03.12.1981
Sameinað þing: 30. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (983)

115. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen

Utanrrh. (Ólafnr Jóhannesson):

Herra forseti. Ég vil þakka þeim hv. ræðumönnum, sem hér hafa talað, fyrir jákvæðar undirtekir við þetta mál. Ég mun ekki fara út í þær einstöku athugasemdir sem komu fram í sambandi við málið, heldur verður tækifæri til þess þegar málið kemur aftur úr höndum utanrmn. Ég mun því ekki fara að rekja neina sögu hér. Ég legg meira upp úr því, hvað framtíðin segir um þetta, heldur en hvernig aðdragandinn að þessu öllu hefur verið.

Ég vil aðeins segja það út af orðum hv. síðasta ræðumanns, að ég held að það sé misskilningur hjá honum að Norðmenn hafi túlkað ákvæðin í fyrra samkomulaginu á annan veg en við höfum gert. En það verður kostur á að upplýsa það nánar í utanrmn. og enn fremur að ræða nánar um helmingaskiptareglu, enda er kannske heppilegra að ræða það í utanrmn. en hér ef út í þá sálma á að fara.

Viðvíkjandi spurningu, sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson bar fram, vil ég segja það, að ég get ekki sagt til um það nú, hvenær næsti formlegi fundur með Bretum verður. Það er sjálfsagt að athuga það á utanrmn.-fundi, og þá er hægt að ræða það nánar þar. Hitt vil ég segja, að málinu hefur með vissum hætti verið haldið vakandi, og ég vil segja það líka í sambandi við það mál, að formlegir fundir eru ekki alltaf meginatriðið, heldur getur þurft að vinna að málinu með öðrum hætti.