrari afstöðu. Ég vil í því sambandi minna á að við umræður um Jan Mayen-samkomulagið á sínum tíma hér á Alþingi sagði ég á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Til viðbótar öllu þessu verðum við svo að trúa því, að Norðmenn vilji taka sanngjarnt tillit enn á ný til skoðana okkar hvað snertir olíuboranir og aðrar aðgerðir á Jan Mayen-svæðinu, sem kunna að valda röskun á lífríki svæðisins, ef illa fer, og stofna fiskveiðum okkar í hættu. En ég held að það sé rétt að minnast þess, þegar menn vega og meta hvert hald er í slíku ákvæði, að norsk stjórnvöld höfðu ákveðið olíuboranir úti fyrir ströndum Norður-Noregs gegn mótmælum íbúa Noregs sjálfs, gegn hörðum mótmælum byggðasamtaka og íbúasamtaka í Norður-Noregi. Er líklegt að ríkisstjórn, sem hlitir ekki samhljóða mótmælum eigin byggðarlaga, komi til með að hlíta mótmælum okkar, þegar ákvæðin eru jafnóljóst orðuð og hér er?“

Enn fremur sagði ég í þessari ræðu, með leyfi hæstv. forseta: „Mikilvægt væri að afla afdráttarlausra tryggingarákvæða um að olíuboranir og aðrar aðgerðir í þessu umhverfi, sem gætu stofnað lífríki þess í hættu, væru háðar samþykki Íslendinga.“

Við meðferð þess samnings um hafsbotninn, sem nú liggur fyrir hv. Alþingi, settu fulltrúar Alþb. fram bæði í utanrmn. og ríkisstj. ábendingar um breytt orðalag á þessum texta, eins og hann var þá, sem miðuðu að því að tryggja nánar að þetta neitunarvald okkar gagnvart umsvifum á svæðinu, sem gæti stofnað lífríkinu í hættu, væri í heiðri haft. Orðalagið tók að vísu nokkrum breytingum, en í þeirri mynd, sem samkomulagið birtist okkur hér, er tekið skýrt fram í fyrsta lagi, að verði aðilar ekki sammála í slíkum samráðum skal málinu visað til sáttanefndar þriggja manna. Aðilar skulu eigi hefja slíkar aðgerðir eða halda þeim áfram fyrr en tillögur sáttanefndar liggja fyrir, nema brýn þörf krefji. Og í öðru lagi: Tillögur nefndarinnar eru án skuldbindingar fyrir aðilana, en þeir skulu taka sanngjarnt tillit til þeirra í frekari málsmeðferð.

Það er m. ö. o. ekki kveðið á um það, að við höfum algert og afdráttarlaust neitunarvald í þessum efnum, heldur eingöngu — eins og í ákvæðum fyrri samningsins — talað um sanngjarnt tillit til þeirra niðurstaðna sem koma frá sáttanefndinni.

Herra forseti. Það hefði verið ástæða til að fjalla nokkru ítarlegar um þetta atriði hér, en ég held að það sé afar mikilvægt gagnvart framtíðarmeðferð málsins, að í utanrmn. og í því áliti, sem frá henni kemur, verði kveðið nokkuð skýrt á um þann skilning sem við Íslendingar leggjum í þetta ákvæði. Ég ítreka það sérstaklega vegna þess — þótt enginn af fyrri ræðumönnum hér í dag hafi viljað nefna það — að varnaðarorð þau, sem Alþb. setti fram fyrir um það bil ári varðandi loðið orðalag í fyrra samkomulaginu, hafa því miður reynst rétt. Ég ætla ekki að nota þennan tíma hér til þess að rifja upp þá atburðarás sem varð í ágúst og september s. l., þegar nokkrar þjóðir Efnahagsbandalagsins fóru inn á Jan Mayensvæðið til loðnuveiða. Þrátt fyrir það, að Íslendingar hefðu gert samninga við Norðmenn um að loðnuveiðar á þessu svæði væru mál Norðmanna og Íslendinga einna, hófu Norðmenn einhliða viðræður við Dani um þessar loðnuveiðar án þess að hafa fullkomlega og formlegt samráð við Íslendinga um þær viðræður. Í öðru lagi beittu Norðmenn ekki eðlilegri og fullri hörku í að hindra veiðar þjóða Efnahagsbandalagsins á þessu svæði, sem hafði þó verið meginröksemd þeirra fyrir því, að Íslendingar ættu að viðurkenna rétt þeirra til yfirráðaréttar yfir svæðinu, þar eð Norðmenn vildu þá tryggja að engar aðrar þjóðir kæmu til loðnuveiða á þessu svæði.

