18.12.1982
Sameinað þing: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)
1. mál, fjárlög 1983
Frsm. 1. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. til kreppufjárlaga fyrir árið 1983 er nú komið til síðustu umr. hér á hinu háa Alþingi. Frv. hækkar um 285 millj. kr. í meðförum Alþingis ef að líkum lætur. Það er upphæð sem einungis er 2.2% af útgjaldahlið frv. Til samanburðar ættu hv. þm. að hafa í huga að ríkisstj. úthlutaði aukafjárveitingum fram til októberloka sem nema tvöfaldri þessari upphæð eða rúmlega það. Ég held að það séu ekki neinar stjórnarandstöðuýkjur að þetta þýði á mæltu máli að það sé verið að taka fjárveitingarvaldið af Alþingi. Þessar aukafjárveitingar námu alls 542 millj. kr. til októberloka. Hér er um að ræða upphæð sem er að sjálfsögðu á verðlagi ársins í ár, þegar verið er að ræða um aukafjárveitingar, en 285 milljóna hækkunin í meðförum fjvn. er á verðlagi fjárlagafrv.
Tekjur þessa fjárlagafrv. hafa verið hækkaðar í meðförum meiri hluta fjvn. um 230 millj. kr. til að mæta þessum útgjöldum. Þau vinnubrögð voru viðhöfð í sambandi við þessa áætlun um hækkun ríkistekna á næsta ári að meiri hluti fjvn. setti fram ákveðnar sundurliðaðar tölur um hækkun á tekjuáætlun frv., en áður hefur þetta farið þannig fram að fulltrúar Þjóðhagsstofnunar hafa komið á fund fjvn. með breytta tekjuáætlun. Nú er út af fyrir sig kannske ekki beint út á þetta að setja, en það sýnir að í rauninni er verið að loka ákveðnu formlegu gati á þessu fjárlfrv. með þessari tekjuáætlun. Afborganir til Seðlabankans voru síðan lækkaðar um 40 millj. kr. og þá kemur útkoman út. Rekstrarafgangur verður 28 millj. kr. eða 0.2% af útgjaldaliðum fjárlfrv: og greiðsluafgangur verður heilar 10 millj. kr. eða 0.07% af útgjöldum fjárlagafrv.
Ég sýndi fram á það við 2. umr. að miðað við umfang ríkisbúskaparins, eins og ríkisstj. hefur komið honum í með stefnu sinni, og með því stefnumarki, sem gengið er út frá í þjóðhagsáætlun m.a., að samneysla dragist ekki saman milli áranna 1982 og 1983, þá skorti 1000 millj. kr. upp á að endar nái saman í þessari fjárlagagerð. Ég vil því stinga upp á því við hæstv. fjmrh. — hann hefur nefnt þetta frv. kreppufrv. — að hann noti orðið „fjárlagahrip“ svona öðrum þræði því þetta er hriplekt frv. og þau fjárl. sem byggjast á því verða að sjálfsögðu hriplek. Það skortir alla þessa fjárhæð á að hægt sé að ná endum saman miðað við þá stefnu sem hæstv. ríkisstj. hefur í ríkisfjármálunum og þrátt fyrir allar hinar gífurlegu skattahækkanir sem ég tíundaði við 2. umr.
Í þessari fjárlagaafgreiðslu eru auk heldur margir endar lausir. Hv. formaður n. Geir Gunnarsson gerði grein fyrir því hér að hæstv. samgrh. ætlaði að gefa hér yfirlýsingu um vegamál. Yfirlýsingin er fólgin í því, að þegar þing kemur saman verði vegamálin tekin sérstaklega fyrir og ekkert farið eftir væntanlegum fjárlögum. Strax og þing kemur saman, á fyrstu dögum þingsins, á að ómerkja fjárl. með því að gefa út yfirlýsingu um vegamál, sem alls ekki rúmast í þessum fjárlögum. Það á að gefa út yfirlýsingu um að leita skuli samráðs við stjórnarandstöðuna um að leggja nýja skatta á til að ná stefnunni fram í vegamálum, sem hæstv. ráðh. hefur m.a. manna mest gumað af, en samstaða náðist um á hinu háa Alþingi ekki síst fyrir forgöngu okkar sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu. Það á sem sagt að ómerkja fjárlögin strax og þing kemur saman aftur. Það er út af fyrir sig kannske maklegt með fjárlög sem þessi eins og þau verða.
Mér er sagt að í einhverri n. sem fjallar um tekjuöflun til vegamála séu menn að velta fyrir sér nýjum skatti á bifreiðar. Nú á að fara þessa leið. Það á að skera niður á raunverulegum fjárlögum þjóðarinnar framlög til vegamála um að minnsta kosti 17%–20% í nýframkvæmdum vega miðað við vegaframkvæmdir í ár og allt að 30% miðað við þá stefnu sem nýsamþykkt er á Alþingi. Þetta á að gera í fjárlögum þjóðarinnar. Síðan á að koma til stjórnarandstöðunnar og segja: Við þurfum nýjan skatt til þess að ná saman endum að því er varðar vegamálin. — Er nú hægt að viðhafa slík vinnubrögð eftir alla þá skattasúpu sem hæstv. núverandi ríkisstjórn hefur látið frá sér fara? Er hægt að koma svo til stjórnarandstöðunnar og segja: Þið verðið að styðja okkur í því af því að þetta er góður skattur. Við skerum niður framlögin sem koma í ríkissjóð af þessum skattahækkunum okkar, en þetta er góður skattur sem á að bæta þarna við. Við þurfum hann til að ná saman vegamálum og ómerkja þannig fjárlög fyrsta dag sem þing kemur saman á nýjan leik eftir áramót.
Þetta er aðeins dæmi um hvernig staðið er að þessari fjárlagaafgreiðslu nú. Ég endurtek það, að í þessum fjárlögum er um að ræða 17% – 20% samdrátt í framlögum til vegamála á næsta ári miðað við raunsæjar verðlagsforsendur, þ.e. 58% verðbreytingar á milli ára, og það er stefnt að allt að 30% niðurskurði á framlögum til vegamála miðað við þá langtímaáætlun í vegagerð sem hæstv. ráðh. hefur lagt fyrir Alþingi.
Ég vil nefna annað dæmi um hversu fráleif þessi fjárlagaafgreiðsla er. Í þskj. er að finna brtt. sem hljóða svo: „Ríkisstjórninni er heimilt að taka erlent lán allt að 850 millj. kr. eða jafnvirði þess í erlendri mynt. Lánsfénu er ættað að verja til fjármögnunar í samræmi við endurskoðaða lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 allt að 240 millj. kr., til nauðsynlegra greiðslna á árinu 1983 samkvæmt ákvæðum fjárlaga 1983 og til fyrirtækja með eignaraðild ríkissjóðs og/eða sveitarfélaga í samráði við fjárveitinganefnd.“ Á 6. gr. fjárlaga á að setja slíka heimild. Í fyrsta lagi er litið svo á, að 6. gr. fjárlaga heimili ekki ríkisstjórn að taka erlend lán. Í öðru lagi undirstrikar þessi grein að það hafi ekki sést tangur eða tetur af lánsfjáráætlun fyrir næsta ár við þessa fjárlagaafgreiðslu, ekki stafkrókur, og engar upplýsingar um hvernig lánsfjáráætlun yfir yfirstandandi ár hefur verið framkvæmd.
Hér er náttúrlega um svo fráleit vinnubrögð að ræða að í raun ætti hæstv. forseti að stöðva slíka afgreiðslu, en á það reyndi við 2. umr. að hæstv. forseti mun ekki hafa vald til þess, og er það í sjálfu sér umhugsunarefni fyrir þm. að Alþingi skuli ekki geta tekið í taumana með þeim hætti þegar svona er að málum staðið.
Það er lærdómsríkt að fara yfir till. meiri hluta fjvn., sem að sjálfsögðu eru till. ríkisstj. en ekki þeirra valinkunnu manna sem þar sitja á bekk, um hækkun tekna á næsta ári. Það er gert ráð fyrir að aðflutningsgjöld eigi að hækka um 50 millj., söluskattur um 100 millj., sérstakt vörugjald um 20 millj., stimpilgjald um 10 millj., aukatekjur um 5 millj., ýmsar óvissar tekjur um 5 millj. og vaxtatekjur um 20 millj. Út úr þessu dæmi fá þessir ágætu menn 230 millj. kr. tekjuauka á næsta ári. Meginatriðið, þegar þessi tekjuauki er boðaður, er að hann á að byggjast á því að innflutningur aukist heldur frá því sem gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun.
En það er framar öllu stefnumark ríkisstj., að manni skilst, að draga úr viðskiptahalla. Þetta þýðir að ríkisstj. er að hopa að þessu leyti varðandi það sérstaka stefnumark sitt. Hún gerir ráð fyrir að innflutningur aukist umfram það sem gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun og að ríkissjóður hafi tekjur af því. Hér er um að ræða að ríkissjóður haldi áfram að hagnast á stórkostlegum innflutningi og veltu í þjóðfélaginu, sem stafar af eyðsluskuldasöfnun erlendis. Ríkisfjármálin hafa verið í formlegu jafnvægi undanfarin ár vegna þess að ríkissjóður hefur haft gífurlegar tekjur af þessari eyðsluskuldasöfnun erlendis og viðskiptahalla. Nú á að hopa í þessu með innflutningi.
Það er lýsandi dæmi og sýnir hversu lin tök eru á efnahagsmálum þjóðarinnar að innflutningur vara minnkar í haust. Hann var 5% minni í september á föstu gengi en í sama mánuði í fyrra. Hann var 20% minni í október en í sama mánuði í fyrra reiknað á föstu gengi, en aðeins 2% minni í nóvember reiknað á sama hátt. Það dregur því miklu minna úr innflutningi en ríkisstjórnin telur sig stefna að og á þessum forsendum á að auka tekjur ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrv. fyrir árið 1983.
