18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herraforseti. Mér var tjáð í gær að það væri lögð áhersla á það af hálfu ríkisstj. að afgreiða þetta mál á þessu þingi. Ég tók það fyrir satt. Það var í gær þegar eftir 1. umr. hér í deild haldinn fundur í félmn. Ed. Með tilliti til þess að ætlunin væri að afgreiða þetta mál á þessu þingi afgreiddi nefndin það í fljótheitum, en taldi að það væri grundvöllur fyrir því ef byggt væri á frv. eins og það kom frá Nd. þar sem það hafði verið þrautrætt og athugað.

Nú hefur hv. 11. þm. Reykv. og formaður þingflokks Alþb. borið fram brtt., sem við erum að heyra fyrst nú. Mér virðist í fljótu bragði að frv. þetta breytist verulega ef orðið verður við þeirri brtt. og hún samþykkt. Mér þykir málið það viðurhlutamikið að ég legg til að þessari umr. verði nú frestað og hv. félmn. fái tækifæri til að athuga þessa till. frá formanni þingflokks Alþb.