07.12.1981
Efri deild: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (991)
136. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans og sérstaklega fagna því sem mér fannst koma fram í hans máli, að hann væri ekki sáttur með þá verðlagningarstefnu sem ríkt hefur á þessu sviði þjónustu, þ. e. raforkusölu, um nokkurt skeið. Við vitum að verðlagning á raforkusölu ýmissa þjónustufyrirtækja, t. d. Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar, hefur orðið til þess að fyrirtækin, sem ættu að geta byggt sig upp af eigin aflafé að verulegu leyti, hafa verið rekin með tapi. Þetta hefur verið gert á þeim forsendum, að ekki mætti hækka verð þessarar þjónustu vegna þess að það leiddi til aukinnar verðbólgu. En ef þetta verður til þess að fyrirtækin taki þeim mun meira af erlendum lánum, þá sýnist mér frá mínum leikmannssjónarhóli að árangurinn í slagnum við verðbólguna verði ekki mikill. Ég held því að það sé mjög brýnt að taka þau mál til endurskoðunar, og ég vil sannarlega fagna þeim skilningi sem mér fannst brydda hjá hæstv. ráðh. í þeim efnum.
Í sambandi við byggðalínugjald og hugmyndir um álagningu þess vil ég enn og aftur undirstrika það, að það væri að fara mjög langt aftur í tímann. Því miður eru fordæmi fyrir því, að slíkir skattar hafi verið lagðir á utan fjárlaga til þess kannske að komast hjá því að fjárlög hækki. En þar held ég að sé um mjög varhugaverða leið að ræða, svo að ekki sé meira sagt. Það er nógu erfitt að gera sér grein fyrir umfangi ríkisins í þjóðfélaginu þó að ekki sé verið að leika sér að því að taka slíka skatta, því að sjálfsögðu yrði þarna um skatt að ræða — og leggja þá á utan fjárlaga. Auðvitað er þetta gert í ýmsu formi, hefur verið gert stundum, kannske meira í seinni tíð en áður. En ég vara mjög við því og tel að ef um það er að ræða, að heimild yrði notuð til þess að leggja byggðalínugjald, þá sé rétt og eðlilegt að það sé talið með öðrum sköttum ríkisins teknamegin á fjárlögum. Ég geri mér fyllilega ljóst það sem hæstv. ráðh. sagði, að það var ekki skilgreint mjög nákvæmlega að orkujöfnunargjaldið ætti að renna til niðurgreiðslu á verði olíu og til orkumála. En rökstuðningurinn var í rauninni einvörðungu sá, þegar þetta gjald var lagt á, og á það lögð mikil áhersla, man ég var, í umr. á Alþingi. Þess vegna er sá mikli misbrestur, sem orðinn er á því núna að þetta fé skili sér til þeirra upphaflegu markmiða sem því voru ætluð, mjög athyglisverður og sker í augu að það skuli vera 10 milljarðar gkr. sem með þessum hætti renna í ríkissjóð undir því yfirskini að verið sé að afla fjár til orkumála og til olíustyrkja.
Að lokum vil ég taka að sumu leyti undir það sem kom fram hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. þegar hann ræddi um olíustyrkina. Ég held að það sé varhugavert að þeir séu svo háir að það verði ekki hvatning til þess að nýta innlenda orku til upphitunar húsa. En tæplega held ég þó að það geti talist eðlilegt, að styrkirnir skuli standa í stað að krónutölu svo langan tíma sem þeir hafa gert. Ef það hefur verið vit í því á sínum tíma að hafa þá svona háa, — ég held að þetta hafi byrjað árið 1980, — þá er náttúrlega lítið vit í að borga sömu styrkina að krónutölu í dag eða kannske eitthvað eilítið hærri en gert var þá. Ég vek athygli á því að í fyrra var á fjárlögum gert ráð fyrir að 50 millj. nýkr. yrði varið til þess að greiða niður kostnað við upphitun húsa með olíu, en í frv. í ár er aðeins gert ráð fyrir að um 30 millj. kr. verði að ræða, enda í reynd ekki um hærri tölu í ár að ræða sem greidd hefur verið úr ríkissjóði í þessu skyni.
Ég vil enda mitt mál á því að þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin.