17.12.1982
Neðri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (1005)
55. mál, orlof
Frsm. meiri hl. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. félmn. Nd. um frv. til l. um breyt. á lögum um orlof. Eins og fram kemur í grg. frv. er það flutt í samræmi við yfirlýsingu ríkisstj. frá 21. ágúst 1982 um aðgerðir í efnahagsmálum.
Eins og fram kemur í nál. meiri hl. hefur n. fjallað um málið á níu fundum og fengið fjölda umsagna um málið. Eins og raunar við mátti búast mæla samtök launþega með samþykkt frv., en samtök atvinnurekenda gegn því.
Vinnuveitendasamband Íslands sendi mjög ítarlega umsögn um málið, þar sem mjög harðlega er varað við áformum um breytingar á reglum um orlof. Metur VSÍ að áhrif þessa frv. svo og frv. um breytingu á 40 stunda vinnuviku, sem fjallar um að fyrsti mánudagur í ágúst skuli vera frídagur, þýði 2.18% samdrátt heildarvinnutímans, sem að mati VSÍ mundi leiða til nálega 1.5% minnkunar þjóðartekna á mann frá því sem ella mundi verða. Telur VSÍ að ákvörðun Alþingis um lengingu orlofs jafngildi því í raun 1.5% kjaraskerðingu.
Félmn. fékk álit Þjóðhagsstofnunar á þessari umsögn VSÍ, en í áliti Þjóðhagsstofnunar kemur fram að Þjóðhagsstofnun telur að orlofslengingin hafi ekki marktæk áhrif á breytingu á þjóðarframleiðslu og álit VSÍ um minnkun þjóðartekna vegna lengingar orlofs sé hæpið.
VSÍ benti einnig á mikinn kostnaðarauka fyrirtækjanna samfara orlofslengingu. Því verður vitaskuld ekki mótmælt að fjölgun frídaga eykur launakostnað fyrirtækja, en VSÍ hefur sérstaklega bent á Flugleiðir í því sambandi. Félmn. taldi fulla ástæðu til að koma til móts við atvinnugrein eins og t.d. flugsamgöngur, þar sem þungi starfseminnar hvílir á sumarmánuðunum, þegar orlof er almennt tekið, og kemur það fram í brtt. sem meiri hl. félmn. flytur á sérstöku þskj.
Í 2. gr. frv. er kveðið á um að orlof skuli veitt í einu lagi á tímabilinu 2. maí til 15. sept. Ákvæði þetta getur komið nokkuð illa við atvinnurekstur þar sem þungi starfseminnar er mestur yfir sumarmánuðina, eins og áður er getið. Má t.d. benda á flugsamgöngur, en Flugleiðir hafa samið við flugmenn, flugvélstjóra og flugfreyjur um skiptingu orlofs þannig að meira en helmingur orlofsins er tekinn utan hins hefðbundna orlofstíma. Þannig taldi meiri hl. félmn. rétt að gera brtt., sem flutt er á þskj. 177 við 2. gr. frv., sem kveður á um heimild í kjarasamningum um að kveða á um skemmra orlof yfir sumarmánuðina, ef sérstakar rekstrarástæður gera það brýnt.
Eins hefur félmn. lagt til í brtt. viðbótarákvæði við 2. gr., sem kveður á um lengingu orlofs. Ef orlof er tekið utan hins hefðbundna sumarorlofstíma að ósk atvinnurekenda skuli orlof lengjast um 1/4. Á það má benda að slíkt ákvæði er nú almennt í kjarasamningum og taldi meiri hl. félmn. rétt að binda það í orlofslögunum.
Varðandi brtt. á þskj. 177 við 1. gr. frv. taldi meiri hl. félmn. rétt að einungis fyrstu fimm laugardagarnir í orlofi teldust ekki orlofsdagar. Þeir sem samið hafa um lengst orlof, eins og flugmenn og flugvélstjórar, hafa allt að 43 daga orlof, sem þýddi, ef frv. hefði verið samþykkt óbreytt, að þeir fengju allt að sjö daga orlofslengingu. Meiri hl. félmn. taldi því rétt að binda orlofslenginguna við fyrstu fimm laugardaga í orlofi og gerir brtt. við 1. gr., sem fram kemur á þskj. 177.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál nema tilefni gefist til. Ég harma hve dregist hefur að afgreiða þetta mál úr n., en við það varð ekki ráðið þar sem samkomulag varð ekki um afgreiðslu málsins fyrr en í fyrradag. Ég skal samt ekki verða til að ýfa upp það mál við þessa umr. til að tefja ekki afgreiðslu málsins, en ég ítreka að ég legg mikla áherslu á að þetta frv. verði að lögum fyrir jólaleyfi þm.
Meiri hl. félmn. Nd. leggur til, eins og fram kemur í nál., að frv. verði samþykkt með þeim brtt. sem ég hef hér lýst og fluttar eru á þskj. 177.
Herra forseti. Ég vil geta þess hér í lokin, að við 1. umr. þessa máls flutti ég ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni og Magnúsi H. Magnússyni brtt. við frv. þess efnis, að bótaþegar almannatrygginga fengju tilsvarandi hækkun og orlofslengingin, þ.e. bætur almannatrygginga mundu hækka um 2% frá 1. des. Við þær umr. upplýsti heilbr.og trmrh. að til stæði að bæta bótaþegum almannatrygginga þessa orlofslengingu. Fékk félmn. Nd. bréf frá heilbr.- og trmrn., dags. 8. nóv., þar sem fram kemur að hækka eigi grunnlífeyri um 7.72%, en það er samsvarandi því og verðbætur voru almennt hækkaðar 1. des. Einnig kemur fram að grunnlífeyrir og tekjutrygging hækki um 7.72% + 2.34%, en eins og segir í bréfi heilbr.- og trmrn. „síðari talan er í samræmi við lengingu orlofs og frídag verslunarmanna, sem nú er gert ráð fyrir að verði lögákveðinn frídagur.“ Þannig kemur fram í bréfi heilbr.- og trmrn. að orlofslengingin og frídagur verslunarmanna eru metin til 2.34%. Í ljósi þess að ákveðið hefur verið að hækka tekjutrygginguna eða hluta bóta almannatrygginga munum við draga þessa till. til baka, sem flutt er á þskj. 68, en í stað þess flytjum við aðra brtt., sem er á þskj. 191. Eins og ég lýsti hér kemur einungis fram í bréfi heilbr.- og trmrn. að grunnlífeyri eigi að hækka um 7.72%. Við teljum því rétt að flytja hér nýja brtt., sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Heilbr.- og trmrh. skal með reglugerð hækka grunnlífeyri almannatrygginga um 2.34% frá 1. des. 1982 til viðbótar þeirri hækkun á bótum almannatrygginga sem ákveðin var með heimild í 79. gr. almannatryggingalaga, sbr. nánar reglugerð nr. 639/1982.“