Það er sérstakt áhyggjuefni að allir þeir sem koma nálægt því að fjalla um efnahagsmál líta svo til, að það sé miklu dekkra útlit nú en var í haust að því er varðar viðskiptahalla við útlönd. Bæði verður afli minni á þessu ári og sennilega á því næsta en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun, auk þess sem markaðsaðstæður eru slæmar eins og menn vita. Þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir að skreiðarmarkaðirnir opnist á næsta ári og það verði hægt að vinna skreið á venjulegan hátt. Þar er um að ræða hvorki meira né minna en 100 000 tonn, sem menn hafa verkað í skreið undanfarið. Bresti þessar forsendur þjóðhagsáætlunar, sem því miður ýmsar blikur eru á lofti um, þá má alveg eins búast við jafnmiklum viðskiptahalla á næsta ári og er í ár. Því miður hefur ríkisstj. enga tilburði uppi í því að sporna við þessu.
Það er sagt að þetta frv. sé kreppufrv. og þeir menn sem hafa tekið það orð sér í munn hafa haldið því fram að þau efnahagsáföll sem við Íslendingar höfum orðið fyrir á þessu ári og enginn neitar vegna minni afla en á metárunum 1981 og 1980 og eins vegna markaðsörðugleika séu þyngstu og mestu efnahagsáföll í áratugi. En sé gerður samanburður á efnahagsáföllunum 1967 – 1969 og 1974 –1975 kemur í ljós að þetta er ekki rétt. Útflutningstekjutap þjóðarinnar nam á föstu verðlagi 1967– 1969 hvorki meira né minna en 27.6%. Á árinu 1974 og 1975 minnkuðu útflutningstekjurnar, að teknu tilliti til viðskiptakjara, um tæp 13% reiknað á sama grundvelli. En í þjóðhagsáætlun er í ár gert ráð fyrir að útflutningstekjur okkar minnki frá því í fyrra um rúm 11%. Ýmsir hafa reiknað þetta dæmi og komist að hærri niðurstöðu, svipuðu útflutningstekjutapi og gerðist á árunum 1974 og 1975. Það er því algerlega úr lausu lofti gripið að þetta ástand nú sé þyngsta efnahagsáfall sem yfir okkur hefur dunið á síðasta áratug. Efnahagsáfallið 1974 og 1975 var svipað, en efnahagsáfallið 1967 –1969 langtum verra.
En það er annað, sem einkennir efnahagsmálin nú, sem er meira áhyggjuefni. Árið 1966 skulduðum við Íslendingar aðeins 9.9% af þjóðarframleiðslu okkar erlendis, nettóskuldastaða þjóðarbúsins var aðeins 9.9%. Árið 1973 var hún 17.8%, en nú er hún tæp 32% og talin fara í tæp 50% á næsta ári. Hér er um alvarlegt mál að ræða. Þess vegna er það rétt, sem stendur í fskj. með brbl. ríkisstj., að þjóðarbúið og atvinnuvegirnir eru mjög illa í stakk búin til að mæta þessu áfalli nú. Það er vegna þess að erlendar skuldir þjóðarinnar voru komnar úr hófi fram áður en þetta áfall skall á, þrátt fyrir gífurlegan afla. Mesti afli sem um getur í Íslandssögunni kom á land árið 1981. Þá veiddum við tæp 7000 tonn af botnfiskum. Þorskafli var af því um 470 000 tonn og loðnuafli 64000 tonn. Það er óvænlegt að gera ráð fyrir að við getum aukið afla frá því sem er í ár, hvað þá hann fari fram úr því sem var á metárinu 1981, en í öll þau skipti sem yfir okkur hafa dunið efnahagsleg áföll höfum við bjargað okkur hreinlega á því að ausa meiri afla upp úr sjónum í hafinu í kringum okkur. Þetta er áhyggjuefni.
Ég vildi aðeins, herra forseti, gera grein fyrir því, að það ástand, sem við er að glíma nú og menn hafa talað um að sé mesta efnahagsáfall sem yfir okkur hefur dunið, hefur orðið til þess að hæstv. fjmrh. hefur kallað þetta frv. kreppufrv. Því miður er þetta kreppufrv. í allt annarri merkingu en hæstv. ráðh. vill vera láta. Ég hef gert grein fyrir að hvaða leyti þetta er kreppufrv. Við þekkjum að það er gífurlegt hættuástand í okkar atvinnu- og efnahagsmálum. Stórfelld hætta á atvinnuleysi er á næsta leiti. Því miður er ekki hægt að segja að þessi fjárlagagerð muni laga það ástand. Þvert á móti. Þetta frv. mun verða til þess að það skapast einn vandi enn. Hann er sá, að stjórna ríkisfjármálum af sæmilegu viti í gegnum þann ólgusjó sem efnahagsmál Íslendinga eru nú að ganga í gegnum.