18.12.1982
Sameinað þing: 33. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)
1. mál, fjárlög 1983
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég leyfi mér í fyrsta lagi að tala fyrir till. sem ég flyt ásamt hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni og gera frekari grein fyrir till. sem við flytjum hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir og ég, en fyrst vil ég fara nokkrum orðum um störf samvn. samgöngumála, sem ég hef gert athugasemdir við á hverju einasta þingi sem ég hef setið. Enda þótt ég hafi skrifað undir nál. tel ég fyllstu ástæðu til að vekja athygli þingheims á störfum hennar.
Meðan ég var formaður þessarar nefndar óskaði ég eftir því við stjórnvöld að þau gerðu ráðstafanir til þess að það yrði fylgst betur en nú er með því hvernig þeim fjármunum er varið sem samvn. samgöngumála deilir út. Það má að nokkru segja að þessi n. sé orðin úrelt þingnefnd. Hún er úrelt vegna þess að hún er eins konar skömmtunarnefnd og samtryggingarnefnd, sem lætur í fé fjármagn án þess að spyrja stórra spurninga um það til hvers fjármunirnir fara.
Ég held líka að það sé óeðlilegt að n. láti í té fjármuni til þeirra aðila sem hún úthlutar án þess að krefjast rækilegra skýringa á því hvernig þessum fjármunum er varið. Mér er kunnugt um að hæstv. samgrh. hefur nú gert ráðstafanir til þess að betur verði fylgst með því hvernig þessir fjármunir eru notaðir og ég vonast eindregið til þess að breyting verði hér á og það helst sem allra fyrst.
Ég vil einnig benda á að n. fjallar um mál flóabáta. Einkum og sér í lagi vil ég nefna Herjólf, sem skuldar orðið það miklar fjárhæðir að það er alveg út í hött að láta samvn. samgöngumála fjalla um málefni skipsins, en skuldir þess við Ríkisábyrgðasjóð eru nú komnar yfir 60 millj. kr. og hlýtur að verða sérstakt verkefni ríkisstj. að líta á það mál.
Þá vind ég mér að þeirri till. sem ég hef flutt ásamt hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, Salome Þorkelsdóttur og Halldóri Blöndal um hækkun á framlögum til Námsgagnastofnunar ríkisins og þá sérstaklega vegna sérkennslugagna, og er þar farið fram á hækkun sem nemur 1 millj. kr.
Fyrr á þessu þingi gerði ég grein fyrir, utan dagskrár, ástandinu hjá Námsgagnastofnun ríkisins. Það ástand er svo alvarlegt að við verður ekki unað. Það kom fram í ræðu minni þá, að stofnunin teldi sig þurfa liðlega 40 millj. kr. á þessu ári til að geta sinnt lögbundnum verkefnum og verkefnum sem henni eru ætluð samkvæmt reglugerðum. Á fjárlögunum, eins og þau lágu fyrir fyrir breytingar, voru stofnuninni áætlaðar 15.5 millj. kr., en síðan hefur komið viðbót upp á 3 millj. kr., sem eitthvað bætir ástandið, en það verður engu að síður slæmt áfram. Það sem er allra verst í þessu máli er það, að stofnunin getur ekki sinnt lögboðnum skyldum sínum um útgáfu á kennslugögnum fyrir nemendur með sérþarfir.
Ég vil, herra forseti, af þessu tilefni fá að vitna til bréfs sem nefnd sem menntmrn. skipaði til þess að kanna gerð og útgáfu kennslugagna fyrir nemendur með sérþarfir skrifaði Námsgagnastofnun. Þar segir m.a.:
„Jafnframt hefur nefndin aflað sér upplýsinga um fjárveitingar til Námsgagnastofnunar, sbr. fjárlagafrv. fyrir árið 1983, og borið þær saman við fjárlagatillögur stofnunarinnar. Verði fjárlagafrv. óbreytt að lögum fær Námsgagnastofnun einungis um 50% af þeirri upphæð sem farið var fram á í fjárlagatill. Nm. hafa af þessu miklar áhyggjur.
Nefndin hefur sett fram ákveðnar tillögur um útgáfu á sérkennslugögnum, sem m.a. eru ætluð blindum og sjónskertum, heyrnarlausum og heyrnarskertum, hreyfihömluðum, greindarskertum, málhömluðum, geðveikum eða fjölfötluðum nemendum. Till. nefndarinnar eru m.a. byggðar á ítarlegum könnunum á þörfum á þessu sviði í almennum grunnskólum og sérskólum. Útgáfa sérkennslugagna hefur frá upphafi verið vanrækt. Það er því afar áríðandi að átak verði gert á þessu sviði hið allra fyrsta.
