18.12.1982
Efri deild: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (1090)

Þingfrestun

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar deildarmanna vil ég þakka góðar óskir forseta í okkar garð. Ennfremur þakka ég honum fyrir röggsama og skörulega fundarstjórn það sem af er þessu þingi. Þá vil ég og óska honum og fjölskyldu hans fyrir okkar hönd gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ennfremur vil ég nota þetta tækifæri til að óska starfsfólki þingsins öllu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Ég vil biðja deildarmenn að staðfesta þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. - (Deildarmenn risu úr sætum.]