Í þeirri umræðu, sem varð hér í ágúst og septembermánuði s. l., kom m. a. fram frá hæstv. sjútvrh. hörð gagnrýni á framkomu Norðmanna í loðnuveiðum Efnahagsbandalagsins á Jan Mayen-svæðinu og yfirlýsingar um það, að hann harmaði að Norðmenn skyldu ekki treysta sér til að framfylgja þeirri útfærslu og þeim samningi sem þeir hefðu gert við Íslendinga um þetta efni. Ég held að þessi atburðarás í ágúst og septembermánuði s. l. sýni okkur það, sem við héldum fram hér á sínum tíma, að ákvæði fyrra samkomulagsins voru þannig orðuð, að þau mátti túlka á ýmsan veg. Og atburðarásin s. l. sumar sýndi það, að Norðmenn gagnvart loðnuveiðunum þá túlkuðu þetta samkomulag á annan veg en við hefðum talið rétt að túlka það og íslenskur sjútvrh. taldi þá rétt að túlka það. Þess vegna held ég að sé mjög nauðsynlegt að það liggi fyrir skýrt og skorinort gagnvart framtíðinni, þegar Alþingi tekur afstöðu til þess samnings sem nú liggur fyrir um skiptingu hafsbotnsins og sérstaklega um rétt þjóðanna til þess að hamla gegn óeðlilegri röskun á lífríki hafsins, að skilningur okkar á þessu ákvæði sé algerlega ótvíræður, svo að þeir, sem á eftir okkur koma, þurfi ekki að naga sig í handarbökin eða harma það, að hér á Alþingi skyldi ekki hafa verið nægilega tryggilega gengið frá skilningi Íslendinga á rétti okkar til þess að hamla gegn þeim olíuborunum eða öðrum aðgerðum á svæðinu sem geta stofnað lífríki okkar í hættu. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli þingheims á sérstakri ályktun og sérstakri skýrslu sem var lögð fyrir síðasta þing Evrópuráðsins í Strasbourg, þar sem fjallað var sérstaklega um tjón og skaða og hafsmengun sem orsakast af olíuborunum á úthafinu. Ég held að að væri mjög gagnlegt fyrir hv. utanrmn. að kynna sér þessa ályktun og þessa skýrslu í meðferð okkar á þessu máli.

Herra forseti. Það hefði verið æskilegra að fjalla ítarlegar um þetta mál, en ég vil draga hér saman að lokum afstöðu mína til þess eins og það liggur fyrir nú. Ég fagna annars vegar því, að í þessum samningi skuli vera stigið spor í þá átt að viðurkenna helmingsréttindi Íslendinga og Norðmanna til auðæfa hafs og hafsbotns á þessu svæði. Ég tel það framfaraspor frá fyrra samningi, sem gerður var um þetta efni, á líkan hátt og hv. síðasti ræðumaður, en í öðru lagi tel ég nauðsynlegt að í utanrmn. Alþingis verði fjallað vandlega um 9. greinina og um tryggingu okkar gagnvart mengunarhættu í framtíðinni, vonandi á þann veg að Alþingi geti allt sameinast um ákveðinn skilning á þessari grein.