Nefndin óttast að vegna fjárskorts Námsgagnastofnunar verði tillögum um útgáfu sérkennslugagna ekki hrint í framkvæmd. Því skorar nefndin á námsgagnastjórn að leita allra leiða til að útvega fé til þessara verkefna.
Jafnframt ítrekar nefndin þá skoðun sína, að þessum málum verði ekki sinnt á viðunandi hátt fyrr en sérstakur starfsmaður hefur verið ráðinn til Námsgagnastofnunar til að annast þau.“
Herra forseti. Ég tel þetta mál svo mikils virði og svo brýnt að ég trúi því varla fyrr en ég tek á því að hv. þm. vilji fella þessa brtt. Námsgagnastofnun ríkisins er ekki einungis ætlað það hlutverk að útvega grunnskólum landsins og ýmsum stofnunum námsgögn, og það er ekkert smáræðishlutverk því að grunnskólarnir eru 215. Til viðbótar þarf stofnunin að sinna 20 –30 sérstofnunum. Það hlýtur að vera eitt af grundvallarverkefnum fjárveitingavaldsins, Alþingis, að sjá til þess að Námsgagnastofnun fái það fjármagn sem hún þarf til að geta framleitt og komið á framfæri námsgögnum sem grunnskólar landsins þurfa á að halda.
Ég segi það sem skoðun mína, að ég hef ekki nærri eins miklar áhyggjur af því þó eitthvað tregðist um útgáfu á námsgögnum fyrir almenna grunnskóla og ég hefði ef ekki tækist að hrinda í framkvæmd áætlun um framleiðslu á námsgögnum fyrir börn með sérþarfir. Þetta verkefni hefur fullkomlega verið látið sitja á hakanum í ár og jafnvel áratugi og það er fráleitt að þessi stofnun afgreiði fjárlög nú á þann hátt að það verði ekki unnt að hrinda því verkefni í framkvæmd. Það er ekki forsvaranlegt og það er fyrir neðan virðingu þessarar stofnunar. Ég treysti því fullkomlega að hér muni einhver þm. fara eftir því ákvæði, sem honum er sett, að nota samvisku sína eina sem dómara í þeim málum sem fjallað er um. Ég vænti þess því innilega að till. verði samþykkt.
Í síðasta lagi, herra forseti, ég skal ekki lengja þessar umræður, hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni að leggja hér fram till. sem snertir Hafrannsóknastofnun og fjallar um að til undirbúnings rannsókna á eldi sjávarfiska fari litlar 50 000 kr.
Fyrir tveimur árum fluttum við þessir tveir þm. frv. hér á þingi um rannsóknastofnanir atvinnuveganna. Við gerðum þá grein fyrir því að við teldum það eitt af grundvallaratriðum þessarar þjóðar að hún kæmi sér upp rannsóknaraðstöðu til þess að kanna möguleikana á því að framleiða nýja fiskstofna. Það er mín eindregin skoðun að þetta verði eitt af merkustu framtíðarverkefnum þessarar þjóðar, að hún geti sjálf, án tillits til þess hverjar aðstæður eru í hafinu hverju sinni, búið til sína eigin fiskstofna. Ég hafði satt að segja vænst þess að eftir að þingið hafði lýst jafnmiklum vilja og það gerði til að hrinda þessu máli í framkvæmd fengi það skjótari úrlausn en raun ber vitni um. Nú er von á einhverjum hæfasta sérfræðingi sem við eigum á þessu sviði til landsins með vorinu og honum er ætluð staða hjá Hafrannsóknastofnun, en á fjárlögum er ekki ein einasta króna. Þrátt fyrir að Alþingi Íslendinga er búið að samþykkja að það vilji að þessar rannsóknir hefjist og að þeim verði unnið með miklum myndarskap, þá er ekki ein einasta króna á fjárlögum til þessa verkefnis. Ég leyfi mér að vona að það hafi hreinlega gleymst að hugsa um þetta.
Nú er málum þannig háttað, að ég hef rætt þetta mál við virðulegan formann fjvn. og hef frá honum vilyrði um að fjvn. muni skrifa Hafrannsóknastofnun þegar þing kemur saman á nýjan leik og óska eftir upplýsingum um stöðu þessara mála, þannig að fjvn. geti gert nauðsynlegar ráðstafanir til að hrinda þessu í framkvæmd. Með þetta vilyrði í huga og af því að ég veit að formaður fjvn. er ekki maður sem gengur á bak orða sinna dreg ég þessa till. til baka.