18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Sú brtt. sem ég flutti hér var orðrétt samhljóða brtt. sem flutt var í Nd. og er á þskj. 189. Hún hefur legið hér á borðum þm. Ennfremur er það venja hér í þinginu að nefndir fái til meðferðar, þegar þær fjalla um mál, þau þskj. sem birst hafa um málið í fyrri deild. Þessi brtt. hefur því efnislega og í þessu formi legið fyrir félmn. þegar hún fjallaði um málið vegna þess að hún hefur borist n. í gögnum málsins frá Nd., eins og ven ja er hér í þinginu. Það getur því ekki verið rétt, sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson sagði áðan, að hann sé í fyrsta skipti að sjá og heyra þessa brtt. nú. Bæði hefur hún legið sem þskj. Nd. á borðum þm. nokkurn tíma og í öðru lagi hlýtur hún að hafa borist n. sem þskj. frá Nd. líkt og ven ja er um öll mál hér í þinginu. Mín till. er nákvæmlega eins orðuð og það þskj. sem hlýtur að hafa legið fyrir n. Hv. félmn. hlýtur því að hafa haft þetta til meðferðar áður. Ég vildi, herra forseti, láta þetta koma fram vegna þess að mér fannst gæta hér misskilnings um að hér væri að birtast í þinginu eitthvað sem menn hefðu ekki haft fyrir framan sig áður.