18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1265 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Við þm. Alþfl. fluttum brtt. áðan varðandi orlof. Ég vil upplýsa þá sem ekki vita um það, að till. okkar í orlofsmálum sem er efnislega eins og brtt. fjallar um, hefur legið hér fyrir frá því í þingbyrjun, þannig að mönnum ætti ekki að koma það neitt á óvart og reyndar geta einstakir þm. ekki fjargviðrast yfir því, þó að brtt. séu fluttar.

Varðandi það mál sem nú er verið að ræða vil ég geta þess að það var fyrir mín orð að inn í nál. var sett að einstakir nm. áskildu sér rétt til að flytja brtt. Ég hafði orð á því á nefndarfundi að ég mundi e.t.v. flytja þá till. sem hv. 11. þm. Reykv. hefur nú flutt, þannig að það ætti ekki að koma mönnum á óvart. Það varð þó ekki úr að ég flytti þessa till. en nú er hún fram komin og átti ég síst von á því frá stjórnarþingmanni, en það er ánægjulegt ef veður hafa skipast í lofti og stjórnarliðið er e.t v. allt fylgjandi þessari till.